Fréttablaðið - 23.04.2016, Qupperneq 20
Laugardagur
11.35 Man. City - Stoke Sport
13.25 Wolfsb. - Augsburg Sport 4
13.25 Hertha B. - Bayern M. Bravó
13.30 Formúla E: París Sport 5
13.50 Liverpool - Newcastle Sport
13.50 Bournem. - Chelsea Sport 2
13.50 Aston Villa - S’ton Sport 6
13.55 Rayo V. - Real Madrid Sport 3
16.10 Everton - Man. Utd. Sport
17.00 Valero Texas Op. Golfstöðin
18.25 Zagreb - PSG Sport 3
18.40 Inter - Udinese Sport
01.00 Box: Golovkin - Wade Sport 2
02.00 UFC 197 Sport
Olísdeild karla, undanúrslit
16.00 Haukar - ÍBV Ásvellir
16.00 Valur - Aftureldin Valshöll
Fylkir – 7. sæti
ÞjáLFARI Hermann Hreiðarsson
Kom inn af miklum krafti í fyrra en blaðran sprakk fljótt. Er á
sínu fyrsta heila tímabili en byrjar mótið í eins leiks banni.
Fylkir er á pappírnum með lið sem getur barist um Evrópusæti
en lognmollan hefur verið mikil í Árbænum undanfarin sumur.
í besta/versta falli
stærsta nafnið sem kom stærsta nafnið sem fór
GenGi fylkismanna undanfarin sex sumur
2010
A-deild
2011
A-deild
2012
A-deild
2013
A-deild
2014
A-deild
2015
A-deild
jose „Sito“ Enrique
Spánverjinn sem bjargaði ÍBV
frá falli er mættur í Árbæinn.
jóhannes Karl Guðjónsson
Miðjumaðurinn yfirgaf Fylki
og fór til HK í 1. deildinni.
12 11 10 9 8 7 6 5 4 3 2 1
9 7 7 7
spá íþróttadeildar 365
1. sæti ? 5. sæti ? 9. ÍBV
2. sæti ? 6. sæti ? 10. ÍA
3. sæti ? 7. Fylkir 11. Víkingur Ólafsvík
4. sæti ? 8. Fjölnir 12. Þróttur
pepsi
spáin
2016
nánar á vísi
Ingimundur Níels Óskarsson vonaðist vafalítið eftir betri
endurkomu í árbæinn í fyrra. Hann verður að gera mun betur í
sumar ætli Fylkismenn að berjast í efri hlutanum.
↣
6 8
Handbolti Undanúrslitin í Olís-
deild karla hefjast í kvöld. Deildar-
meistarar Hauka taka á móti ÍBV á
Ásvöllum og bikarmeistarar Vals
fá Aftureldingu í heimsókn í fyrstu
leikjum liðanna. Vinna þarf þrjá til
að komast í lokaúrslitin, en Haukar
eiga titil að verja. Fréttablaðið fékk
Gunnar Andrésson, þjálfara spút-
nikliðs Gróttu, til að spá í spilin
fyrir undanúrslitin. Gunnar kom
nýliðum Gróttu í úrslitaleik bikars-
ins og í úrslitakeppnina.
Svakalegt einvígi
„Þetta verður svaka rimma. Það er
alveg ljóst,“ svarar Gunnar spenntur
aðspurður um einvígi Hauka og ÍBV.
Haukar unnu tvo af þremur leikjum
liðanna í deildakeppninni en vetur-
inn var framan af nokkur vonbrigði
fyrir Eyjamenn. „Það þekkir enginn
Eyjaliðið betur en Gunnar Magnús-
son. En á móti má segja að það eru
ferskir vindar með Eyjaliðinu. Það
er búið að bíða eftir úrslitakeppn-
inni þar sem deildin var vonbrigði
fyrir liðið. Að mínu mati verður
sigurvegarinn úr þessari rimmu
Íslandsmeistari, allavega miðað við
spilamennskuna hjá þessum liðum
í dag,“ segir Gunnar.
