Fréttablaðið - 23.04.2016, Blaðsíða 28
Ágúst Bent, betur þekktur sem Bent,
er hluti af rappsveitinni XXX-Rott-
weiler. Hann hefur einnig gefið út
tónlist sjálfur, undir nafninu Bent.
Hann segir mikið hafa breyst í rapp-
senunni undanfarið. Allt sé miklu
skemmtilegra í dag.
„Melódískara og léttara í lund.
Krakkar í dag þora að dansa, ég
elska það.“
Voru Rottweiler frumkvöðlar í
rappsenunni sem ruddu brautina
fyrir það sem síðar kom?
„Já.“
Eru ungu rappararnir betri en
þið, sem voruð aðalgaurarnir?
„Við erum enn þá aðalgaurarnir,
ekki rífa kjaft.“
við erum ennþá aðalgaurarnir
Forgotten Lores kemur að mestu
úr Árbænum og var skipuð Didda
Fel (Kristinn H. Sævarsson), Class B
(Baldvin Þór Magnússon), Byrki B
(Birkir Björns Halldórsson), Intro-
beats (Ársæll Þór Ingvason) og B-Ruff
(Benedikt Freyr Jónsson). FL, eins
og þeir voru kallaðir, gáfu út tvær
plötur: Týndi Hlekkurinn (2003) og
Að heimsenda (2006). Fyrst röpp-
uðu þeir á ensku en skiptu svo í
íslensku. FL kom lengi vel fram með
live hljómsveit, sem fáar rappsveitir
hafa leikið eftir hér á landi.
Forgotten lores
GKR er nýliði í íslensku rappi,
hreinskilinn ljúflingur sem
útskrifaðist
úr Mynd-
listaskólan-
um og rapp-
aði sig svo
inn í hjörtu
allra með
lagi um
að borða
morgun-
mat.
KraKKar
í dag
þora að dansa, ég
elsKa það.
Herra Hnetusmjör gaf út sitt
fyrsta lag, Elías, 2014. Síðan
hefur rapparinn,
ráðherrasonur
úr Kópavogi,
unnið með
öðrum á
borð við
Blaz Roca,
Joe Frazier
og Helga
Sæmundi úr
Úlfi Úlfi.
Kött Grá Pjé er dularfullur rappari
og skáld frá Akureyri sem trónaði
á toppi vinsældalista Rásar 2 heilt
sumar og á vers aldarinnar í laginu
Brennum allt með Úlfi Úlfi.
„Íslenskt rapp er ennþá óttalegur
búningsklefi, kynjahlutföllin eru
þannig að afgerandi hallar á stelpur.
Reykjavíkurdætur eru náttúrulega
samfélagstilraun út af fyrir sig en
eru þrátt fyrir allt bara eitt band. En
áhrifin verða naumast ofmetin, dildó-
arnir og sjónarhornið sem allt í einu
varð til, aftan á karlpung á fjórum
fótum. En rétt undir yfirborðinu er
líka slæðingur af stelpum að gera dót
sem ekki er komið alla leið í útvarp
en er á leiðinni. Krakk&Spaghettí,
Alvia og fleiri. Ég er hrifinn af trukk-
inu, offorsinu, greddunni. Uppreisn
snípsins og allt það. Þessir hlutir eru
að breytast hratt.“
Quarashi er ein af fyrstu rappsveitum
á Íslandi og gaf út plötu 1997 þegar
rapp var ekkert sérstaklega vinsælt.
Þeir rappa á ensku og „meikuðu það“,
hafa spilað um allan heim og urðu
stórir í Japan eins og frægt er. Að
vissu leyti hefur Quarashi staðið fyrir
utan íslensku rappsenuna, mögu-
lega vegna vinsælda sinna og rokk-
áherslna. Í Quarashi
hafa orðið nokkrar
mannabreytingar
en Sölvi Blöndal og
Steinar Orri Fjeld-
sted hafa verið
hjarta bands-
ins gegnum
tíðina en
auk þeirra
voru þarna
Höskuldur
Ó l a f ss o n ,
Omar Swa-
rez og Tiny
að rappa auk
ýmissa hljóð-
færaleikara.
meikuðu það
„Ég get ekki heyrt á krúttkynslóð-
ina minnst, ég er ólétt og meika
það ekki. Ég held að við eigum að
gleyma þessari kynslóð og þess
vegna er gott að rappið hafi tekið
yfir. En þetta er meira en kynslóð,
því Erpur er t.d. mjög gamall, fædd-
ur um 1940, og ég er mjög ung eins
og Herra Hnetusmjör,“ segir Kol-
finna Nikulásdóttir, betur þekkt
sem Kylfan, meðlimur Reykjavíkur-
dætra.
Reykjavíkurdætur komu líkt og
ferskur, femínískur blær inn í rapp-
menningu með fyrsta lagi sínu, sem
heitir einfaldlega Reykjavíkurdætur.
Lagið var frumflutt á Vísi í desember
2013. Síðan hefur sveitin sent frá sér
fjölda laga, stundum skipta þær sér
upp í minni hópa og stundum koma
nýjar inn og aðrar detta út.
