Fréttablaðið - 23.04.2016, Blaðsíða 4
Tölur vikunnar 17.04.2016 –23.04.2016
nemenda í
10. bekk finnst
mikilvægt að
líta vel út og
vinna í keppni.
320
laga- og reglu-
bálkar tengjast
starfi Matvæla-
stofnunar.
77
Íslendingar greindust
með hettusótt í fyrra.
27% lægra
verð frá því besta sem
áður þekktist fékk ríkið
með útboði á tölvum.
5,2 milljarðar er endurnýjun
yfirborðs, rafmagns- og flugbrauta-
ljósakerfis í Keflavík talin kosta.
134 einstaklingar frá 24 löndum sóttu um
vernd á Íslandi fyrstu þrjá mánuði ársins.
44%
ný störf urðu til árið 2015.
6.000
Ólafur Ragnar Grímsson
forseti Íslands
tilkynnti að hann ætlaði að bjóða
sig fram til forsetaembættisins í
sjötta sinn. Hann sagði þjóðina
standa frammi fyrir miklum vanda
vegna skorts á trausti. Atburðir síð-
ustu vikna hefðu haft mikil áhrif
á ákvörðunina. Forsetinn benti
á að þúsundir
hefðu verið fyrir
framan Alþingi
og að forsætis-
ráðherrann
hefði sagt af sér.
Ólafur kvaðst
ekki hafa hugleitt
hvort hann myndi sitja í fjögur ár
í embætti ef hann yrði endurkjör-
inn forseti.
Rannveig Grétarsdóttir
framkvæmdastjóri Eldingar
baðst afsökunar á auglýsingu þar
sem óskað var eftir tveimur sér-
fræðingum í ólaun-
uð sjálfboðastörf
við rannsóknir
á hegðun hvala.
Í auglýsingunni
v a r s é r s t a k-
lega tekið fram
að umsækjendur
þyrftu að vera sterkbyggðir, tilbúnir
til að þrífa salerni og jafnvel ælu.
Vinna á bar og færa til þunga hluti.
BHM gerði alvarlegar athugasemdir
við auglýsinguna.
Óttar Guðmundsson
geðlæknir og rithöfundur
sagði ofuráherslu vera á gildi áfalla
í samfélaginu. Enginn mætti lengur
lenda í neinu. Tilvistar-
vandi væri núna
o r ð i n n h l u t i
af geðlæknis-
fræðinni. Hins
vegar gæti lifað
algjörlega sléttri
og felldri tilveru.
Hann sagði upp-
lýsingaáreitið sem við búum við
engum hollt. Það kveikti á kvíða og
óöryggi.
Þrjú í fréttum
Framboð,
æluþrif og
tilvistarvandi
þykir sérlega áhrifaríkt við sveppa-
sýkingu í leggöngum kvenna og
við kláða og sviða á kynfærasvæði
kvenna og karla. Einnig gott við
sveppasýkingum á fótum og tám
og við þrusku í munni.
30%
afsláttur
viðskipTi „Það er allavega augljóst að
leiða Borgunarmálið til lykta,“ segir
Helga Björk Eiríksdóttir, nýr formað-
ur bankaráðs Landsbankans. Helga
er fyrsta konan sem gegnir starfinu.
Hún segir að fylgja þurfi eftir hvort
grundvöllur sé fyrir málsókn vegna
sölu Landsbankans á tæplega þriðj-
ungshlut í Borgun. Þá hafi Lands-
bankinn óskað eftir úttekt Ríkis-
endurskoðunar á viðskiptunum. Auk
þess hafi verið farið yfir verkferla
Landsbankans vegna málsins. Nýtt
bankaráð þurfi hins vegar tíma til að
kynna sér málið áður en tímabært sé
að ræða það nánar.
Fimm af sjö bankaráðsmönnum
Landsbankans gáfu ekki kost á sér
til áframhaldandi setu í ráðinu. Í yfir-
lýsingu sem þeir sendu frá sér þann
16. mars kom fram að fimmmenn-
ingarnir töldu Bankasýslu ríkisins,
sem fer með 98 prósenta eignarhlut
ríkisins í Landsbankanum, hafa
gengið of langt í afskiptum sínum af
rekstri bankans.
„Mér fannst ekki tímabært að
vera með neinar yfirlýsingar á þeim
tímapunkti því að við höfðum til að
mynda ekki fengið niðurstöðu frá
FME og það var nægur frestur til að
svara Bankasýslunni,“ segir Helga um
hvers vegna hún ákvað að taka ekki
þátt í yfirlýsingu bankaráðsmann-
anna. Bankaráðinu var gefinn frestur
til síðustu mánaðamóta til að grípa til
aðgerða vegna Borgunarmálsins. Þá
taldi Fjármálaeftirlitið sölu Lands-
bankans á hlut í Borgun ekki hafa
verið í samræmi við lög. – ih
Taldi yfirlýsinguna vera ótímabæra
Á aðalfundi Landsbankans í síðustu viku. Helga tekur við af Tryggva Pálssyni, sem
gaf ekki kost á sér til áframhaldandi setu í stjórninni. fréTTabLaðið/anTon brink
FáskrúðsFjörður Kostnaður við
uppbyggingu franska spítalans á
Fáskrúðsfirði hefur farið langt fram
úr upphaflegri áætlun og verkefnið
stækkað á framkvæmdatímanum.
