Bændablaðið - 05.06.2014, Side 42

Bændablaðið - 05.06.2014, Side 42
42 Bændablaðið | Fimmtudagur 5. júní 2014 Hvernig gróffóður framleiðir þú í sumar og hvernig fóður hyggst þú nota næsta vetur? Gróffóður er mismunandi að gæðum eftir því hvar það er ræktað, hvaða tegundir eru notaðar, eftir sláttutíma og fl. Það er mikilvægt að gera sér grein fyrir því hvað gróffóðrið sem á að nota næsta vetur inniheldur af próteini, orku og steinefnum til þess að geta valið það viðbótarfóður sem passar best og gefur hagkvæmustu fóðrunina. Kostnaður við efnagreiningu gróffóðurs borgar sig mjög fljótt þegar mögulegt er að finna þá fóðursamsetningu sem hentar hverju sinni – ef stefnt er að hagkvæmri fóðrun og hámarks afurðum. Þegar gripirnir fá úr fóðrinu öll þau næringarefni sem nauðsynleg eru til framleiðslu þýðir það einfaldlega meiri og betri framleiðsla og heilbrigðari dýr. Það er jafn óhagkvæmt að offóðra eins og það er að vanfóðra skepnurnar. Hirðingarsýni eða verkuð sýni Það er algengt að taka hirðingarsýni en þó eru sífellt fleiri sem velja að taka verkuð sýni. Hirðingarsýni gefa okkur upplýsingar um fóðrið þegar það er hirt af velli, en verkuð sýni gefa okkur upplýsingar um fóðrið eins og það er gefið. Það á ýmislegt eftir að gerast í verkuninni sem við náum ekki höndum yfir ef tekin eru hirðingarsýni, en þetta á sérstaklega við um votheysverkun og þegar rúllur eru með lægra þurrefnisinnihald en 50-60%. Þegar tekin eru verkuð sýni þarf fóðrið að hafa legið í stæðu eða rúllu í 4-6 vikur. Því er mikilvægt að skipuleggja sýnatökuna strax þegar fóðrinu er keyrt heim. Þá er hægt að taka frá þær rúllur sem nota á í sýnatökuna og hafa til hliðar en það auðveldar allt aðgengi að þeim og minnkar príl í rúllustæðum. Þær eru svo gataðar að 4-6 vikum liðnum og gefnar í kjölfarið. Við sýnatökuna er gott að miða við að hafa a.m.k. 2-3 rúllur/bagga í hvert sýni og gott að miða við að senda eitt sýni úr hverri stæðu. Hversu mörg sýni þarf að efnagreina? Það er nauðsynlegt að senda inn sýni sem gefa sem besta yfirsýn yfir það fóður sem er til fóðrunar komandi vetur. Það er ekki nauðsynlegt að taka sýni úr öllum túnum en góð regla er að senda sýni úr annars vegar fyrri slætti (hugsanlega flokka í nýræktir og gömul tún) og annað úr seinni slætti. Þá er rétt að senda verkað sýni úr grænfóðri og ef eitthvað sérstakt einkennir hluta fóðursins sem er til á bænum. Hafðu samband Ráðunautar RML geta hjálpað til við skipulag sýnatökunnar. Hafi bændur spurningar eða vangaveltur um hversu mörg sýni henti hverju sinni er auðvelt að taka upp símann eða senda tölvupóst á fóðurráðunaut sem kemur með góð ráð. Eins geta bændur pantað sýnatöku á heimasíðu RML. Það er mjög til bóta ef búið er að skipuleggja sýnatökuna áður en rúllum er keyrt heim. Seinna í sumar fara ráðunautar um sveitir landsins og taka sýni hjá þeim sem þess hafa óskað og senda til efnagreininga hvort heldur sem er til Landbúnaðarháskólans eða BLGG í Hollandi, allt eftir því sem bóndinn óskar. Upplýsingar um verð á sýnatöku og efnagreiningum eru að finna á heimasíðunni rml.is Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins Berglind Ósk Óðinsdóttir Starfsmannastjóri hjá RML boo@rml.is Upplýsingatæknibásinn Verkefnisstjóri í tölvudeild BÍ jbl@bondi.is Jón Baldur Lorange ESA rannsakar háhraðaverkefni stjórnvalda Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, ákvað um mitt ár 2013 að hefja rannsókn háhraðaverkefni stjórnvalda hér á landis sem unnið hefur verið af Símanum. Kom þetta fram í orðum Ketils Einarssonar, lögfræðings hjá ESA, á námskeiði sem Póst- og fjarskiptastofnun stóð fyrir 21. Maí síðastliðinn, en ESA hefur verið með málið í skoðun frá 2011. Var ákveðið að hefja rannsókn þar sem þar sem öll skilyrði um ríkisstyrki vegna háhraða fjarskiptaneta virtust ekki vera uppfyllt. Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, og Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) stóðu fyrir námskeiði um ríkisstyrki vegna háhraða fjarskiptaneta þann 21. maí sl. og sótti dálkahöfundur námskeiðið. Hlutverk ESA er eins og kunnugt er að hafa eftirlit með því að þær aðgerðir stjórnvalda á Íslandi, Noregi og Liechtenstein sem heyra undir EES samninginn séu í samræmi við reglur hans. Námskeiðið sóttu fulltrúar fjarskiptafyrirtækja og veitufyrirtækja sem standa að lagningu jarðstrengja, fulltrúar ýmissa hagsmunasamtaka og starfsmenn PFS. Starfsmenn ESA, þau Ketill Einarsson lögfræðingur, Emily O´Reilly hagfræðingur og Fabian Kaisen lögfræðingur sem öll stýra meðhöndlun einstakra mála hjá eftirlitinu fóru yfir helstu þætti þess hvernig hið opinbera getur komið að fjármögnun háhraða fjarskiptaneta skv. EES samningnum. ESA rannsakar framkvæmdina Björn Geirsson yfirlögfræðingur PFS flutti inngangsorð og stýrði námskeiðinu. Ketill Einarsson, lögfræðingur hjá ESA, fór yfir þau mál sem hefðu borist ESA og þar á meðal kærumál vegna háhraðaverkefnis sem var á vegum stjórnvalda og Síminn framkvæmdi eftir að hafa unnið útboð um verkefnið. Það kom fram að ESA hefur verið með háhraðaverkefnið til skoðunar frá árinu 2011 þar sem leitað var svara frá hlutaðeigandi aðilum, en um mitt ár 2013 ákvað stofnunin að ástæða væri til að hefja rannsókn á málinu þar sem öll skilyrði um ríkisstyrki vegna háhraða fjarskiptaneta virtust ekki vera uppfyllt, og snýr það að heildsölufyrirkomulaginu og stækkun verkefnisins. Nánar verður fjallað um námskeið ESA og PFS síðar. Bóndi berst fyrir betra netsambandi Hafdís Sturludóttir, bóndi í Húsavík á Ströndum, sendi Fjarskiptasjóði og Póst- og fjarskiptastofnun bréf í upphafi maí mánaðar vegna baráttu hennar fyrir viðunandi netsambandi. Hafdís er orðin seinþreytt á slitróttu netsambandi og hér birtist hluti úr bréfi hennar með góðfúslegu leyfi höfundar: „Í janúar fór netsambandið að detta út í tíma og ótíma. Ég notaði öll trixin, endurræsa routerinn, endurræsa tölvuna, slökkva á router á nóttunni og allt sem mér datt í hug. Ekkert breyttist né batnaði. Í mars hittust 4 íbúar á sama svæði og þá barst þetta í tal og kom í ljós að það var sama vandamál hjá þeim öllum. Þar sem þeir tengdust allir sama sendi bárust böndin að honum. Það var haft samband við Símann og í framhaldi vorum við með facebook eftirlit á hvenær væri að detta út netið. Auðvitað vorum við ekki alltaf á netinu þessi hópur en það komu í ljós sömu tímar sem netið var að detta út. Í framhaldi endurræstu þeir sendinn. Ekkert breyttist. Ég kvartaði aftur og fékk þau svör að allt væri bilað á Vestfjörðum þann daginn og viðgerð væri í gangi og þá myndi þetta komast í lag. Seinni partinn í apríl kvartaði ég einu sinni enn. Ég var að fá svar núna áðan. Það eru líkur á að sendirinn sé eitthvað bilaður og vonast til að farið verði í málið á næstu vikum.“ Hafdís segir í bréfinu að hún sé ekki sátt við þetta svar með það í huga að netsambandið sé að detta út 2-3 mínútur á hverri klukkustund og þegar sambandið detti út vegna bilunar taki langan tíma að bregðast við. Nýlega hafi Síminn hringt í bændur til að tilkynna að til stæði að mæla allt niðurhal, innlent einnig, á sama tíma og boðið yrði upp á öflugra samband. Rétt er geta þess að Húsavík á Ströndum var einn af þeim um 1.800 stöðum á landinu sem voru hluti af háhraðaverkefni stjórnvalda. Þessu verkefni er nú lokið, lauk formlega 1. mars eða 1. apríl á þessu ári, og óljóst hvað tekur við fyrir íbúa á öllum þessum stöðum. Dálkahöfundur hyggst leita svara við því í næsta Bændablaði ásamt því að fylgja eftir bréfi Hafdísar til PFS og Fjarskiptasjóðs. Frá námskeiði ESA, Eftirlitsstofnunar EFTA og Póst- og fjarskiptastofnunar, talið frá vinstri: Fabian Kaisen, Ketill Einarsson, Emily O´Reilly og Björn Geirsson.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.