Þær koma oftast fram í stórum
hópum og eru þekktar fyrir ögrandi
sviðsframkomu. Fræg er innkoma
þeirra í þátt Gísla Marteins, þar sem
Ágústu Evu Erlendsdóttur, gesti í
þættinum, ofbauð framkoma þeirra
og lét hún sig hverfa úr útsendingu. Þá
varð mikið fjölmiðlamál þegar púað
var á Reykjavíkurdætur sem svöruðu
í sömu mynt á grunnskólahátíð í
Hafnarfirði í febrúar í fyrra.
Umdeildar, en klárlega mikilvægt
innlegg í rappsenuna á Íslandi.
rappið tók krúttkynslóðina yFir
Sturla Atlas er annað nafn Sig-
urbjarts Sturlu Atlasonar en líka
fjöllistahópur sem, ásamt Sturlu,
er skipaður
Loga Pedro
Stefánssyni
og Jóhanni
Kristófer
Stefánssyni.
Þeir gera
tónlist, selja
föt og ljós-
myndir.
Fyrsta „alvöru“ rappsveitin
Rappararnir Móri og Erpur, betur
þekktur sem Blaz Roca, áttu í opin-
berum deilum í fjölmiðlum árið
2010. Deilan snerist aðallega um hvor
þeirra væri meiri frumkvöðull í rappi.
Til stóð að Móri og Erpur græfu
stríðsöxina í þættinum Harma-
geddon á X-inu. Móri mætti í viðtalið
vopnaður hníf og rafbyssu, með Dob-
erman-hund. Upp úr sauð. Erpur átti
fótum fjör að launa.
Málið velktist um í réttarkerfinu,
en endaði með ákæru á hendur Móra
fyrir að hóta Erpi með hnífnum. Þá
var hann ákærður fyrir vopnalaga-
brot vegna rafbyssunnar sem hann
hafði á sér. Móri játaði sök fyrir dómi
2013.
Erpur sagði um árásina í viðtali.
„Hann [Móri] ýtir í mig og fer að
þenja sig. Ég gríp þá í hann og
keyri á hann. Hann dettur og
fer að kýla mig. Þegar ég held
honum niðri dregur hann upp
hníf og byrjar að sveifla honum
á fullu. Ég hleyp í burtu og hann
reynir að stinga mig. Ég tek þá
moppu og lem hann í hausinn. Þessi
hundur var latasti hundur sem ég hef
séð. Ég þakka fyrir það.“
upp úr sauð milli móra og erps
ég hleyp í
burtu og hann
reynir að stinga mig. ég
teK þá moppu og lem
hann í hausinn.
Subterranean var fyrsta „alvöru“
rapphljómsveitin til að gefa út plötu
á Íslandi en margir rapphausar telja
ekki Quarashi-plötuna sem kom út
sama ár með, mögulega vegna þess
að á henni heyrðist í rafmagnsgít-
urum. Central Magnitizm heitir
platan og er stórmerkileg í raun og
veru; þarna gáfu nokkrir unglingar
út frekar heilsteypta rappplötu
þegar það var í raun engin sena fyrir
og auk þess var stelpa að rappa, eitt-
hvað sem hefur því miður ekki farið
mikið fyrir á Íslandi þó að það séu
næstum 20 ár síðan platan kom út.
Cell 7 (Ragna Kjartansdóttir) er enn
að rappa og Magse (Magnús Jóns-
son) er núna að gera reggae með
AmabAdamA.
Arnar Freyr og Helgi Sæmundur eru
báðir frá Sauðárkróki og skipa Úlf
Úlf. Báðir hafa þeir verið lengi að
þrátt fyrir að hafa ekki stofnað Úlf
Úlf fyrr en 2011. Helgi rappaði sem
Evilmind og sigraði í Rímnaflæði
2002, Arnar var Talandi Tungu og
gerði allt vitlaust með laginu Tal-
andi Tungum 2004 þar sem hann
rappaði hratt og sagðist m.a. vera
„sjúkari en myndarlegur kvenmað-
ur að kúka“. Þeir hafa gefið út tvær
plötur, Föstudaginn langa og Tvær
plánetur, og eru í dag ein vinsælasta
hljómsveit á landinu.
sölvi blöndal
og steinar
orri hafa verið hjarta
bandsins í gegnum
tíðina.
ég get eKKi
heyrt á
KrúttKyn-
slóðina minnst.
sjúkari en myndarlegur kvenmaður að kúka
uppreisn snípsins og allt það
ég er hrifinn
af truKKinu,
offorsinu, greddunni.
2 3 . a p r í l 2 0 1 6 l a U G a r D a G U r28 h e l G i n ∙ F r É T T a B l a ð i ð
2
3
-0
4
-2
0
1
6
0
4
:3
5
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
9
3
1
-A
4
A
4
1
9
3
1
-A
3
6
8
1
9
3
1
-A
2
2
C
1
9
3
1
-A
0
F
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
1
2
0
s
_
2
2
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K