Morgunblaðið - 10.07.2015, Blaðsíða 33
gætu tekið við ábyrgðinni á
hópnum. Hann tók fram að
hann myndi að sjálfsögðu ekki
yfirgefa félaga sína og yrði allt-
af til taks þegar hópurinn
þyrfti á honum að halda.
Við Einar Örn vorum ekki
lengi að finna lausn á vand-
anum og varð raunar fljótt vel
til vina.
Hann hafði þægilega nær-
veru, var einstaklega vel gef-
inn, hjartahlýr og örlátur á
tíma sinn og vinnu. Með Einari
Erni gat spjallið teygst og tím-
inn lengst enda var honum fátt
óviðkomandi þótt hann talaði
mest um ömmu sína í sveitinni
og Vilhjálm bróður sinn. Þau
voru hans fólk.
Eftir að Geðhjálp flutti sig
um set réðst Einar Örn í hluta-
starf til félagsins í um hálfs árs
skeið árið 2014. Hann aðstoðaði
við almenn skrifstofustörf, tók
á móti gestum og vann að ýms-
um breytingum á tölvukerfi fé-
lagsins. Skemmst er frá því að
segja að hann féll vel inn í
starfsmannahópinn, vann öll sín
verk af stakri kostgæfni og var
ákaflega hjálpsamur við aðra
starfsmenn og gesti.
Einari Örn lagði stund á
rússnesku við HÍ og hlakkaði
til að láta þann draum sinn
rætast að leggja stund á tungu-
málið í Rússlandi síðastliðið
haust.
Því miður varð dvölin í Rúss-
landi Einari Erni um megn.
Hann sneri til baka og lagðist
inn á sjúkrahús með alvarleg
líkamleg og andleg mein í lok
síðasta árs. Því miður náði
hann sér aldrei aftur á strik
eftir Rússlandsdvölina.
Lífið fór ekki mjúkum hönd-
um um Einar Örn. Hann gekk í
gegnum erfiðleika í æsku og
missti báða foreldra sína úr ill-
vígum sjúkdómi. Hann hafði
strítt við geðröskun frá unga
aldri og náði ekki tökum á
henni þrátt fyrir eindreginn
vilja allt til dauðadags. Að lok-
um dró sjúkdómurinn hann til
dauða.
Missirinn er sár og áleitnar
spurningar um hvort hefði ver-
ið hægt að hjálpa Einari Erni
leita á hugann. Þeim spurning-
um verður aldrei svarað. Eina
huggunin felst í hlýrri minn-
ingu um góðan dreng, fallegt
bros og innilegt faðmlag.
Hvíldu í friði, elsku vinur.
Anna Gunnhildur Ólafs-
dóttir, framkvæmdastjóri
Geðhjálpar.
„Góðir vinir eru gulls ígildi,“
skrifaði Einar Örn Eiðsson ný-
lega á vegg facebook-síðu sinn-
ar en Einar Örn hafði einmitt
þann mannkost, einn af mörg-
um, að láta vini sína vita hve
mikils hann mat þá og átti ein-
staklega auðvelt með að byggja
fólk upp með orðum og gjörð-
um. Hann þráði að vera til
staðar fyrir aðra og fékk mikið
út úr því að geta létt undir með
ömmu í sveitinni eða hverjum
sem þurfti á að halda hverju
sinni.
Einar Örn var góðum gáfum
gæddur og mjög lífsreyndur en
þó hann sé að kveðja okkur
núna, alltof ungur, hafði hann
því miður sjálfur þurft að
kveðja báða foreldra sína sem
létust langt fyrir aldur fram og
sorgin og söknuðurinn var mik-
ill.
Leiðir okkar Einars Arnar
lágu saman í barnæsku því
mömmur okkar voru góðar vin-
konur.
Ég man eftir að hafa gist hjá
þeim mæðginum þegar Ásdís,
mamma Einars, kenndi í
sveitaskóla út á landi. Þar lék-
um við bróðir minn okkur allan
daginn við Einar Örn og lynti
vel saman.
Svo á námsárunum þegar ég
bjó í London og kom í fríum til
Íslands fékk ég stundum að
fljóta með í matarboð til Ásdís-
ar og Einars og þá áttum við
góðar stundir og spjölluðum
um heima og geima. Á síðustu
árum eftir að Ásdís lést hafa
samverustundirnar verið of fá-
ar en ég hitti Einar Örn nú síð-
ast um jólin og heyrði í honum í
símann af og til síðan þá. Hann
átti sér fallega drauma sem
áttu margir hverjir enn eftir að
rætast og var í leit að jafnvægi
í lífinu. Það er því með sorg í
hjarta sem ég þarf að horfast í
augu við hann hefur kvatt okk-
ur í bili.
Ég óska þess að Einar hafi
nú fundið fagran og góðan veg
sem hentar kærleiksríku
hjartalagi hans. Einar Örn lét
sig varða mannréttindi og hafði
áhuga á að ferðast og nema ný
tungumál en mér er einnig of-
arlega í huga hve ríkan og fal-
legan orðaforða hann hafði og
hve hann átti auðvelt með að
koma hugsun vel í orð og orð-
um vel frá sér.
