Bændablaðið - 05.06.2014, Síða 26

Bændablaðið - 05.06.2014, Síða 26
26 Bændablaðið | Fimmtudagur 5. júní 2014 Hinn 16. ágúst verður blásið til fjórðu Beikonhátíðar hins íslenska Beikonbræðralags og er ætlunin félaganna sem að þessu standa að gera hátíðina veglegri og skemmtilegri en nokkru sinni fyrr. Þó að beikon sé upphaf og endir alls í kringum þessa hátíð segja aðstandendur að nú sé ætlunin að útvíkka hugmyndina þannig að úr verði allsherjar íslensk matarhátíð. Hvetja þeir alla svínabændur til þátttöku, sem og bændur úr öllum öðrum búgreinum, fiskframleiðendur, aðra matvælaframleiðendur, veitingahús og fleiri. Verður hátíðin skemmtilega tímasett, mitt á milli gleðigöngu Gay Pride og Menningarnætur í Reykjavík og veðrið trúlega eins og best verður á kosið. Telja menn því ekki ólíklegt að hátíðin í ár geti dregið að sér 50 til 60 þúsund manns. Bræðralag myndað á beikongrunni Beikonbræðralagið varð að segja má til upp úr vinatengslum ungra manna sem voru á siglinganámskeiði ÍTR í Nauthólsvík. Árum seinna drógu þeir með sér Sigfús Ólafsson, sem þá tók þátt í Masterchef-matreiðslukeppni, en hann er Akureyringur að uppruna sem ættaður er frá Gunnarsstöðum í Þistilfirði og Reykjanesinu og Dölunum. Sigfús segir að nú stefni í mesta ferðamannasumar á Íslandi frá upphafi. Öll hótelherbergi í Reykjavík séu fullbókuð 16. ágúst og jafnvel þó að enginn Íslendingur sjái sér fært að mæta á beikonhátíðina verði allt fullt af erlendum ferðamönnum. Sjálfir segjast þeir ekki verða sjálfir með nein skipulögð skemmtiatriði, heldur geti þeir sem vilja komið fram og skemmt fólki á eigi forsendum. Í fyrra gekk til dæmis karlakór um á meðal gesta og söng hástöfum. Einnig hefur komið fram lúðrasveit, blústónlistarmenn og fleiri. Hugmyndin er að hátíðin sé sem mest eins og sjálfsprottið karnival fyrir alla fjölskylduna. Einstakt tækifæri fyrir kynningu á íslenskum matvælum og matargerðarlist „Við verðum því með einstakt tækifæri til að kynna fyrir túristunum íslensk matvæli og matargerðarlist ásamt íslenskri matarstemmingu og gleði. Slíkt getur haft gríðarlega mikið vægi fyrir íslenskan matvælaiðnað. Það er ekki bara gott fyrir íslenska svínabændur, heldur líka gott almenn fyrir allar íslenskar matvælaafurðir og kynningu á þeim,“ segir Sigfús. Með sterk tengsl á Strandir Benedikt Ingi Tómasson er einn af forsprökkunum. Hann segist vera Reykvíkingur en á ættir að rekja til Hólmavíkur og í Kúvíkur á Reykjafirði í Strandasýslu sem og í Súgandafjörð. Greinilegt er að Ísland er ekki sérlega stórt þegar talið berst að tengslum manna, því báðir þessara Beikonbræðra geta rakið þræði í Kaldbaksvík á Ströndum þaðan sem undirritaður blaðamaður er einnig ættaður. Þannig er að stóra tvílyfta húsið sem sumir kannast við í Norðanverðri Kaldbaksvíkinni var eitt sinn kaupmannshús sem Jensen nokkur kaupmaður byggði í Kúvíkum í Reykjafirði meðan þar var mikill verslunarstaður. Amma Benedikts var fædd og uppalin í Kúvíkum og lék sér þá gjarnan við Ínu Jensen kaupmannsdóttur sem bjó í umræddu