Fréttablaðið - 23.04.2016, Síða 65
| AtvinnA | LAUGARDAGUR 23. apríl 2016 21
Auglýst er laust starf sviðsstjóra þjónustu og miðlunar. Sviðið ber ábyrgð á almennri þjónustu við safngesti, útlánum,
upplýsingaþjónustu og samskiptum við Háskóla Íslands. Sviðið ber ábyrgð á fræðslu um safnkostinn og veitir aðgang að
prentuðum og rafrænum upplýsingum auk stafrænna varðveislusafna, skemman.is og opinvisindi.is. Sviðið hefur um
sjón með ritakosti og lesrýmum safnsins, en aðrir verkþættir sviðsins eru m.a. miðlun upplýsinga á vef og samfélags
miðlum, Landsaðgangur að rafrænum áskriftum (hvar.is), opinn aðgangur, millisafnalán og námsbókasafn.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Situr í framkvæmdaráði og tekur þátt í að móta
og innleiða framtíðarsýn og stefnu safnsins
• Mótar stefnu þjónustusviðs og útfærir í samræmi
við hlutverk og heildarstefnu safnsins
• Hefur frumkvæði að þróun á starfsemi sviðsins
og ber ábyrgð á rekstri þess
• Ber ábyrgð á gerð og framkvæmd verkefna
áætlana, og að viðhlítandi árangur náist
• Ber ábyrgð á góðum samskiptum sviðsins við
safn gesti og hagsmunaaðila safnsins
• Hefur umsjón með öllum verkþáttum sviðsins
• Ber ábyrgð á mannauðsmálum á sínu sviði, s.s.
fylgist með frammistöðu starfsfólks, símenntun
og starfsþróun, virkjar starfsfólk sitt og hvetur
til góðra verka.
Menntunar– og hæfnikröfur
• Meistaragráða sem nýtist í starfi (háskólapróf
í bókasafns og upplýsingafræði áskilið)
• Yfirgripsmikil þekking á viðfangsefnum þjónustu
sviðs
• Farsæl stjórnunarreynsla
• Góð skipulagshæfni, frumkvæði og mikil lipurð
í samskiptum
• Mjög góð tölvukunnátta
• Mjög góð íslenskukunnátta og hæfni í miðlun
upplýsinga
• Góð kunnátta í ensku og Norðurlandamáli
Sviðsstjóri þjónustu
og miðlunar
Um er að ræða fullt starf. Umsókn skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar
og rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Umsóknarfrestur er til og með 8. maí 2016. Öllum umsóknum verður svarað
þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Við ráðningar er tekið mið af jafnréttisáætlun safnsins.
Sótt er um starfið rafrænt á vef Landsbókasafns, www.landsbokasafn.is, undir Bókasafnið > Laus störf.
Nánari upplýsingar veitir Ingibjörg Steinunn Sverrisdóttir, landsbókavörður (iss@landsbokasafn.is)
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn | Þjóðarbókhlöðunni | s. 5255600 | www.landsbokasafn.is
Þekkingarveita í allra þágu
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn er þjóðbókasafn og bókasafn Háskóla Íslands.
Safnið er í forystu um öflun, varðveislu og miðlun upplýsinga og eflir þannig menningu, rannsóknir og nýsköpun.
Við leitum að hressum starfsmanni í verslun okkar
og í önnur tilfallandi verkefni. Vinnutími er frá
9:00-17:00. Skemmtilegur og hress vinnustaður.
Vinsamlega sendið umsókn og ferilskrá í
tölvupósti á aukaraf@aukaraf.is
Meiraprófsbílstjóri
óskast í sumarstarf
AÐFÖNG óska eftir meiraprófsbílstjóra í sumarstarf.
Viðkomandi þarf að hafa próf á vörubifreið með eftirvagn.
Unnið er á vöktum við útkeyrslu á vörum í verslanir Haga.
Sækja skal um starfið á www.adfong.is
Óskað er eftir að ferilskrá fylgi umsókn.
Gerð er krafa um að kennari í málmiðngreinum hafi lokið prófi í
iðn- eða tæknifræði eða vélfræði (vélstjórn) og hafi starfsleyfi sem
framhaldsskólakennari.
Gerð er krafa um að kennari í bílasmíði hafi lokið prófi í iðngrein sinni
og hafi starfsleyfi sem framhaldsskólakennari.
Ráðning og kjör:
Laun eru í samræmi við kjarasamning KÍ og stofnanasamning Borgar-
holtsskóla. Ekki þarf að sækja um á sérstöku umsóknareyðublaði en
í umsókn þarf að greina frá menntun, fyrri störfum og öðru því sem
umsækjandi telur að máli skipti.
Jafnt konur og karlar eru hvött til að sækja um störfin.
Sakavottorð fylgi umsókn.
Á heimasíðu skólans, www.bhs.is, eru upplýsingar um skólann og
starfsemi hans.
Upplýsingar um störf í málmiðngreinum veitir Aðalsteinn Ómarsson,
kennslustjóri, s. 856 1714 og í bíliðngreinum Kristján M. Gunnarsson,
kennslustjóri, s. 894 4351.
Umsóknir ásamt fylgigögnum sendist í tölvupósti til Inga Boga
Bogasonar, skólameistara, ingibogi@bhs.is, fyrir 1. maí 2015.
Skólameistari
Laus störf við Borgarholtsskóla haustið 2016
Eftirtalin störf eru laus til umsóknar hjá Borgarholtsskóla skólaárið 2016-2017:
• Tvær stöður í málmiðngreinum, önnur tímabundin
• Tímabundin staða í bílasmíði
Gott nám í góðum félagsskap
við Mosaveg, 112 Reykjavík, sími 535 1700, fax 535 1701
Borgarholtsskóli
Ertu að leita að talent?
Við finnum starfsmanninn fyrir þig
lind@talent.is bryndis@talent.is
www.talent.is | talent@talent.is
GEFÐU
VATN
gjofsemgefur.is
9O7 2OO3
2
3
-0
4
-2
0
1
6
0
4
:3
5
F
B
1
2
0
s
_
P
0
6
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
6
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
9
3
2
-0
7
6
4
1
9
3
2
-0
6
2
8
1
9
3
2
-0
4
E
C
1
9
3
2
-0
3
B
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
1
2
0
s
_
2
2
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K