Takk fyrir góðu kynnin og
farðu vel vinur sæll. Þín verður
sárt saknað og minnst. Heim-
urinn er fátækari án þín.
Þín vinkona,
Þóra Karítas Árnadóttir.
Kæri Einar,
Það eru varla tvær vikur síð-
an ég sá þig síðast. Því er það
alveg fáránlega súrrealískt að
vera að kveðja þig í dag. Þú
sast við eina af tölvunum í
Þjóðarbókhlöðu, ég heilsaði
upp á þig og við töluðum um að
hittast í kaffi. Ég gerði ráð fyr-
ir að rekast aftur á þig þann
daginn, svo ég kvaddi þig aldrei
almennilega.
Það er svo margt sem ég
hefði viljað segja þér ef ég
hefði getað. Hvað þú varst góð
manneskja. Hvað þú varst
fyndinn og skemmtilegur og
hvað þú gerðir margt fyrir
aðra.
En fyrst og fremst hefði ég
viljað segja þér að þú hjálpaðir
mér alveg óendanlega mikið.
Ég vildi bara að ég hefði getað
gert það sama fyrir þig.
Á þessari stundu verður mér
hugsað til orða Steins Steinars:
Að sigra heiminn er eins og að spila
á spil
með spekingslegum svip og taka í
nefið.
(Og allt með glöðu geði
er gjarna sett að veði.)
Og þótt þú tapir, það gerir ekkert til,
því það er nefnilega vitlaust gefið.
Vertu sæll, hvar sem þú ert.
Við sjáumst vonandi aftur.
Anna Kristín
Gunnarsdóttir.
Ég á mér draum
um betra líf.
Ég á mér draum
um betri heim.
Þar sem allir eru virtir,
hver á sínum stað,
í sinni stétt og stöðu.
Þar sem allir eru mettir
gæðum sannleikans.
Þar sem allir fá að lifa
í réttlæti og friði.
Þar sem sjúkdómar,
áhyggjur og sorgir
eru ekki til.
Og dauðinn aðeins upphaf
að betri tíð.
(Sigurbjörn Þorkelsson)
Elsku Einar Örn, frumburð-
ur góðrar vinkonu minnar Ás-
dísar Einarsdóttur, hefur kvatt
okkur í hinsta sinn langt fyrir
aldur fram.
Hann var góðum gáfum
gæddur, ljúfur og elskulegur í
viðmóti.
Nú fyrir skemmstu áttum við
góð samtöl sem eru mér mikils
virði en því miður gafst okkur
ekki tími til að snæða saman í
sumar eins og við ætluðum
okkur að gera. Vilhjálmi Ólafs-
syni og Vilborgu Kristófers-
dóttur og öðrum aðstandendum
og syrgjendum votta ég mína
dýpstu samúð.
Guðbjörg Þórisdóttir.
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JÚLÍ 2015
Raðauglýsingar
Tilkynningar
Auglýsing um skipulags-
mál í Rangárþingi eystra
Samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010,
eru auglýstar eftirfarandi tillögur að deili-
skipulagi í Rangárþingi eystra.
Hvolstún – Deiliskipulagsbreyting
Um er að ræða breytingu á gildandi deili-
skipulagi fyrir Hvolstún, Hvolsvelli. Breytingin
felst í að húsagerðir við Hvolstún 5 og 7, og 14
og 16, breytast úr E-1 í R-2, það er úr einnar
hæðar einbýlishúsum í einnar hæðar raðhús
með innbyggðri bílgeymslu. Austasti hluti
götunnar Hvolstún breytist þannig að gang-
stétt og bílastæði verða austan götunnar en
voru áður vestan hennar. Bílastæði á lóð við
Hvolstún 8 og 10, færast á vesturhluta lóðar.
Byggingarreitir á lóðum breytast sem sam-
svarar færslunni og bindandi byggingarlína á
lóð nr. 8 fellur út.
Steinmóðarbær – Deiliskipulag
Deiliskipulagstillagan tekur til um 3 hektara úr
landi Steinmóðarbæjar ln. 191987.Tillagan
gerir ráð fyrir byggingu íbúðarhúss og bíl-
skúrs sem geta verið sambyggð eða í sitt
hvoru lagi. Stærð getur verið allt að 350 m².
Einnig gerir tillagan ráð fyrir byggingu allt að
20 smáhýsa sem hvert um sig getur verið allt
að 60 m².
Ofangreindar skipulagstillögur er hægt að
skoða á heimasíðu Rangárþings eystra
www.hvolsvollur.is og á skrifstofu skipulags-
og byggingarfulltrúa að Ormsvelli 1, 860
Hvolsvelli, frá 10. júlí 2015. Hverjum þeim
sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er
gefinn kostur á að gera athugasemdir við
tillögurnar og er frestur til að skila inn
athugasemdum til og með 21. ágúst 2015.
