Fréttablaðið - 23.04.2016, Page 70

Fréttablaðið - 23.04.2016, Page 70
| AtvinnA | 23. apríl 2016 LAUGARDAGUR26 ÚTBOÐ Borgartúni 7c, 105 Reykjavík Sími 530 1400 www.rikiskaup.is Útboð nr. 20307 Þjónusta þriggja nýrra heilsugæslustöðva fyrir Sjúkratryggingar Íslands Ríkiskaup, fyrir hönd Sjúkratrygginga Íslands, kt. 650309-0220, óska eftir þremur aðilum til að reka þrjár nýjar heilsugæslustöðvar á höfuðborgarsvæðinu, til viðbótar þeim 17 stöðvum sem þegar eru starfræktar. Undanskilin í útboðinu er skólaheilsugæsla. Stöðvar- nar eiga að opna á tímabilinu 1. desember 2016 til 1. febrúar 2017. Bjóðendur verða að uppfylla lágmarkskröfur samkvæmt kröfulýs- ingu velferðarráðuneytis vegna rekstrar heilsugæsluþjónustu, útg. 1.0 og gildir hún um alla heilsugæsluþjónustu landsins. Bjóðendur verða jafnframt að leggja til húsnæði og allan nauðsynlegan búnað. Tilboð bjóðenda sem uppfylla lágmarkskröfur verða metin sam- kvæmt matslíkani í útboðsgögnum. Markmiðið með útboðinu er: • Að auka fjölbreytni í rekstrarformi heilsugæslustöðva að norrænni fyrirmynd og þar með stuðla að fjölgun fagmenntaðra heilbrigðisstarfsmanna innan heilsugæslunnar og breiðari þjónustu. • Að þrjár nýjar heilsugæslustöðvar verði starfræktar á höfuð- borgarsvæðinu þar sem þörfin er mest og auka þar með aðgengi að heilsugæsluþjónustu. Endurgjald fyrir þjónustuna reiknast samkvæmt fjármögnunarlíkani velferðarráðuneytisins fyrir heilsugæslu á höfuðborgarsvæðinu, útg. 1.0. Líkanið byggir að stærstum hluta á aldri, kyni og sjúkdóms- byrði einstaklinga sem skráðir eru á viðkomandi heilsugæslustöð. Einnig koma til þættir s.s. lyfjaafstemming, gæðaviðmið, komur skjólstæðinga utan stöðvar o.fl. Endurgjald vegna húsnæðis fellur ekki undir fjármögnunarlíkanið og er greitt fyrir húsnæðið samkvæmt tilboði bjóðanda þar um. Skilafrestur tilboða og opnun tilboða er hjá Ríkiskaupum 31. maí 2016, kl. 14:00 að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska. Út- boðsgögn verða til afhendingar á vef ríkiskaupa, undir vefslóðinni: http://www.rikiskaup.is/utbod/utb/20307, frá og með miðvikudegi- num 27. apríl 2016. Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn auglýsir laust starf sérfræðings á varðveislusviði. Sérfræðingurinn starfar að verkefnum innan handritasafns en ber einnig ábyrgð á starfsemi Miðstöðvar munnlegrar sögu og upp byggingu safnkosts er varðar munnlegar heimildir. Markmið starfsins eru m.a. að safna, varðveita, skrá og veita aðgang að einka­ skjalasöfnum, munnlegum heimildum og handritum. Sérfræðingur veitir gestum sérfræðiráðgjöf, vinnur með sviðs­ stjóra að verkefnum Miðstöðvarinnar, skráir gögn skv. stöðlum og starfar skv. forvörslureglum safnsins að varðveislu gagna. Helstu verkefni • Sérfræðiráðgjöf og upplýsingaþjónusta • Afgreiðsla á gögnum á lestrarsal, lán og umsýsla tækja til notenda • Öflun, móttaka og skráning einkaskjalasafna og annarra gagna • Umsjón með vef Miðstöðvar munnlegrar sögu og samfélagsmiðlum • Kynningarstarf og fræðsla um söfnun og notkun munnlegra heimilda • Þátttaka í öðrum verkefnum og samstarfi á varðveislusviði Menntunar– og hæfnikröfur • Háskólapróf í sagnfræði, íslensku, þjóðfræði, eða skyldum greinum, meistaragráða sem nýtist í starfi er kostur • Þekking á meðferð, skráningu, flokkun og úrvinnslu einkaskjalasafna og munnlegra heimilda er kostur • Góð skipulagshæfni, sjálfstæði og lipurð í samskiptum • Mjög góð tölvukunnátta og tækniþekking • Mjög góð íslenskukunnátta og hæfni í miðlun upplýsinga Sérfræðingur á varðveislusviði Um er að ræða fullt starf. Umsókn skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Umsóknarfrestur er til og með 2. maí 2016. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Við ráðningar er tekið mið af jafnréttisáætlun safnsins. Sótt er um starfið rafrænt á vef Landsbókasafns, www.landsbokasafn.is, undir Bókasafnið > Laus störf. Nánari upplýsingar veitir Örn Hrafnkelsson, sviðsstjóri varðveislu og stafrænnar endurgerðar (orn@landsbokasafn.is). Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn | Þjóðarbókhlöðunni | s. 525­5600 | www.landsbokasafn.is Þekkingarveita í allra þágu Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn er þjóðbókasafn og bókasafn Háskóla Íslands. Safnið er í forystu um öflun, varðveislu og miðlun upplýsinga og eflir þannig menningu, rannsóknir og nýsköpun. HH Ráðgjöf • Fiskislóð 81 • 101 Reykjavík • Sími: 561 5900 • Fax: 561 5909 • hhr@hhr.is • www.hhr.is Ráðningarþjónusta RÁÐNINGARÞJÓNUSTA Leitar þú að starfsmanni? HH Ráðgjöf er alhliða ráðningarþjónusta og við státum okkur af því að veita framúrskarandi þjónustu hvort sem um ræðir ráðningu ófaglærðra, faglærðra eða sérfræðinga. Ráðgjafar okkar veita fúslega frekari upplýsingar í síma 561 5900 eða sendu okkur tölvupóst: hhr@hhr.is Vinnusparnaður Við vinnum úr umsóknum, leitum í gagnagrunni okkar, tökum forviðtöl og öflum umsagna. Markviss leit Sérskrifaður hugbúnaður gerir leit afar markvissa og tryggir að við finnum hæfasta einstaklinginn. Þriggja mánaða ábyrgð Ef starfsmaður hættir störfum innan þriggja mánaða er ráðning í hans stað án endurgjalds. Ekkert staðfestingargjald Við leggjum áherslu á að rækta árangursríkt og ánægjulegt langtímasamband við viðskiptavini okkar og því greiðir þú ekkert ef ekki verður af ráðningu. Fjöldi hæfra umsækjenda Fjöldi umsækjenda er á skrá í almennum gagnagrunni okkar sem tryggir að við finnum rétta einstaklinginn fyrir starfið. Fjölbreyttar þjónustuleiðir Í boði eru fjölbreyttar þjónustuleiðir sniðnar að þörfum og væntingum viðskiptavina okkar. Þú finnur lausnina hjá okkur. Reynsla og þekking Hjá HH Ráðgjöf starfa sérfræðingar á sviði starfsmanna- mála sem búa m.a. yfir mikilli reynslu af ráðningum og hagnýtri menntun. Sanngjarnt verð Bjóðum mjög hagstætt og samkeppnishæft verð á þjónustu okkar. Gerðu verðsamanburð! HH Ráðgjöf hefur vönduð vinnubrögð og fagmennsku að leiðarljósi. Við leggjum metnað okkar í að veita afburðarþjónustu og finna réttan einstakling fyrir þá aðila sem leita okkar aðstoðar við ráðningu starfsfólks. Kostir þess að nýta sér þjónustu HH Ráðgjafar eru m.a.: 2 3 -0 4 -2 0 1 6 0 4 :3 5 F B 1 2 0 s _ P 0 7 0 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 6 3 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 5 1 K _ N Y .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 5 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 9 3 1 -F 3 A 4 1 9 3 1 -F 2 6 8 1 9 3 1 -F 1 2 C 1 9 3 1 -E F F 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 1 2 0 s _ 2 2 _ 4 _ 2 0 1 6 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.