húsi. Foreldrar Benedikts eiga nú sumarbústað í Kúvíkum. Kaupmannshúsið var síðan dregið á sleða til Kaldbaksvíkur og þá eignaðist Oddur Ólafsson afi Sigfúsar einn tólfta hluta í húsinu og þar gistir Sigfús nú á hverju sumri. Góður og skemmtilegur hópur Benedikt segir að Beikonbræðralagið sé myndað af góðum og skemmtilegum hópi með ólíka menntun og bakgrunn. Sjálfur er hann verkfræðingur og Sigfús er sagnfræðingur, viðskiptafræðingur og trommari. Þá er í hópnum viðskiptafræðingur, læknir, lögfræðingur, sölustjóri auk þess sem þar er baráttujaxl úr Verslunarmannafélagi Reykjavíkur. Þá eru þar einnig innanborðs, kokkur, gullsmiður, kennari og barítónsöngvari. „Allt eru þetta menn sem hafa ást á lífinu og þykir gaman að gera skemmtilega hluti,“ segir Benedikt. „Það er líka mikil orka í þessum hópi og ekki til neitt sem heitir vandamál. Við látum því ekkert stoppa okkur og erum í fluggír allan daginn. Þegar við komum svo allir saman vantar ekkert upp á hugmyndaflugið. Ég get nefnt sem dæmi að þegar við komum saman á lokafund viku fyrir hátíðina í fyrra var búið að gefa það út að bannað yrði að koma fram með nýjar hugmyndir um hátíðina, nóg væri að gert. Samt fæddust 25 nýjar hugmyndir á fundinum.“ –Er þá aldrei neitt væl í hópnum um að eitt og annað sé óframkvæmanlegt? „Nei , það er ekki hlustað á slíkt. Við framkvæmum bara hlutina og höfum gaman af. Við fáum ekki borgað fyrir okkar vinnu, heldur erum við að gera þetta af því að okkur finnst það skemmtilegt. Í leiðinni reynum við að láta gott af okkur leiða fyrir samfélagið.“ Fáránleg hugmynd frá bandarískum beikonbræðrum „Forsagan að þessari beikonhátíð er að einn vinur okkar, Hjalti Guðmundsson, er læknir og var í framhaldsnámi í hjartalækningum í Háskólanum í Iowa í Bandaríkjunum. Hann kynnst strák sem var með honum í námi sem sagði honum að bróðir hans væri með beikonhátíð. Þar var um að ræða Blue Ribbon Bacon Festival sem var haldin í Des Moines, sem er höfuðborg Iowa. Beikonhátíð Reykjavíkur, Reykjavík Bacon Festival, sem haldin hefur verið á Skólavörðustíg undanfarin ár, er því systurhátíð Blue Ribbon Bacon Festival. Þegar menn fóru að ræða þetta var nefnt að dagur svínsins í þessu mikla svínarræktarríki er 1. mars. Kanarnir höfðu einhversstaðar heyrt að bjórdagurinn á Íslandi væri líka 1. mars. Þar sem beikonhátíðin gengur mikið út á beikon og bjórneyslu, þá voru aðstandendur bandarísku beikonhátíðarinnar fljótir að átta sig á því að þeir yrðu bara að fara til Íslands. Fóru þeir þá að athuga hvort einhver þekkti ekki Íslending til að koma á nauðsynlegum tengslum. Þá Beikonbræðralagið á Íslandi heldur Reykjavík Bacon Festival hinn 16. ágúst: Allsherjar matarkynning með fölskvalausri gleði og karnivalstemmingu – Sprottið upp úr galinni hugmynd beikonbræðra í Iowa í Bandaríkjunum sem orðin er að pólitísku beikonbandalagi við Ísland Þeir Benedikt Ingi Tómasson og Sigfús Ólafsson úr Beikonbræðralaginu Mynd / HKr. Mynd / Beikonbræðralagið Mynd / Beikonbræðralagið

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.