Fréttablaðið - 23.04.2016, Blaðsíða 62
| AtvinnA | 23. apríl 2016 LAUGARDAGUR18
Við finnum rétta
einstaklinginn í starfið www.capacent.is
Ráðgjafar okkar búa
yfir víðtækri þekkingu
á atvinnulífinu
og veita trausta og
persónu lega ráðgjöf.
Rafvirkjar
Rafsveinn ehf óskar eftir að ráða
rafvirkja og rafvirkjanema í vinnu.
Allar nánari upplýsingar í síma 660 4545 Sveinn. Einnig hægt
að senda umsókn og ferilskrá: rafsveinn@rafsveinn.is
Metnaður
Þjónustulund
Sérþekking
Húsasmiðjan leggur metnað sinn í
að veita fyrsta flokks þjónustu og
hafa gott aðgengi að vörum sínum
og starfsfólki. Það sem einkennir
starfsmenn Húsasmiðjunnar eru
eftirfarandi gildi:
Umsóknir berist fyrir 30. apríl
og sendast til atvinna@husa.is
Leitum að metnaðarfullum aðila í krefjandi og
skapandi starf í útstillingum í verslun
okkar í Skútuvogi
Ábyrgðarsvið
• Umsjón með útliti og merkingum í verslun
• Útstillingar og vöruframsetning
• Merkingar í verslun s.s. tilboðs-, verð- og vörumerkingar
Hæfniskröfur
• Frumkvæði í starfi
• Samskiptahæfni og þjónustulund
• Reynsla af útstillingum æskileg
HÚSASMIÐJAN OG BLÓMAVAL
LEITA AÐ ÖFLUGUM LIÐSMANNI
Byggjum á betra verði
HLUTI AF BYGMA
Háskólinn í Reykjavík | Menntavegi 1 | 101 Reykjavík | Sími 599 6200 | www.hr.is
Leitað er að einstaklingi með:
• Hæfni til að vinna að stefnumótun og uppbyggingu
liðsheildar.
• Doktorspróf á sviði viðskiptafræði eða skyldra greina.
• Reynslu af stjórnun, rekstri og mannaforráðum.
• Reynslu af rannsóknum og kennslu á háskólastigi.
• Hagnýta reynslu úr atvinnulífi eða af samstarfi
við atvinnulífið.
• Reynslu af alþjóðlegum vettvangi.
Forseti viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík
Háskólinn í Reykjavík leitar að metnaðarfullum einstaklingi með brennandi áhuga á að taka þátt í áframhaldandi
uppbyggingu öflugrar viðskiptadeildar. Deildarforseti ber ábyrgð á rekstri deildarinnar og leiðir akademískt starf hennar.
Deildarforseti heyrir undir rektor og situr í framkvæmdastjórn Háskólans í Reykjavík.
Nánari upplýsingar um starfið veita Ari Kristinn Jónsson, rektor (ari@ru.is), sími 599 6200 og Sigríður Elín Guðlaugsdóttir,
framkvæmdastjóri mannauðs (sigridureg@ru.is). Umsóknum skal skilað á vef Háskólans í Reykjavík, radningar.hr.is,
fyrir 1. maí 2016. Farið er með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál.
Innan viðskiptadeildar er fengist við kennslu og rannsóknir í viðskiptafræði, hagfræði og sálfræði. Boðið er upp á nám á
BSc-, MSc- og PhD-stigi. Tvær námsbrautir við deildina hafa hlotið alþjóðlega gæðavottun og eru starfsmenn hennar í
fremstu röð í rannsóknum. Tæplega 1000 nemendur stunda nám við deildina, fastir starfsmenn eru tæplega 40 talsins auk
fjölda stundakennara.