Haukarnir eru óumdeilt besta lið
landsins en hvað þarf ÍBV að gera til
að vinna Hauka þrisvar.
„Eyjamenn þurfa að ná upp frá-
bærum leik í Hafnarfirði þar sem
allt gengur upp. Það verður samt
mjög erfitt því Haukar eru með rút-
ínerað lið. Lykilinn hjá ÍBV verður
að vinna fyrsta leikinn í Hafnarfirði
og setja þetta einvígi í uppnám.
Handboltalega er þetta mjög áhuga-
vert einvígi,“ segir Gunnar sem getur
ekki annað en ausið Haukaliðið lofi.
„Eyjamenn spila væntanlega
sína 5-1 vörn en Haukarnir leysa
hana vel. Þeir gerðu það í öllum
leikjunum á móti okkur þar sem
við spiluðum 5-1 og við áttum ekki
séns. Haukar var eina liðið sem við
unnum ekki. Þetta verður mjög
áhugavert einvígi,“ segir Gunnar.
Hentar Völsurum betur
Gunnar er tiltölulega viss um að
Valur fari áfram úr einvígi sínu
gegn Aftureldingu þrátt fyrir meiðsli
Ómars Inga Magnússonar sem er
mikið áfall fyrir Hlíðarendapilta.
Ólafur Stefánsson verður til taks í
úrslitakeppninni og má væntan-
lega búast við að sjá besta hand-
boltamann Íslandssögunnar taka
nokkrar sóknir fyrir Valsliðið.
„Ég hef meiri trú á Val. Það er
með sterkari hóp og vinnur þetta
einvígi,“ segir Gunnar sem hefur
engar áhyggjur af Val þrátt fyrir að
Framarar hafi farið með þá alla leið
í oddaleik.
„Það hentar Val mun betur að
spila á móti Aftureldingu heldur en
Fram. Vörn Framara hentar Val ekk-
ert vel og Valsararnir voru í bölvuðu
basli í sóknarleiknum.“
Það er ekki flókið hvað Aftureld-
ing þarf að gera til að komast áfram,
að mati Gunnars: „Afturelding þarf
að spila svakalega góðan varnarleik
og fá mikið af mörkum úr hraða-
upphlaupum. Markvarslan er líka
lykill,“ segir hann.
„Ef Afturelding nær upp upp-
stilltum leik í sókninni verður þetta
50-50 einvígi en möguleikar Aftur-
eldingar liggja í markvörslu, sterkri
vörn og hraðaupphlaupum,“ segir
Gunnar Andrésson. tomas@365.is
Haukar eða ÍBV
fara alla leið
Gunnar Andrésson, þjálfari Gróttu, spáir í
spilin fyrir undanúrslitin í Olís-deild karla
fyrir Fréttablaðið. Hann spáir Val áfram gegn
Aftureldingu en rimma Hauka og ÍBV verður
eitthvað til að fylgjast grannt með.
Ólafur Stefánsson er
löglegur með Val í úrslita-
keppninni og
gæti spilað
vegna meiðsla
Ómars Inga
Magnússonar.
Aðalfundur MS-félags Íslands verður haldinn laugardaginn
7. maí 2016 kl. 13 í MS-húsinu að Sléttuvegi 5 í Reykjavík.
Húsið opnar kl. 12:30.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Önnur mál
Tillögur félagsmanns að breytingu á 5. gr. er varðar atkvæðisrétt
og framboð til stjórnar og nefnda og breytingu á 9. gr. er varðar
kjörtímabil formanns verða bornar upp á fundinum. Sjá nánari upp-
lýsingar á heimasíðu félagsins www.msfelag.is.
Vinsamlega athugið að framboð til stjórnar og nefnda skal til-
kynna til skrifstofu eigi síðar en viku fyrir aðalfund og jafnframt að
atkvæðisrétt á aðalfundi hafa einungis þeir sem eru skráðir í félagið
eigi síðar en viku fyrir fundinn.
