Fréttablaðið - 23.04.2016, Qupperneq 2
Veður
Vestan- og norðvestankaldi í dag og
víða súld eða dálítil slydda, en bjart-
viðri suðaustanlands. Hiti 6 til 13 stig,
hlýjast á Suðausturlandi.
sjá síðu 48
Fara með leikinn alla leið
Þessir grímuklæddu gestir Fanfest, hátíðar fyrir aðdáendur tölvuleikja CCP, voru mættir í Hörpu í gær. Mikill fjöldi spilara tölvuleikja fyrirtækisins,
einna helst leiksins EVE Online, er kominn til landsins, en ný uppfærsla fyrir EVE-leikinn var kynnt á hátíðinni í gær. Fréttablaðið/anton brink
Siglt um
Miðjarðar- og Eyjahaf
Tilboðsverð ef bókað er fyrir 30. apríl.
VITA | SKÓGARHLÍÐ 12 | SÍMI 570 4444 | VITA.IS
Verð frá:
457.900 kr.
Og 12.500 Vildarpunktar
Á mann m.v. 2 í ytri klefa með svölum.
Verð án Vildarpunkta: 467.900 kr.
SIGLING
27. ágúst - 11.sept
samfélag Tvö hundruð sjö
tíu og fimm Íslendingar hafa
óskað eftir því við Google að fá
að gleymast. Beiðnin felur í sér
að leitarniðurstöður séu fjar
lægðar af vefnum án þess að upp
runalega vefsíðan sé fjarlægð.
Google hefur orðið við beiðninni
um að fjarlægja leitarniðurstöður
um Íslendinga í 35,9 prósentum til
fella en það er marktækt minna en
meðaltal Evrópu þar sem 42,9 pró
sent beiðna eru samþykktar.
Samtals hefur Google fjarlægt
878 leitarniðurstöður um Íslend
inga. Opnað var fyrir þennan
möguleika í Evrópu árið 2014 í
kjölfar dóms Evrópudómstólsins í
Lúxemborg þar sem Google var gert
að fjarlægja leitarniðurstöður um
spænskan mann en uppboð hafði
farið fram á heimili hans fyrir síð
ustu aldamót.
Google býður ekki upp á þennan
möguleika í Bandaríkjunum. „Þeir
hjá Google eru dálítið viðkvæmir
fyrir þessu fyrirbæri og ekkert mjög
hrifnir. Þeir hafa verið að berjast
við persónuverndaryfirvöld í Evr
ópu um að ganga eins skammt og
þeir mögulega geta,“ segir Ragnar
Tómas Árnason, lögmaður á Logos,
sem hefur kynnt sér ítarlega réttinn
til að gleymast.
Heimildinni til að fjarlægja efni
úr leitarniðurstöðum á að beita
af varfærni samkvæmt dómi Evr
ópudómstólsins. Að sögn Ragnars
er til dæmis ekki inni í myndinni
að þjóðhöfðingjar eða opinberar
persónur fái fjarlægðar viðkvæmar
fréttir af sér til að hagræða sögunni
sér í hag. Sem dæmi um þetta má
nefna að Google segir háttsettan
embættismann í Ungverjalandi
hafa óskað eftir því að Google fjar
lægði áratugagamlar fréttir af sak
fellingu hans. Ekki var orðið við
beiðninni.
Google fjarlægði aftur á móti
leitarniðurstöður fréttar um kenn
ara í Þýskalandi sem gerðist sekur
um minniháttar glæp áratug áður.
Markmiðið var að vernda nafn
kennarans. „Hugmyndin er sú að
þetta séu upplýsingar sem sam
kvæmt einhverju sanngjörnu mati
hafa ekki lengur þýðingu fyrir við
komandi. Eru honum íþyngjandi
eða fela það í sér að viðkomandi
sætir einhverri útskúfun eða tak
mörkunum án þess að það teljist
vera sanngjarnt,“ segir Ragnar.
