Fréttablaðið - 23.04.2016, Page 38

Fréttablaðið - 23.04.2016, Page 38
1960 var búið að byggja verbúð- irnar löngu, sem eru svo einkenn- andi fyrir Grand- ann. Þær voru mjög mikilvægar því þeim var ætlað að vera brim- brjótur og veita skjól og þar höfðu sjómenn aðstöðu til að geyma veiðar færi og jafnvel báta. Guðbrandur Benediktsson „Örfirisey var eyja sem mjótt eiði lá út í og hægt var að ganga eftir á fjöru. Sagan segir að öndvegissúl­ ur Ingólfs okkar hafi komið fyrst að landi þar en það er þó auð vitað aðeins mýta,“ segir Guðbrandur. Nokkur hús og bæir byggðust upp á þessu svæði og síðar var á þess­ um slóðum kaupstaður frá 17. öld og fram til 1780 sem kallaður var Hólmskaupstaður. „Þetta var einn af verslunarstöðum einokunar­ verslunar Dana en hann lagðist af þar sem skilyrðin til verslunar voru erfið, sér í lagi vegna lélegr­ ar hafnaraðstöðu,“ lýsir Guðbrand­ ur en verslunin fluttist í kjölfar­ ið í Kvosina í Reykjavík og stuttu síðar, eða árið 1786, hlaut Reykja­ vík kaupstaðarréttindi. Lítið var um að vera á Grand­ anum eftir að verslun lagðist af enda var ágangur sjávar nokkur og stöðugt flæddi yfir eiðið sem nú er Grandagarður. Miklar breytingar voru þó í vændum enda urðu raddir æ há­ værari sem kröfðust þess að bæta hafnaraðstöðu í Reykjavík. Töldu menn það lykilatriði til að Reykja­ vík gæti vaxið og dafnað. „Síðan var það fljótlega eftir aldamótin 1900 að farið var ræða um að bæta hafnaraðstöðuna í Reykjavík. Ráð­ ist var í þetta stóra og merkilega verk, sem hafnargerðin var, á ár­ unum 1913 til 1917 og má segja að höfnin hafi gjörbylt Reykjavík sem verslunar­ og útvegsbæ,“ segir Guðbrandur. Eiðið út í Örfirisey var þá byggt upp sem hafnargarður. Þar voru lagðir járnbrautarteinar og lest­ ir fluttu grjót úr Öskjuhlíð til að byggja upp höfnina. Var þetta upp­ hafið að uppbyggingu Grandans. Breska hernámsliðið tók allt svæðið undir sig í síðari heims­ styrjöld og var þar með ýmsar varnir. Eftir stríðið fóru ýmis fyrir tæki og verksmiðjur sem tengdust sjávarútvegi að byggja þar upp sína starfsemi, auk þess sem Slysavarnafélagið kom sér þar fyrir fljótlega eftir stríð. „Um 1950 var byrjað að byggja olíugeymana í Örfirisey og um 1960 var búið að byggja verbúðirnar löngu, sem eru svo einkennandi fyrir Grand­ ann. Þær voru mjög mikilvægar því þeim var ætlað að vera brimbrjótur og veita skjól og þar höfðu sjómenn aðstöðu til að geyma veiðar færi og jafnvel báta,“ segir Guðbrandur en bætir við að byggingin hafi vakið nokkra furðu á sínum tíma, en gefi svæðinu vissulega afar sterkan svip. Á síðustu árum hefur hverfið gengið í endurnýjun lífdaga með uppbyggingu Sjóminjasafnsins, nýrri starfsemi í hluta verbúðanna, Sjávarklasanum og tilkomu ýmiss­ ar menningarstarfsemi, verslana og veitingastaða. „Þetta er klassísk þróun sem við sjáum víða í erlend­ um borgum. Listamenn og menn­ ingarstofnanir koma inn og gera hverfin að áhugaverðum áfanga­ stöðum fyrir heimafólk og ferða­ menn,“ segir Guðbrandur og telur mikilvægt að halda í rótgróna starfsemi og þann karakter sem einkennt hefur svæðið síðustu ára­ tugi. „Við viljum að sagan sé sýni­ leg og að einkennum svæðisins, sem tengjast fiskvinnslu og útgerð, verði haldið á lofti,“ segir hann og bendir á að gestir Sjóminjasafns­ ins kunni til að mynda vel að meta nálægðina við Slippinn. Jafnframt má benda á að Reykjavík er eina höfuð borgin í Evrópu þar sem út­ gerð og fiskvinnsla er í öndvegi hafnarinnar. „Núna vinnum við að gerð nýrr­ ar grunnsýningar á Sjóminjasafn­ inu, þar sem við viljum ramma þessa sögu inn. Það má jafnvel sjá fyrir sér að þetta svæði sem áður var pínulítið hornreka geti í fram­ tíðinni stækkað gömlu miðborgina og hugsanlega létt álaginu af henni sem hefur orðið meira með tilkomu aukins ferðamannastraums.“ Höfnin órjúfanlegur hluti af Granda Saga Grandans hefur í gegnum tíðina verið nátengd verslun og sjávarútvegi. Guðbrandur Benediktsson, safnstjóri Borgarsögusafns, segir nýlega þróun á svæðinu ánægjulega en þó þurfi að gæta þess að halda í þann karakter sem einkennt hefur Grandann síðustu áratugi. Um 1930, konur við saltfiskverkun á stakkstæði Alliance við Mýrargötu. Í baksýn eru hús við Mýrargötu, fjær er Grandagarður og Örfirisey. LjósMyndAsAfn ReykjAvÍkUR/MAGnús óLAfsson 1918-1920, þrír karlmenn standa á Grandagarði á járnbrautarteinum sem lágu út í Örfirisey. Í fjöruborðinu liggur seglskúta, drangey BA5. LjósMyndAsAfn ReykjAvÍkUR/MAGnús óLAfsson 1950-1960, fiskvinnsla hjá Bæjarútgerð Reykjavíkur, BúR við Grandagarð. Í þessum vinnslu- sal er í dag rekið sjóminjasafn Íslands. LjósMyndAsAfn ReykjAvÍkUR/PétUR tHoMsen 1947, Bæjarútgerð Reykjavíkur, BúR, Grandagarði 8. við bryggju liggur fjöldi vél- báta og skipa. LjósMyndAsAfn ReykjAvÍkUR/siGURHAns viGniR Um 1960. verbúðir við Grandagarð. skip við bryggju og bátar uppi á landi. LjósMyndAsAfn ReykjAvÍkUR/PétUR tHoMsen Guðbrandur með Grandagarð í baksýn. Hann stendur á þaki sjóminjasafnsins en þar er unnið að gerð nýrrar grunnsýningar um sjávarútveg og siglingar í Reykjavík. Mynd/stefán GRAndinn kynningarblað 23. apríl 20166 2 3 -0 4 -2 0 1 6 0 4 :3 5 F B 1 2 0 s _ P 0 8 3 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 7 8 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 9 3 1 -E E B 4 1 9 3 1 -E D 7 8 1 9 3 1 -E C 3 C 1 9 3 1 -E B 0 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 1 2 0 s _ 2 2 _ 4 _ 2 0 1 6 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.