Virðingarfyllst,
Stjórn MS-félags Íslands
FUNDARBOÐ
Aðalfundur MS-félags Íslands
Sunnudagur
12.55 Sampdoria - Lazio Sport 3
12.55 Sunderland - Arsenal Sport
14.50 Crystal P. - Watford Sport 2
15.05 Leicester - Swansea Sport
17.00 Valero Texas Op. Golfstöðin
17.25 Kiel - Barcelona Sport
18.40 Fiorentina - juventus Sport 2
19.00 Snæfell - Haukar Sport
Olísdeild kvenna, undanúrslit
13.30 Stjarnan - Haukar Mýrin
16.00 Fram - Grótta Framhús
domino’s-deild karla, lokaúrslit
Haukar - KR 82-88
Haukar: Brandon Mobley 28/14 fráköst,
Finnur Atli Magnússon 15/15 fráköst/3
varin skot, Haukur Óskarsson 14, Emil Barja
11/6 fráköst/12 stoðsendingar, Hjálmar
Stefánsson 6, Kristinn Jónasson 3, Kristinn
Marinósson 3, Guðni H. Valentínusson 2.
KR: Michael Craion 27/13 fráköst, Brynjar
Þór Björnsson 21/5 fráköst/8 stoðsending-
ar, Helgi Már Magnússon 20/7 fráköst, Darri
Hilmarsson 9/8 fráköst, Björn Kristjánsson
7, Pavel Ermolinskij 4/6 stoðsendingar.
KR er nú með 2-0 forystu í einvígi
liðanna og getur tryggt sér Íslands-
meistaratitilinn með sigri á heima-
velli á mánudagskvöld. Haukar
héldu spennu í leiknum í gær þar til
að KR náði að síga fram úr á loka-
kaflanum.
Nýjast
bættu ekki íslandsmetin sín
Ólympíufararnir Eygló Ósk Gústafs-
dóttir, Hrafnhildur Lúthersdóttir og
Anton Sveinn McKee kepptu öll á
Íslandsmeistaramótinu í sundi í 50
m laug á fyrsta keppnisdegi í gær en
bættu ekki tíma sína. Reikna má með
að þau séu að stefna á að toppa á Evr-
ópumeistaramótinu í 50 m laug sem
fer fram í London í næsta mánuði.
Þá synti Bryndís Rún Hansen undir
lágmarkinu fyrir EM í London er hún
vann gull í 100 m flugsundi á 1:00,58
mínútum. Keppt verður áfram í dag
en mótinu lýkur annað kvöld.
olísdeild kvenna, undanúrslit
Grótta - Fram 17-16
Markahæstar: Anna Úrsúla Guðmundsdótt-
ir 6/1 (10/2), Þórey Anna Ásgeirsdóttir 5/1
(8/2), Lovísa Thompson 4 (11) - Ragnheiður
Júlíusdóttir 5/1 (21/1), Marthe Sördal 4 (4).
Haukar - Stjarnan
Leiknum var ekki lokið þegar Fréttablaðið
fór í prentun.
Íslandsmeistarar Gróttu eru komnir
í 1-0 forystu gegn Fram eftir æsi-
legan leik í gær. Fram komst í 8-2
forystu eftir fimmtán mínútna leik
en skoraði svo aðeins átta mörk það
sem eftir lifði leiks. Anna Úrsúla
Guðmundsdóttir skoraði sigurmark
Gróttu þegar rúm mínúta var til
leiksloka.
2 3 . a p r í l 2 0 1 6 l a u G a r d a G u r20 s p o r t ∙ f r É t t a b l a ð i ð
Sport
2
3
-0
4
-2
0
1
6
0
4
:3
5
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
2
K
_
N
Ý.
p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
9
3
1
-9
5
D
4
1
9
3
1
-9
4
9
8
1
9
3
1
-9
3
5
C
1
9
3
1
-9
2
2
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
1
2
0
s
_
2
2
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K