Uppbygging franska spítalans var
áætluð um 250 milljónir króna árið
2010 og helmingur kostnaðarins
kæmi frá Frakklandi. Nú er ljóst að
kostnaður mun losa 1,2 milljarða
króna og frönsk yfirvöld hafa ekki
sett krónu í verkefnið.
Minjavernd ber ábyrgð á fram-
kvæmdinni og stýrir henni og hefur
fengið fjölda verktaka til vinnu á
Fáskrúðsfirði. Þorsteinn Bergsson,
framkvæmdastjóri Minjaverndar,
segir það hafa verið nokkra bjart-
sýni að helmingur kostnaðarins yrði
greiddur af frönskum stjórnvöldum.
„Það er nú aðeins svo að góðviljaður
útgerðarmaður frá Frakklandi veitti
okkur eitt þúsund evrur til uppbygg-
ingarinnar, það er allt og sumt. Hitt
höfum við þurft að greiða sjálf. Það
hefur verið svolítið bjartsýnt á sínum
tíma að telja svo mikið fé koma að
utan,“ segir Þorsteinn.
Í viðtalið við Fréttablaðið þann
27. febrúar 2010 segir Þorsteinn
að Frakkar hafi mikinn áhuga á
verkinu og gengið sé út frá því að fá
fjármagn þaðan. „Við sjáum áhuga
í Frakklandi á að veita fjárstuðning
til verksins sem gæti numið allt að
helmingi af kostnaði. Gangi það
eftir mun Minjavernd standa undir
því sem út af stendur.“
Árið 2010 var heildarkostnaður
áætlaður um 245 milljónir og áttu
um 120 milljónir að vera greiddar
af Minjavernd. Nú, sex árum síðar,
hefur kostnaðurinn fjórfaldast.
„Þegar allt verður talið mun verk-
efnið losa 1,2 milljarða króna,“ segir
Þorsteinn. „Þá var hins vegar aðeins
horft til gamla spítalans. Nú hefur
verkefnið aftur á móti stækkað
mikið og mörg hús verið gerð upp
og því hefur kostnaðurinn vaxið
sem því nemur.“
Minjavernd er í eigu ríkisins og
Reykjavíkurborgar sem eiga 38,7
prósenta hlut hvor, og sjálfseignar-
stofnunarinnar Minja. Hildur Sverr-
isdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðis-
flokksins, segir eðlilegt að málefni
Minjaverndar séu rædd oftar á
vettvangi borgarinnar. „Félaginu er
ekki ætlað að vera á framfæri hins
opinbera, hvorki ríkis né borgar
þó þau eigi hlut í því, og á nýjustu
ársreikningum má sjá að eiginfjár-
staða félagsins er sterk. Þar sem
félagið byggir á svo gömlum grunni
er eflaust að finna ástæðu þess að
félagið er í eigu hins opinbera en
það væri eðlilegt að skoða að það
yrði gert alveg sjálfstætt. Ef það er
vilji til að borgin eigi í þessu félagi
væri þó eðlilegt að það væri rætt
oftar á vettvangi borgarinnar hvað
þar fer fram,“ segir Hildur.
sveinn@frettabladid.is
franski spítalinn er að sönnu orðinn bæjarprýði á fáskrúðsfirði. fréTTabLaðið/GVa
Uppbygging Franska spítalans
kostar yfir 1,2 milljarða króna
Upphafleg áætlun Minjaverndar um uppbyggingu franska spítalans á Fáskrúðsfirði hljóðaði upp á 245
milljónir króna og gert var ráð fyrir að helmingur fjárins kæmi að utan. Verkefnið hefur blásið út og ekkert
fé komið frá Frakklandi. Bjartsýni að halda að Frakkar greiddu helminginn, segir formaður Minjaverndar.
Góðviljaður út-
gerðarmaður frá
Frakklandi veitti okkur eitt
þúsund evrur til uppbygg-
ingarinnar, það er allt og
sumt.
Þorsteinn Bergsson,
framkvæmdastjóri
Minjaverndar
Ef það er vilji til að
borgin eigi í þessu
félagi væri þó eðlilegt að það
væri rætt oftar á vettvangi
borgarinnar hvað þar fer
fram.
Hildur Sverrisdóttir,
borgarfulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins í
Reykjavík
2 3 . a p r í l 2 0 1 6 l a u G a r D a G u r4 F r é T T i r ∙ F r é T T a B l a ð i ð
2
3
-0
4
-2
0
1
6
0
4
:3
5
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
9
3
1
-8
B
F
4
1
9
3
1
-8
A
B
8
1
9
3
1
-8
9
7
C
1
9
3
1
-8
8
4
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
1
2
0
s
_
2
2
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K