Skírnir - 01.01.1983, Page 12
10
MATTHÍAS VIÐAR SÆMUNDSSON
SKÍRNIR
b. Líf —> Dauði
Astin fyllir líf Önnu merkingu og lukku um stundarsakir. Til-
vera hennar blómstrar og „dofakuflinn“ rofnar, ísfjötrar vetrar
bresta. Hugarástand hennar finnur sér stað í vorleysingunni —
frelsun og nýsköpun fella sál og náttúru í eina heild.
Bjarni og Anna laðast hvort að öðru á gönguferðum í náttúr-
unni og fyllast af anda vorsins sem eykur veldi sitt með degi
hverjum. Tilfinningalíf þeirra sameinast leysingunni. Hámarki
nær samband þeirra á næturfundinum heima hjá Önnu:
Og sumamóttin breiddi sig ástrík og mild ytir héraðið, þrýsti daggar-
dropunum, himinskærum og frjóvgunarfullunt, á hvert einasta strá, sem rétti
höfuðið upp úr moldinni til að ná í vætuna, svo það gæti lifað . . .(217)
Lífið hvílist og býr sig undir að „njóta ljóssins næsta dag”,
niður vatnanna suðar um landið „eins og draumhlýr ánægju-
boði“(217). Hér sem víðar gæðir Gestur náttúrulýsinguna marg-
ræðri merkingu. Hún skírskotar á táknrænan hátt til sálar-
ástands persónanna jafnframt því sem hún er háði blandin.
En tengslin við náttúruna rofna og ástarsambandið leiðir ekki
til nýs lífs. Líkt og leysingin snemmbæra verður vordraumur
Önnu tortímingunni að bráð. Mynd fossins speglar örlög henn-
ar. Hringiðan sogar í sig löðurstrauma og slengir þeim síðan frá
sér „og perlurnar þutu dálítinn spöl niður eftir ánni, brustu
svo og urðu að engu“(229). Eyðingin er kjarni þessarar myndar;
fegurðin er ekki annað en dauft ljós sem deyr inn í svartnætt-
ið, gyllt ásýnd kaldranalegs veruleika: „Svo beygði hún sig nið-
ur og deyf hendinni dálítið niður í vatnið. Hvað það var ís-
kalt“(229). Hún er komin á fremstu nöf — en dirfist ekki að láta
til skarar skríða:
Maður gat verið kominn að dauða af lífsþreytu og ekki haft nokkra von
um neina breytingu, finna dofakuflinn þrengja að öllu lífs- og andrúmi, og
elska þó lífið eða vilja ekki missa það — þora þó ekki að deyja.(229)
Anna er eigi að síður komin á leiðarenda því gröfin og graf-
arbakkinn koma út á eitt — tilvera hennar verður ekki annað
en langdreginn dauðdagi úr þessu. Leit hennar að frelsi og ást