Morgunblaðið - 10.07.2015, Blaðsíða 17
SVIÐSLJÓS
Andri Steinn Hilmarsson
ash@mbl.is
„Þetta er gríðarlega erfiður andstæð-
ingur. Thatch er mikill „striker“ eins
og við segjum, eða mjög góður stand-
andi,“ segir Haraldur Dean Nelson,
framkvæmdastjóri Mjölnis, um and-
stæðing Gunnars Nelson, sonar síns,
á bardagakvöldinu „UFC 189“ sem
fer fram á MGM Grand Garden
Arena í Las Vegas klukkan tvö að-
faranótt sunnudags að íslenskum
tíma.
Gunnar mætir hinum bandaríska
Brandon Thatch í mikilvægasta bar-
daga sínum til þessa á stærsta bar-
dagakvöldi í sögu UFC, en aldrei hef-
ur selst eins mikið af miðum fyrir eitt
bardagakvöld. Bardagi Gunnars er
aðalbardagi nr. tvö af fimm. Aðal-
bardaginn veður á milli æfingafélaga
Gunnars, Conor McGregor og Chad
Mendes.
Mæta hungraðir í búrið
Ljóst er að bæði Gunnar og Thatch
mæta hungraðir í búrið á morgun.
Þeir töpuðu báðir síðustu bardögum
sínum, Gunnar í október og Thatch í
febrúar.
Thatch byrjaði UFC-feril sinn á
tveimur mjög öruggum sigrum árið
2013. Hann var frá keppni vegna
meiðsla árið 2014 en mætti svo fyrr-
verandi UFC-meistaranum Benson
Henderson í febrúar sl. í viðureign
sem lauk með sigri Henderson með
uppgjafartaki í fjórðu lotu af fimm.
Thatch hafði hins vegar unnið allar
þrjár loturnar fram að því. Tap
Thatch var það fyrsta síðan árið 2008,
en alls hefur hann unnið 11 af 13 bar-
dögum sínum, þar af sjö sinnum með
rothöggi og komu fjögur þeirra á
fyrstu 20 sekúndum bardagans. Allir
sigrar Thatch hafa komið í fyrstu lotu
og hefur hann því aðeins tvisvar bar-
ist lengur en eina lotu, en lotið í lægra
haldi í bæði skiptin.
„Hann er mjög ágengur í byrjun
og tímasetningarnar eru góðar. Að
mínu mati er hann langhættulegasti
andstæðingur sem Gunnar hefur
mætt,“ segir Haraldur.
Þýðir ekki að hita upp í búrinu
Thatch mun að öllum líkindum
mæta óður til bardagans frá fyrstu
sekúndu. Gunnar er meðvitaður um
það að sögn Haraldar og því verður
hann einnig að vera klár frá fyrstu
sekúndu. „Það þýðir ekkert að hita
sig neitt upp í búrinu,“ segir Har-
aldur. Annars gæti Thatch sótt af-
mælisgjöfina sína snemma, en hann
fagnar 30 ára afmæli á morgun.
Fer ekki með Gunna í gólfið
„Ég held að Gunni komi okkur á
óvart standandi. Thatch mun ekki ná
höggum á hann að neinu ráði og
Gunni tekur hann í gólfið. Ég spái því
að Gunni sigri með hengingu í gólf-
inu,“ segir Haraldur þegar blaðamað-
ur spyr hann umbúðalaust hvernig
hann telji að bardaginn fari á morgun.
Gunnar hefur æft undanfarinn
mánuð með Conor McGregor og öðr-
um bardagamönnum í glæsihýsi
McGregors, Mac Mansion, í Las
Vegas. Þar áður æfði Gunnar í
Mexíkó í sex vikur fyrir bardagann.
Haraldur segir að þrátt fyrir að
Thatch sé enginn nýgræðingur á
gólfinu, og sé með góðar fellur, séu
litlar líkur á að hann reyni að ná
Gunnari í gólfið. „Gunni er bara svo
gríðarlega góður gólfglímumaður. Ef
bardaginn fer í gólfið snemma í lotu
mun Thatch eiga mjög erfitt með að
rétta úr sér,“ segir hann og bætir við
að Thatch muni líklega reyna hvað
hann getur að halda bardaganum
standandi.