Hlutverk Háskólans í Reykjavík er að skapa og miðla þekkingu til að auka samkeppnishæfni og lífsgæði fyrir einstaklinga og samfélag með
siðgæði, sjálfbærni og ábyrgð að leiðarljósi. Akademískar deildir háskólans eru fjórar: lagadeild, tölvunarfræðideild, tækni- og verkfræðideild
og viðskiptadeild. Kennsla og rannsóknir við Háskólann í Reykjavík mótast af sterkum tengslum við atvinnulíf og samfélag. Lögð er áhersla á
þverfagleika, alþjóðlegt umhverfi, nýsköpun og góða þjónustu. Nemendur Háskólans í Reykjavík eru um 3800 í fjórum deildum og um 250 fastir
starfsmenn við háskólann auk fjölda stundakennara.
Sumarstörf í Reykjadal
Matráður
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra óskar að ráða matráð til starfa í
sumarbúðunum í Reykjadal.
Matráður vinnur á vöktum (2-2-3) frá kl. 9.00-17. Matráður hefur
yfirumsjón með eldhúsi, í því felst m.a. eldamennska (eldað fyrir
50-60 manns), gerð matseðla, frágangur og innkaup.
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra rekur sumarbúðir í Reykjadal.
Árlega koma þangað um 300 börn og ungmenni. Sumarbúðirnar
hafa það að leiðarljósi að gefa þeim börnum og ungmennum sem
þurfa sérstaka þjónustu vegna fötlunar tækifæri til að komast í
sumarbúðir líkt og ófatlaðir jafnaldrar þeirra. Starfsemin hefst í
lok maí og lýkur um miðjan ágúst en starfsmenn eru um 50 talsins
og vinna á tvískiptum vöktum.
Umsóknareyðublöð má finna á vef Styrktarfélags lamaðra og
fatlaðra www.slf.is. Umsækjendur geta einnig sent ferilskrá á
reykjadalur@slf.is. Nánari upplýsingar í síma 535-0900.
Umsóknarfrestur er til 1. maí 2016.
Píanókennari / meðleikari
Tónlistarskóli Árnesinga óskar eftir að ráða til starfa píanókennara
og meðleikara í 70 - 75% starf á Selfossi og í Hveragerði frá og með
1. ágúst 2016.
Menntun og eiginleikar:
• Tónlistarkennari III (samkv. kjarasam. FT/FÍH)
- með píanókennarapróf og mikla færni í píanómeðleik.
• Eigi gott með mannleg samskipti.
• Samviskusamur, skapandi og skipulagður.
Kennt er samkvæmt Aðalnámskrá tónlistarskóla.
Upplýsingar fást hjá skólastjóra í síma 861-3884.
Umsóknarfrestur er til 6. maí 2016.
Senda má fyrirspurnir og umsóknir í tölvupósti til robert@tonar.is.
Tónlistarskóli Árnesinga er einn af stærstu tónlistarskólum landsins með starfsemi á
12 kennslustöðum í sýslunni. Fjöldi nemenda er um 600 og starfa 30 kennarar við skólann.
Atvinnueign ehf - Síðumúla 13 - s: 577 5500 - www.atvinnueign.is
Atvinnueign auglýsir eftir sjálfstæðum og árangursdrifnum
löggiltum fasteignasala og/eða aðstoðarmanni fasteigna-
sala til starfa, til að annast sölu og leigu á fasteignum. Mikil
eftirspurn og næg verkefni fyrir duglega einstaklinga.
Árangurstengd laun.
Fagmennska, góð þjónustulund og áræðni eru afar mikilvægir kostir.
Óskum eftir löggiltum fasteignasala
eða aðstoðarmanni fasteignasala
FASTEIGNAMIÐLUN
Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Umsóknir berist á netfangið halldor@atvinnueign.is
Nánari upplýsingar veitir Halldór Már í síma 898 5599
2
3
-0
4
-2
0
1
6
0
4
:3
5
F
B
1
2
0
s
_
P
0
7
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
9
3
1
-E
4
D
4
1
9
3
1
-E
3
9
8
1
9
3
1
-E
2
5
C
1
9
3
1
-E
1
2
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
1
2
0
s
_
2
2
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K