Fréttablaðið - 23.04.2016, Síða 98

Fréttablaðið - 23.04.2016, Síða 98
Elskuleg eiginkona, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, Margrét Þórarinsdóttir andaðist á Droplaugarstöðum, laugardaginn 16. apríl. Útför hennar verður gerð frá Grensáskirkju, miðvikudaginn 27. apríl, kl. 13. Svavar Einarsson Einar Svavarsson Charlotte Svavarsson Ingibjörg Svavarsdóttir Elías Oddsson Hjörtur Svavarsson Svanhildur Vilbergsdóttir Þórarinn Svavarsson Hjördís Geirdal ömmu- og langömmubörn. Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, Helga Einarsdóttir Þorragötu 5, Reykjavík, lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund laugardaginn 16. apríl. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 27. apríl kl. 13. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Barnaspítalasjóð Hringsins. Margrét Oddsdóttir Hörður Filippusson Helga Brá Árnadóttir Jón Gunnar Þorsteinsson Þórunn Dögg Harðardóttir Jón Erling Ragnarsson og barnabarnabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, Helga Sigríður Bachmann kennari, Guðrúnargötu 7, sem lést á hjúkrunarheimilinu Grund fimmtudaginn 14. apríl síðastliðinn, verður jarðsungin frá Grensáskirkju mánudaginn 25. apríl kl. 15.00. Haraldur Hjartarson Sigríður Sóley Kristjánsdóttir Harold Jordan Ragnheiður Helga Haraldsdóttir Stefán Helgi og Kristín Edda Útfarar- og lögfræðiþjónusta Vesturhlíð 2 Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is Útfararstofa kirkjugarðanna Jón G. Bjarnason Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda Við önnumst alla þætti undir- búnings og framkvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin. Við þjónum með virðingu og umhyggju að leiðarljósi og af faglegum metnaði. ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR Auðbrekku 1, Kópavogi Útfararþjónusta síðan 1996 Vaktsímar: 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is • Allan sólarhringinn ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242 Kristín Ingólfsdóttir Hilmar Erlendsson Sverrir Einarsson Ástkær tengdamóðir, amma og langamma, Aldís Fríða Magnúsdóttir Sléttuvegi 15, lést miðvikudaginn 30. mars á Landspítalanum. Útförin hefur þegar farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þökkum auðsýnda samúð. Sigríður Á. Árnadóttir Aldís G. Sigurðardóttir Kristján H. Arnarsson Hildur B. Sigurðardóttir Erlendur G. Guðmundss. Málfríður D. Sigurðardóttir Orri Þrastarsson Alda G. Friðriksdóttir Friðrik G. Guðnason Anna S. Gunnlaugsdóttir og langömmubörn. Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Dúfa Kristjánsdóttir Kotárgerði 2, Akureyri, lést á öldrunarheimilinu Hlíð sunnudaginn 10. apríl. Útför hennar hefur farið fram. Sérstakar þakkir til starfsfólksins í Hlíð fyrir góða umönnun. Óskar Ingimarsson Óskar Haukur Óskarsson Eyrún Kr. Júlíusdóttir Tómas, Ingvar og Eva Kristján Óskarsson Ómar og Jóhann Rósa Óskarsdóttir Marta og Óskar og langömmubörn. Félagarnir og tónlistarmennirnir Arn- viður Snorrason, betur þekktur sem Addi Exos, og Birgir Þórarinsson, betur þekktur sem Biggi Veira, sameina krafta sína á skemmtistaðnum Paloma í kvöld og efna til tónleika. Í gegnum tíðina hafa þeir nokkrum sinnum leitt hesta sína saman, nú síðast á Akureyri fyrir rúmum tveimur vikum. Báðir hafa þeir verið viðloðandi tón- listarbransann um talsvert skeið. Addi Exos hefur verið starfandi frá árinu 1997 og gefið út þrjár breiðskífur á þeim tíma. Í fyrra hóf hann samstarf með plötusnúðnum Ninu Kraviz og tók saman við plötuútgáfu hennar, трип. Biggi Veira er einna þekktastur fyrir störf sín með hljómsveitinni GusGus og einn- ig eru dj-sett hans vinsæl. Addi segir þá félaga smellpassa saman í plötusnúðabúrinu og því von á góðu fyrir tónlistarþyrsta á laugardagskvöld. „Við erum gott kombó þegar við spilum saman. Svona yin og yang og byggjum kvöldin vel upp. Við höfum tekið eitt og eitt skipti saman í gegnum árin og smell- pössum saman í dj-búrinu,“ segir Addi léttur í bragði. Það er líka nóg um að vera hjá þeim félögum en eftir rúmar þrjár vikur gefur Addi út sína fyrstu plötu í tólf ár. Um EP-plötu er að ræða og ber hún nafnið Down Garden. „Þetta er bara dub techno eins og það gerist best,“ segir Addi þegar hann er beðinn um að lýsa tónlistinni. „Ég endurútgaf tvær af plötunum mínum í fyrra og þær seldust báðar upp. Svo er ég búinn að fá mikið af beiðnum og skila- boðum um að gefa út nýja plötu eftir þessa tólf ára bið. Eftir það er bara búið að pressa á mig úr ýmsum heimshornum og ég ákvað að keyra þetta í gang.“ Ein- göngu er um vínylútgáfu að ræða, í það minnsta fyrst um sinn, og segir Addi þann háttinn yfirleitt hafðan á þegar kemur að útgáfu dub techno-platna. „Það eru eiginlega svona fundamental trúarbrögð innan dub technosins að gefa bara út á vínyl. Hún kemur örugg- lega út á netinu líka eftir rúmlega ár en ég hef í gegnum tíðina selt betur á vínyl.“ Einnig er ný GusGus-plata á leiðinni – hún kemur út í byrjun næsta árs og Biggi vinnur nú að henni. Í lokin bætir Addi svo við að þeir félagar hyggi á frekara samstarf í framtíðinni og muni jafnvel skella í plötu saman. Frítt verður inn á tónleikana sem hefj- ast klukkan 23.00 á skemmtistaðnum Paloma í kvöld. gydaloa@frettabladid.is Smellpassa saman í plötusnúðabúrinu Tónlistarmennirnir og félagarnir Addi Exos og Biggi Veira spila saman á Paloma í kvöld. Þeir vinna báðir að nýju efni og gefur Addi út sína fyrstu plötu í tólf ár eftir þrjár vikur. Biggi Veira og Addi Exos lofa góðri stemningu í kvöld. FréttABlAðið/PjEtur Við erum gott kombó þegar við spilum saman. Svona yin og yang og byggjum kvöldin vel upp. Við höfum tekið eitt og eitt skipti saman í gegnum árin og smell- pössum saman í dj-búrinu. 2 3 . a p r í l 2 0 1 6 l a U G a r D a G U r42 t í m a m ó t ∙ F r É t t a B l a ð i ð tímamót 2 3 -0 4 -2 0 1 6 0 4 :3 5 F B 1 2 0 s _ P 0 9 8 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 9 5 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 9 3 1 -B 8 6 4 1 9 3 1 -B 7 2 8 1 9 3 1 -B 5 E C 1 9 3 1 -B 4 B 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 1 2 0 s _ 2 2 _ 4 _ 2 0 1 6 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.