Morgunblaðið - 10.07.2015, Síða 1

Morgunblaðið - 10.07.2015, Síða 1
F Ö S T U D A G U R 1 0. J Ú L Í 2 0 1 5 Stofnað 1913  160. tölublað  103. árgangur  NÝR OG ENN BETRI GUNNAR NELSON GESTIRNIR ERU ALVEG SÉR ÞJÓÐFLOKKUR BJARGVÆTTUR NORÐLENSKRA KATTA Á VERGANGI EISTNAFLUG 39 KISUKOT Á AKUREYRI 10SPENNANDI BARDAGAKVÖLD 17 7 Við drögum eftir daga í áskriftarleik Morgunblaðsins VÍKKAÐU HRINGINNGuðm. Sv. Hermannssongummi@mbl.is Grísk stjórnvöld lögðu í gærkvöldi fram nýjar tillögur um umbætur í efnahagsmálum landsins. Var það skilyrði fyrir því að Evrópusam- bandið og Alþjóðagjaldeyrissjóður- inn veittu Grikkjum nýtt milljarða evra neyðarlán til þriggja ára. Breska ríkisútvarpið BBC segir að Alexis Tsipras, forsætisráðherra Grikklands, hafi í gær unnið að því að afla tillögunum stuðning innan grísku stjórnarflokkanna. Bæði mun gert ráð fyrir skattahækkunum og skerðingu á eftirlaunum í tillögunum líkt og lánardrottnar hafa krafist. 13 milljarða evra niðurskurður Hafa grískir fjölmiðlar greint frá því að niðurskurðar- og skattatillög- urnar hljóði upp á allt að 13 milljarða evra, eða sem nemur jafnvirði yfir 1.900 milljarða króna. Er það hærri fjárhæð en gert var ráð fyrir í tillög- unum sem hafnað var í þjóðar- atkvæðagreiðslu sl. sunnudag. Ljóst er að skuldavandi Grikkja er gríðarlegur, en ríkið skuldar 320 milljarða evra, jafnvirði 47.400 millj- arða króna. Hafa Grikkir tvívegis fengið neyðaraðstoð frá Evrópusam- bandinu og Alþjóðagjaldeyrissjóðn- um, samtals 240 milljarða evra. Þá voru 107 milljarða evra skuldir Grikkja afskrifaðar árið 2012. Tjáir sig ekki um tillögurnar Angela Merkel, kanslari Þýska- lands, ítrekaði í gær að hún væri andvíg því að Grikkir fengju felldar niður skuldir. Sagðist hún ekki geta tjáð sig um þær tillögur sem Grikkir lögðu í gærkvöldi fyrir Evrópusam- bandið, Seðlabanka Evrópu og Al- þjóðagjaldeyrissjóðinn. „Ég get ekki fjallað um þær fyrr en þessar þrjár stofnanir hafa lagt mat á hvað tillögurnar þýða.“ MGrikkir lögðu fram... »19 Leggja til um 1.900 milljarða niðurskurð AFP  Grikkir gengu að kröfum lánardrottna í gærkvöldi Óvissa Almenningur í Grikklandi er mjög uggandi yfir ástandinu. KR og FH eru bæði komin í aðra umferð í for- keppni Evrópudeildar UEFA eftir að hafa slegið út írska og finnska andstæðinga sína í gær- kvöldi. KR-ingar fóru erfiðu leiðina, lentu undir gegn Cork City á heimavelli og misstu mann af velli með rautt spjald í fyrri hálfleik en náðu samt að jafna og knýja fram framlengingu. Þar skoraði danski miðjumaðurinn Jacob Schoop sigur- markið, 2:1. KR-ingar mæta norska toppliðinu Rosenborg í annarri umferð en FH-ingar, sem sigruðu SJK frá Finnlandi öðru sinni, 1:0 í Kaplakrika, fara alla leið til Aserbaídsjan og mæta Inter Bakú. » Íþróttir Morgunblaðið/Eggert Tíu KR-ingar knúðu fram sigur á Írunum KR og FH komust bæði í 2. umferðina í Evrópudeildinni í fótbolta Ísland væri að öllum líkindum búið að greiða nokkra tugi milljarða í neyðarlán til Grikklands, hefði landið verið eitt aðildarríkja ESB. Samkvæmt útreikningum sem Morgunblaðið hefur undir höndum er áætlað að neyðarlánin sem evru- ríkin og ESB-löndin hafa þegar greitt til Grikklands hefðu þýtt að Ísland hefði þurft að greiða ákveðið hlutfall af vergri landsframleiðslu sinni, 0,127%, í björgunarpakkana tvo sem Grikkland hefur þegar fengið. Það þýddi að Ísland væri búið að greiða um 36 milljarða til Grikklands. Sömu útreikningar benda til þess að ef lánardrottnar Grikklands ákveði þriðja neyðarlánið til Grikkja, sem mun ráðast á sunnu- dag, hefði hlutdeild Íslands orðið um 17 milljarðar króna, miðað við að lánið verði um 100 milljarðar evra, ef Ísland væri eitt aðildar- landa ESB. agnes@mbl.is »6 Hefði reynst Ís- landi dýrt  Ferðamönnum á leið til Íslands stendur til boða að panta kanna- bisefni fyrir komu og fá þau afhent við komu á Keflavíkur- flugvelli. Þá eru til erlendar síður sem aðstoða ferðamenn við að finna slík efni hérlendis og útskýra fyrir þeim viðurlög, verði þeir handteknir af lögreglunni með efn- in. Kannabistúrismi er vaxandi víða um heim, sérstaklega í löndum þar sem neysla kannabisefna hefur ver- ið gerð lögleg, svo sem í Bandaríkj- unum og Hollandi. »20 Panta kannabis áður en þeir lenda Kannabis Baráttan gengur ekki vel.  Frekari samdráttur á kínversk- um byggingamarkaði gæti valdið heimsmarkaðslækkun á álverði. Hlutabréfamarkaðurinn í Kína hækkaði skarpt í gær eftir frjálst fall vikurnar á undan en kínverskt hagkerfi hefur lengi verið orðað við margs konar fjárfestingabólur eftir hraðan vöxt síðustu áratuga. Fari svo að Kínverjar sjái sig til- neydda til að slaka á útflutnings- hömlum á ríkisstyrktum áliðnaði sínum mun það að öllum líkindum leiða til lækkunar á heimsmarkaðs- verði áls og hafa slæm áhrif á af- komu Landsvirkjunar. Áhrif samdráttar í Kína að öðru leyti yrðu óveruleg hér á landi, segir Ásgeir Jónsson, dósent í hag- fræði, við Morgunblaðið. »12 AFP Kína Byggingaverkamenn að störfum í Hong Kong. Þar hafa markaðir skolfið. Kínverjar gætu togað álverð niður

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.