„Thatch er með mjög góðar fellur
og er mjög fljótur að komast á fætur
ef hann er tekinn niður. Ég held að
hann muni ekki reyna að taka Gunna
niður. Gunni væri hættulegri á bak-
inu á gólfinu með Thatch ofan á sér
heldur en Thatch ofan á Gunna,“ seg-
ir Haraldur.
Lærði mikið af því að tapa
Gunnar hefur sjálfur sagt að hann
hafi lært mikið af bardaganum á móti
Rick Story í október, sem hann tap-
aði á stigum, og tekur Haraldur í
sama streng.
„Við erum að vona að honum hafi
tekist að yfirstíga tapið og við sjáum
nýjan og betri Gunna á laugardag.“
Nýr og betri Gunnar Nelson
Gunnar Nelson snýr aftur í UFC eftir tap í síðasta bardaga Stærsta bardagakvöld í sögu UFC
Brandon Thatch er hættulegasti andstæðingur sem Gunnar hefur mætt að mati föður hans
Morgunblaðið/Árni Torfason
UFC-stjarna Andstæðingur Gunnars, Bandaríkjamaðurinn Brandon Thatch, þykir betri en Gunnar í standandi bardaga en Gunnar þykir betri í gólfglímu.
FRÉTTIR 17Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JÚLÍ 2015
Garðsláttuvélar
og garðtraktorar
Mikið úrval sláttuvéla, garðtraktora og ásetusláttuvéla
ÞÓR HF
Opnunartími:
Opið alla virka daga
frá kl 8:00 -18:00
Lokað um helgar
Reykjavík:
Krókháls 16
110 Reykjavík
Sími 568-1500
Akureyri:
Lónsbakka
601 Akureyri
Sími 568-1555
Vefsíða:
www.thor.is
Aðalbardag-
inn verður á
milli Írans
Conor
McGregor og
Bandaríkja-
mannsins
Chad Men-
des. Þeir
munu berj-
ast um
bráðabirgða-
titil UFC eftir að Jose Aldo, sem
átti að berjast við McGregor,
þurfti að draga sig úr keppni
vegna rifbeinsmeiðsla.
McGregor nýtur mikilla vin-
sælda hér á landi enda hefur
hann æft mikið með Gunnari
Nelson og er vægast sagt mjög
skemmtilegur karakter.
McGregor á
móti Mendes
AÐALBARDAGI KVÖLDSINS
Conor
McGregor
26 ára
180 cm
Fimm UFC bardagar
Stórhættulegur í gólfinu
Byrjaði í karate 13 ára gamall
Á 30 ára afmæli á morgun
187 cm
Fjögur rothögg á fyrstu 20 sek.
Þrír UFC bardagar
Byrjaði í karate fjögurra ára gamall
Allir sigrar hafa komið í fyrstu lotu
Gunnar Nelson Brandon Thatch
Bein útsending frá viðureign Gunn-
ars Nelson í Las Vegas verður á
Stöð 2 Sport. Fjarskiptafyrirtækið
Nova verður með mann á staðnum,
sjónvarpsmanninn Auðunn Blöndal,
sem mun „snappa“ inn á Snapchat-
forritið. Hægt verður að fylgjast
með Audda undir notendanafninu
#novaisland á Snapchat.
Auk þess að gefa viðskiptavinum
Nova innsýn í lífið í Las Vegas mun
Auðunn lýsa því sem fyrir augum
ber í bardaganum gegn Brandon
Thatch.
Fjölmargir aðrir Íslendingar eru
komnir til Las Vegas til að fylgjast
með viðureigninni.
Auðunn „snappar“
beint frá Las Vegas
Guðmundur Rúnar
Ranglega var farið með nafn Guð-
mundar Rúnars Ævarssonar, stýri-
manns á bátnum Jóni Hákoni BA, í
blaðinu í gær. Beðist er velvirðingar
á rangherminu.
LEIÐRÉTT