Þolendur hrellikláms hafa til að
mynda óskað eftir að láta fjarlægja
leitarniðurstöður.
snaeros@frettabladid.is
Fara varlega með
réttinn til að gleymast
Hátt í þrjú hundruð Íslendingar hafa óskað eftir því að Google fjarlægi um þá
leitarniðurstöður á aðeins tveimur árum. Beiðnum hefur fjölgað um 117 frá
febrúar í fyrra. Stjórnmálamenn fá engan afslátt hjá Google.
leitarniðurstöður á Google færast ofar eftir því sem þær eru oftar opnaðar. Þar af
leiðandi lenda neyðarlegustu atriðin oftast efst. nordicPhotos/aFP
Þeir hafa verið að
berjast við persónu-
verndaryfirvöld í Evrópu um
að ganga eins skammt og
þeir mögulega
geta.
Ragnar Tómas
Árnason, hæsta-
réttarlögmaður
64,1%
af beiðnum Íslendinga hefur
verið hafnað.
Bandaríkin Forvali í forsetakosning
um í Bandaríkjunum lýkur ekki fyrr
en í júní, en fjölmiðlar eru nú þegar
farnir að velta fyrir sér varaforseta
efnum flokkanna. Varaforsetaefnin
verða kynnt á flokksþingi í júlí.
Talið er að forsetaslagurinn verði
á milli Hillary Clinton og Donalds
Trump. Hvorugu hefur þó tekist að
heilla Bandaríkjamenn upp úr skón
um og því getur gott varaforsetaefni
skipt sköpum.
Hagsmunahópar Bandaríkja
manna sem eiga ættir að rekja til
Rómönsku Ameríku vilja að Clin
ton velji varaforseta úr þeirra hópi.
Nefndir eru Julian Castro, húsnæðis
og þéttbýlisþróunarráðherra, og
atvinnumálaráðherrann Tom Perez.
Tengsl Clinton við fjármálaheiminn
hafa sætt gagnrýni og því telja sér
fræðingar að hún gæti valið sér Sherr
od Brown, öldungadeildarþingmann
frá Ohio, sem varaforsetaefni en
hún hefur beitt sér gegn alþjóðavið
skiptasamningum. Öldungadeildar
þingmaðurinn Elizabeth Warren frá
Massachusetts hefur einnig verið
nefnd, þar sem hún hefur gagnrýnt
bankakerfið í Bandaríkjunum harð
lega.
Hvað Trump varðar hafa verið
nefndir öldungadeildarþingmenn
irnr Tim Kaine frá Virginíu og Cory
Brooker frá New Jersey, sem tengist
fjármálageiranum. Trump hefur nefnt
að hann vilji varaforseta með reynslu
í stjórnmálum, ólíkt honum, og hefur
þar nefnt nokkra sem tóku þátt í for
valinu, svo sem Scott Walker, ríkis
stjóra Wisconsin, og öldungadeildar
þingmanninn Marco Rubio. – sg
Strax rýnt
í næstu
varaforseta
HeilBrigðismál Ólafur Ragnar
Grímsson, forseti Íslands, tók fyrstu
skóflustunguna að nýju meðferðar
heimili SÁÁ á Vík á Kjalarnesi í gær.
Miðað er að því að framkvæmdum
við nýja meðferðarheimilið verði
lokið í janúar á næsta ári en það mun
verða tæpir 3.000 fermetrar. Mun nýja
húsið tengjast rúmlega 800 fermetra
húsnæði sem fyrir er á meðferðarstöð
SÁÁ á Vík. Á nýrri Vík verður hægt að
hýsa 61 sjúkling í meðferð. – þea
Nýtt meðferðar-
heimili byggt
Forsetinn tekur fyrstu skóflustunguna.
Fréttablaðið/EGill aðalstEinsson
Elizabeth
Warren, mögu-
legt varaforseta-
efni demókrata í
bandaríkjunum.
2 3 . a p r í l 2 0 1 6 l a u g a r d a g u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð
2
3
-0
4
-2
0
1
6
0
4
:3
5
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
9
3
1
-7
8
3
4
1
9
3
1
-7
6
F
8
1
9
3
1
-7
5
B
C
1
9
3
1
-7
4
8
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
2
0
s
_
2
2
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K