Fréttablaðið - 23.04.2016, Side 44
Skeifan 3j | Sími 553 8282 | www.heilsudrekinn.is
Blómapottar Mikið úrval afblómapottum í
öl lum stærðum
og gerðum
Tilboð
365.is Sími 1817
ALLRA BESTU VINIR ÞÍNIR
ERU Á GULLSTÖÐINNI
ALLA DAGA KL. 19.00
KL. 19:00ALLA DAGA
GULLSTÖÐIN
Endalaust
ENDALAUS
GSM
1817 365.is
„Leikurinn er aðalnámsleið nem-
enda okkar. Í námskrá leggjum
við mikla áherslu á félagsþroska
og sköpun og vildum fá fram hug-
myndir barnanna um hvernig
leiksvæði þau myndu vilja sjá og
hvað þeim fyndist skemmtilegast
að gera í útiverunni,“ segir Linda
Ósk Sigurðardóttir, deildar stjóri
á Laka. „Við starfsfólkið höfum
heimsótt hina ýmsu leikskóla í
Evrópu í gegnum Evrópusam-
starf og séð ólík leiksvæði. Okkur
fannst krakkarnir alltaf vera að
gera það sama í garðinum og lang-
aði að fá þau til að taka þátt í að
móta nýjar hugmyndir og sýna
frumkvæði.“
Linda segir það hafa komið á
daginn að börnin hafi mjög há-
leitar hugmyndir og oft séu þær
ansi langt frá hugmyndum full-
orðna fólksins um hvað þyki gott
og æskilegt. „Þau vildu til dæmis
grafa göng í gegnum hólinn og
hoppa ofan af húsunum. Í dag eru
leiknum hins vegar settar skorð-
ur af ýmsum öryggisástæðum en
við höfum þó reynt að mæta þeim
á miðri leið.
Meðal annarra hugmynda er
að skreyta garðinn með prjóna-
graffítí, gera hljóðverk, vatns-
vegg, koma upp vindrellum og
veðurstöð og gróðursetja sumar-
blóm ásamt ýmsu öðru,“ upplýsir
Linda og segir ljóst að á leikskól-
anum leynist frumkvöðlar fram-
tíðarinnar.
Hver deild hefur unnið með
verkefnið. „Við höfum prentað út
myndir af hinum ýmsu leiksvæð-
um sem börnin hafa notað sem
efnivið, aðlagað og breytt og er
útkoman að sögn Lindu mjög ólík
eftir aldri barnanna. „Hins vegar
kom í ljós að þau áttu það öll sam-
eiginlegt að vilja fá trampólín í
garðinn. Það er því miður ekki
hægt að verða við því enda alltaf
verið að spara.“
Linda segir það fylgja starfinu
á leikskóla að þurfa að hugsa út
fyrir kassann og finna ódýrar og
ókeypis lausnir. „Við höfum verið
svo lánsöm að þó nokkur fyrir-
tæki hafa lagt okkur lið og látið
ýmis legt af hendi rakna auk þess
sem foreldrar hafa verið dugleg-
ir að koma með dót til að endur-
nýta.“
Í gær var svo haldin lítil
barnamenningar hátíð í leikskól-
anum þar sem afrakstur vinn-
unnar var settur upp. Þar mátti
meðal annars sjá vatnsvegg og
keilur úr kókflöskum með lit-
uðu vatni. Sömuleiðis teikning-
ar barnanna af öllum þeim hug-
myndum sem hafa komið fram.
Verkefnið heldur að sögn Lindu
áfram í allt sumar. „Það stendur
meðal annars til að smíða stórt og
veglegt drullueldhús, foreldrum
til mikillar ánægju, auk þess sem
við ætlum að setja niður krydd-
jurtir og rabarbara svo eitthvað
sé nefnt,“ segir Linda en það er
vilji leikskólans að nemendur geti
í framtíðinni að haft mikið um
það að segja hvernig leiksvæðið
þróast.
Þeim sem vilja fylgjast með verk-
efninu er bent á Instagram-síðuna
utiadleika.
Frumkvöðlar
Framtíðarinnar
Leikskólinn Hlíð í Engihlíð tekur þátt í Barnamenningarhátíð í ár með
verkefninu Út að leika. Börnin á leikskólanum héldu sína eigin litlu
barnamenningarhátíð í gær og sýndu afraksturinn.
Börnin komu með hugmyndir að hljóðverki, vatnsvegg og
vindrellum svo eitthvað sé nefnt.
Börnin vildu meðal annars grafa göng í gegnum hólinn og
hoppa af húsþökum, sem fullorðnum þykir síður æskilegt.
Reynt var að mæta þeim á miðri leið.
Börnin gerðu marg litar keilur úr kókflöskum og lituðu vatni.
Nokkur fyrirtæki lögðu verkefninu lið og létu ýmislegt af
hendi rakna.
Áhersla er lögð á félagsþroska og sköpun í námskrá leik-
skólans.
Markmiðið með verkefninu er að sögn Lindu að fá fram hugmyndir barnanna um
hvernig leiksvæði þau myndu vilja. MYND/ERNIR
Hér má sjá yfirlit yfir hugmyndir barnanna.
2 3 . a p r í l 2 0 1 6 l a U G a r D a G U r6 F ó l k ∙ k y n n i n G a r b l a ð ∙ X X X X X X X XF ó l k ∙ k y n i n G a r b l a ð ∙ h e l G i n
2
3
-0
4
-2
0
1
6
0
4
:3
5
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
7
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
9
3
1
-E
9
C
4
1
9
3
1
-E
8
8
8
1
9
3
1
-E
7
4
C
1
9
3
1
-E
6
1
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
2
0
s
_
2
2
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K