Athugasemdum skal skila skriflega á skrif-
stofu skipulags- og byggingarfulltrúa.
F. h. Rangárþings eystra,
Anton Kári Halldórsson
skipulags- og byggingarfulltrúi
Félagsstarf eldri borgara
Árskógar 4 Opin smíðastofa, útskurður kl. 9-16.
Garðabær Opið í Jónshúsi og heitt á könnunni alla virka daga kl.
9.30-16, hádegismatur kl. 12, panta með dags fyrir vara í s. 6171503.
Meðlæti með síðdegiskaffi selt kl. 14-16.
Gerðuberg Opnar vinnustofur kl. 9-15.30. Prjónakaffi kl. 10. Leikfimi
gönguhóps kl. 10, ganga um hverfið kl. 10.30.
Gjábakki Handavinnustofan opin, hádegisverður kl. 11.40, félagsvist
kl. 20.
Gullsmári Vefnaður og tiffanýgler kl. 9, ganga kl. 10 og handavinnu-
stofan opin. Hádegisverður kl. 11.40.
Hvassaleiti 56-58 Opið kl. 8-16. Heitt á könnunni kl. 8.30-10.30 og
blöðin liggja frammi. Hádegisverður kl. 11.30-12.30. Kaffi kl. 14.30.
Opið er inn í vinnustofu og þrektækin á sínum stað.
Norðurbrún 1 Í dag, föstudaginn 10. júlí er engin dagskrá.
Seltjarnarnes Kaffispjall í króknum kl. 10.30. Spilað í króknum kl.
13.30.
Vitatorg Við spilum bingó í dag kl. 13.30, allir velkomnir. Farin verð-
ur dagsferð til Vestmannaeyja 10. ágúst. Siglt til Eyja, skoðunarferð
með fararstjóra um eyjuna, borðaður hádegis- og kvöldverður í Eyj-
um. Allir velkomnir. Uppl. í síma 411-9450 og 822-3028. Handavinnu-
stofan opin, hárgreiðslu- og fótaaðgerðastofur opnar.
Ferðalög
Smáauglýsingar
Bækur
Bókaveisla
Hin landsfræga og
margrómaða júlíútsala
stendur yfir.
50% afsláttur.
Við erum í Kolaportinu,
hafnarmegin í húsinu.
Opið um helgina kl. 11-17.
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Iðnaðarmenn
FASTEIGNA-
VIÐHALD
Við þjónustum þig með
lítil sem stór verk.
Tímavinna eða tilboð.
johann@jaidnadarmenn.is
S. 544-4444/777-3600
www.jáiðnaðarmenn.is
Til sölu
Sumarhúsalóðir í Vaðnesi
Til sölu fallegar sumarhúsalóðir með
aðgangi að heitu og köldu vatni í
vinsælu sumarhúsahverfi í landi
Vaðness í Grímsnes- og Grafnings-
hreppi ca 45 km frá Reykjavík. Vaxta-
laus lán í allt að eitt ár. Allar nánari
upplýsingar í síma 896-1864.
Rotþrær-vatnsgeymar-
lindarbrunnar.
Rotþrær og siturlagnir.
Heildar lausnir - réttar lausnir.
Heitir Pottar.
Lífrænar skolphreinsistöðvar.
Borgarplast.is,
Mosfellsbæ, sími 561 2211
Óska eftir
Staðgreiðum gull, demanta og úr
Hringar, hálsmen, armbönd, Rolex,
Cartier, Patek Philippe o.fl.
Hringdu núna og fáðu tilboð þér að
kostnaðarlausu!
www.kaupumgull.is
Opið alla daga 11–18.
Kringlan – 3. hæð
(Hagkaupsmegin)
Upplýsingar í síma 661 7000.
Ýmislegt
Vélar & tæki
Bendpak og Everet
bílalyftur - 2 og 4 pósta
Nokkrar á lager 4 t og 5 t, gólffríar 2
pósta og 4 pósta bílalyftur. Gæðavara
á góðu verði.
Vélasala Holts.
www.holt1.is
sími 4356662
Hjólbarðar
Matador heilsársdekk Tilboð
175/64 R 14 kr. 10.900
195/65 R 15 kr. 12.900
225/70 R 16 kr. 23.900
245/70 R 16 kr. 26.900
235/60 R 18 kr. 32.215
255/55 R 18 kr. 33.915
255/50 R 19 kr. 38.845
275/40 R 20 kr. 49.900
Framleidd af Continental í Slóvakíu
Kaldasel ehf. dekkjaverkstæði
Dalvegi 16b, 201 Kópavogi.
S. 544-4333.
Útsala á dekkjum
155 R 13
165 R 13
185 R 14
195 R 15
215/70 R 15 C
225/65 R 16 C
225/75 R 16 C
245/70 R 19.5
265/70 R 19.5
285/70 R 19.5
Kaldasel ehf. dekkjaverkstæði
Dalvegi 16b, 201 Kópavogi.
S. 544-4333.
Aukablað um bíla fylgir
Morgunblaðinu alla þriðjudaga