Fréttablaðið - 23.04.2016, Blaðsíða 36
Við viljum að þróunin
verði sem mest sjálf
sprottin, en með ákveðn
um almennum skil
málum og takmörkunum.
Hjálmar Sveinsson
Það var Norðmaðurinn Othar
Ellingsen sem opnaði verslun-
ina árið 1916 en meginhlutverk-
ið var að sérhæfa sig í sölu á
veiðar færum og öðrum vörum
tengdum útgerð. Flestir Íslend-
ingar þekkja vel þessa rótgrónu
verslun sem einnig er starfandi
á Akur eyri. Helga Sverrisdóttir
segir að þótt áherslur hafi lítillega
breyst í áranna rás þá sé verslun-
in alltaf best þekkt fyrir vandað-
ar útivistarvörur og -fatnað. „Við
tókum við rekstrinum í haust og
erum að grafa í sögunni. Margir
eiga minningar frá þessari versl-
un, hvort sem hún var í Hafnar-
stræti eða hér á Grandanum. Við
erum að gera ákveðin plön til
langs tíma en strax ætlum við að
minnka áherslu á veiðivörur fyrir
atvinnumenn og halda okkur við
veiðivörur fyrir fjölskyldufólk.
Okkar stefnumótun byggir á því
að vera alhliða útivistarverslun
fjölskyldufólks. Við kappkostum
að bjóða vandaðar vörur á góðu
verði,“ útskýrir Helga.
Frábær þýsk reiðhjól
Helga segir að heimasíða fyrir-
tækisins sé í vinnslu en þar verður
sett upp vefverslun sem auðveld-
ar fólki að skoða vöruúrvalið. „Við
erum árstíðabundið fyrirtæki og
bjóðum vörur eftir eftirspurn. Við
erum að stækka reiðhjóla úrvalið
okkar en við erum með allar gerð-
ir þýskra Merida-reiðhjóla fyrir
allan aldur, jafnt fyrir börn og
keppnisfólk. Núna erum við í sér-
stöku átaki með Barnaheillum,
við tökum á móti eldri hjólum og
gefum afslátt á nýju hjóli. Gamla
hjólið fer þá í söfnun á vegum
Barnaheilla. Við viljum vera sam-
félagslega ábyrgt fyrirtæki,“ segir
Helga.
Allt fyrir útivist og tjald
útileguna
Hún bætir því við að þau finni vel
fyrir þeim gríðarlega útivistar-
áhuga sem gripið hefur lands-
menn. „Við erum með allar helstu
útivistarvörur og skó fyrir allan
aldur. Að auki bjóðum við útilegu-
vörur, allt frá smæstu hlutum upp
í stærri. Ef fólki dettur í hug að
fara í sína fyrstu útilegu eigum
við allt sem þarf í ferðalagið. Það
sama gildir um þá sem vilja byrja
fjallgöngur. Við leggjum mikla
áherslu á að veita mjög góða og
faglega þjónustu.“
Helga segir að verslunin njóti
góðs af því að vera nálægt höfn-
inni. „Hver veit nema sjóklæði
komist aftur í tísku,“ segir hún.
„Við höfum verið með rótgróin
merki sem Íslendingar þekkja.
Hér er hægt að fá polla- og vind-
galla og stígvél fyrir alla,“ segir
Helga sem sjálf er mikil útivistar-
manneskja.
Fánastangir og frístundasport
Í Ellingsen er hægt að fá sjóketti,
kajaka, fjórhjól og ýmislegt fleira
tengt frístundasporti. Þá má ekki
gleyma fánastöngunum sem hafa
verið vinsælar um árabil hjá Ell-
ingsen.
Helga segir að Grandasvæðið
hafi breyst mikið á stuttum tíma.
„Grandinn hefur lifnað við. Stað-
setningin er því frábær og við
þjónum stóru svæði. Það er allt-
af ævintýri að koma hingað á
Grandann og til okkar í Elling-
sen.“
Hjá Ellingsen er opið alla virka
daga til kl. 18 og einnig á laugar
dögum. Ellingsen er með Face
booksíðu og Helga hvetur fólk til
að fylgjast með færslum þar.
Gæðavörur Ellingsen í hundrað ár
Helga Sverrisdóttir og fjölskylda hennar er sú þriðja í röðinni sem rekur verslunina Ellingsen á Grandanum. Verslunin verður eitt hundrað
ára í júní og þá verður efnt til hátíðarhalda. Ávallt hefur verið kappkostað að bjóða einungis vandaðar vörur á góðu verði.
Stígvél á alla fjölskylduna. MYND/PJETUR
Vandaðir bakpokar fyrir ferðalagið fást
í Ellingsen. MYND/PJETUR
Í Ellingsen er mikið úrval af fallegum útivistarfatnaði.
