Fréttablaðið - 23.04.2016, Blaðsíða 90
Fréttablaðið var fyrst borið í hús á þessum degi fyrir fimmtán árum – 23. apríl 2001. Má fullyrða að þá hafi verið brotið blað í sögu
íslenskrar fjölmiðlunar þó fáir hafi
verið sérstaklega trúaðir á að hægt
væri að stofna til útgáfu nýs dag
blaðs, nema ef væru helst þeir sem
að blaðinu stóðu.
Hrakspár
Útgáfu fríblaðs á Íslandi fylgdu ein
dregnar hrakspár þó vel gengi með
útgáfu slíkra dagblaða víða annars
staðar, en hér var það aðallega
kostnaður við dreifingu sem helst
var talinn standa í vegi þess að frí
blað gæti dafnað hér, því ekki var
fyrir að fara fjölsóttum samgöngu
miðstöðvum sem útgáfa fríblaða
erlendis byggði að hluta til tilveru
sína á. Engu að síður er það stað
reynd að aðeins þremur árum frá
upphafi útgáfunnar var Fréttablaðið
mest lesna dagblað landsins – sem
er staða sem aldrei hefur síðan verið
látin af hendi.
Fréttablaðið hefur verið fyrsti
kostur margra fréttaþyrstra Íslend
inga frá upphafi, þó lesturinn hafi
minnkað talsvert frá því að hann var
í hæstu hæðum. Ekki var við öðru
að búast þegar horft er út fyrir land
steinana á þróun annarra dagblaða í
kjölfar uppgangs netmiðla sem hafa
náð sífellt sterkari stöðu á meðan
Fréttablaðið hefur safnað árum.
Hugmynd fæðist
Tilurð blaðsins lýsti Eyjólfur Sveins
son, stofnandi þess, í viðtali í Frétta
blaðinu þegar tíu ár voru liðin frá
stofnun þess. Þar rifjaði hann upp
að hugmyndin grundvallaðist ekki
síst á tilkomu netsins – smærri dag
blöðum fækkaði hratt og fá og stór
dagblöð voru helst talin eiga mögu
leika á að keppa við hina nýju tækni.
Eyjólfur og faðir hans, Sveinn R. Eyj
ólfsson, leiddu Frjálsa fjölmiðlun,
útgáfufélag DV og Dags – blaðs
sem gömlu flokksblöðin Tíminn,
Alþýðublaðið og Vikublaðið/Þjóð
viljinn voru felld undir. Um mitt ár
2000 þótti sýnt að útgáfa Dags var
ekki lífvænleg og leitin að ferskum
hugmyndum hófst því ljóst þótti að
þegar Dagur hætti að koma út yrði
þess ekki langt að bíða að þriðja
blaðið kæmi inn á markaðinn
með Morgunblaðinu og DV. Því
var útgáfu Fréttablaðsins að hluta
til ætlað að verja DV á markaði og
útgáfufélagið Frjálsa fjölmiðlun, en
Dagur hvarf af sviðinu stuttu áður en
Fréttablaðið leit dagsins ljós.
Veturinn 2000 til 2001 var unnið
að undirbúningi Fréttablaðsins í
samstarfi við starfsmenn Frjálsrar
fjölmiðlunar enda mikil reynsla þar
innan dyra af útgáfu. Lykilmenn í
þessari sögu voru þó ekki þar innan
dyra, eða þeir Einar Karl Haraldsson,
fyrsti ritstjóri blaðsins, og Gunn
ar Smári Egilsson, sem að öðrum
ólöstuðum á mest í útliti, uppgangi
og velgengni blaðsins á fyrstu árum
þess.
Í svarthvítu
Upphaflega kom Fréttablaðið út
fimm sinnum í viku og var 24 síður
og að hluta prentað í svarthvítu.
Fljótlega tók að bera á fjárhags
örðug leikum og strax um haustið
fundu starfsmenn það á eigin
Móttökurnar framar björtustu vonum
Fimmtán ár eru liðin frá því að Fréttablaðið kom fyrst fyrir augu lesenda. Vöxtur blaðsins á stuttum tíma kom flestum á óvart.
Fréttablaðið hefur verið mest lesna dagblað landsins í þrettán ár af þeim fimmtán sem það hefur verið gefið út.
Fréttamynd ársins 2009 Pjetur sigurðsson | tuttugu menn voru handteknir í átökum á milli mótmælenda og lögreglu
á suðurlandsvegi 23. apríl 2008. átökin áttu upptök sín í aðgerðum atvinnubílstjóra sem hindruðu umferð um veginn.
Fréttamynd ársins 2010 Gunnar V. andrésson | Biskup Íslands, Karl sigurbjörnsson,
og Geir Waage ræðast við í Biskupsstofu um vandræði kirkjunnar.
Fréttablaðið 15 ára Stiklað á stóru 2001-2016
↣
2 3 . a p r í l 2 0 1 6 l a U G a r D a G U r34 h e l G i n ∙ F r É T T a B l a ð i ð
2
3
-0
4
-2
0
1
6
0
4
:3
5
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
9
3
1
-8
2
1
4
1
9
3
1
-8
0
D
8
1
9
3
1
-7
F
9
C
1
9
3
1
-7
E
6
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
1
2
0
s
_
2
2
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K