MYND/PJETUR
Ellingsen leggur áherslu á að bjóða gæðareiðhjól fyrir allan aldur. Hjólin eru þýsk og afar
vönduð. MYND/PJETUR
Síðustu 8-10 ár hafa orðið miklar
breytingar á Grandagarði og þar
hefur sókn ferðamanna í hafnar-
svæðið vegna hvalaskoðunar skipt
sköpum að mati Hjálmars Sveins-
sonar, borgarfulltrúa og for-
manns umhverfis- og skipulags-
ráðs Reykjavíkurborgar. „En það
skiptir líka miklu máli að borg-
in og hafnarstjórnin hafa stutt
þessa þróun og lagt sig fram um að
vernda Grandagarð og Örfirisey
sem atvinnusvæði, þar sem hafn-
sækin starfsemi nýtur ákveðins
forgangs. Þannig er svæðið skil-
greint í nýju aðalskipulagi og deili-
skipulagi. Heimilað var að breyta
gömlu grænu verbúðunum við
Suður bugt og hluta verbúðanna úti
á Granda í veitinga- og kaffihús,
verslanir, vinnustofur og gallerí.“
Einnig nefnir hann viðamikla
og vel heppnaða endurnýjun á
Grandagarði 8 þar sem Sjóminja-
safnið er til húsa. „Safnið hefur
talsvert aðdráttarafl. Borgin
rekur það en hafnarstjórnin kost-
aði endurgerð hússins að miklu
leyti og bryggjugerð sjávarmeg-
in við húsið. Hafnarstjórnin hefur
einnig látið gera upp Bakka-
skemmu við vesturhöfnina. Þar
er nú hinn blómlegi Sjávarklasi,
mikil vægt þekkingarsetur fyrir-
tækja í sjávarútvegi.“
Lengi iðað af lífi
Þrátt fyrir þessar breytingar
undan farinn áratug bendir Hjálm-
ar á að svæðið hafi lengi iðað af
lífi. „Úti í Örfirisey var hinn forni
Hólmakaupstaður, mikilvægasti
verslunarstaður landsins á fyrri
öldum. Og ekki má gleyma því að
við gömlu höfnina hefur í hundr-
að ár verið blómlegt hafnsækið at-
vinnulíf.“
Helstu kostir Grandagarðs
eru eðlilega nálægðin við sjó-
inn. „Þarna er ein stærsta sjávar-
útvegshöfn landsins. Fáar höfuð-
borgir, ef nokkrar, bjóða upp á
slíkt. Svæðið býður um leið upp á
fjölbreytta starfsemi eins og sjá
má á Fiskislóð og Hólmaslóð. Þó
getur ekki hvaða starfsemi sem
er verið á svæðinu. Í deiliskipulagi
svæðisins er m.a. kveðið á um að
þar verði byggðar íbúðir eða hótel
sem er mikilvægt að mínu mati.“
Sjálfsprottin þróun
Aðspurður hvort uppbygging
Grandagarðs eigi sér einhverja
erlenda fyrirmynd svarar Hjálm-
ar því neitandi. „Við viljum þó
forðast þá leið sem sums staðar
hefur verið farin, sem er að gjör-
breyta slíkum svæðum með stór-
felldri íbúðauppbyggingu og hót-
elum. Við viljum að þróunin verði
sem mest sjálfsprottin, en með
ákveðnum almennum skilmálum
og takmörkunum. Þarna getur þró-
ast skemmtilegt og frjótt umhverfi
fyrir alls konar listastarfsemi.“
Stærsta viðbót ársins verð-
ur opnun Marshalls-hússins en
framkvæmdum þar lýkur í haust.
„Þar verður Ólafur Elíasson, einn
þekktasti listamaður heimsins í
dag, með listverkstæði auk Ný-
listasafnsins og Kling og bang
Gallerís. Á jarðhæðinni verður
veitingastaður. HB Grandi á húsið
og hefur gert það upp af mikl-
um metnaði en þetta verður væg-
ast sagt mjög spennandi. Borg-
in er milliliður og leigir húsið af
HB Granda og áframleigir það
síðan til þessara listaðila. Svo má
nefna mikilvægar umbætur á göt-
unni Grandagarði sem eiga eftir
að gera hana vistlegri og örugg-
ari fyrir gangandi vegfarendur og
hjólreiðafólk. Svo má ekki gleyma
hinni árlegu Hátíð hafsins á sjó-
mannadaginn. Þá verður fjör.“
Býður upp á fjölbreytta starfsemi
Ásýnd Grandagarðs hefur breyst mikið undanfarinn áratug. Fjölgun erlendra ferðamanna, stuðningur borgarinnar og framtak einkaaðila
eiga þar stærstan þátt. Á næstunni verður Marshalls-húsið opnað, umbætur á götum verða kláraðar og Hátíð hafsins verður haldin í júní.
„En það skiptir líka miklu máli að borgin og hafnarstjórnin hafa stutt þessa þróun og lagt sig fram um að vernda Grandagarð
og Örfirisey sem atvinnusvæði,” segir Hjálmar Sveinsson, borgarfulltrúi og formaður umhverfis og skipulagsráðs Reykja
víkurborgar. MYND/PJETUR
100246624-01.pdf
GRaNDiNN Kynningarblað
23. apríl 20164
2
3
-0
4
-2
0
1
6
0
4
:3
5
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
7
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
9
3
1
-D
A
F
4
1
9
3
1
-D
9
B
8
1
9
3
1
-D
8
7
C
1
9
3
1
-D
7
4
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
1
2
0
s
_
2
2
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K