Morgunblaðið - 10.07.2015, Blaðsíða 19
FRÉTTIR 19Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JÚLÍ 2015
Guðm. Sv. Hermannsson
gummi@mbl.is
Grísk stjórnvöld lögðu í gærkvöldi
fram nýjar tillögur um umbætur í
efnahagsmálum landsins, en það var
skilyrði fyrir því að Evrópusam-
bandið veitti Grikkjum nýtt milljarða
evra neyðarlán til þriggja ára.
Ríkisstjórn Alexis Tsipras, for-
sætisráðherra Grikkja, hafði fengið
frest til miðnættis til að leggja fram
efnahagsáætlun sem önnur Evrópu-
sambandsríki mætu raunhæfa. Fjár-
málaráðherrar evruríkjanna munu
fjalla um áætlun Grikkja á laugardag
og leiðtogar allra aðildarríkja ESB
koma saman á sunnudag í Brussel til
að fjalla um hvort veita eigi Grikkjum
frekari aðstoð. Gríska stjórnin ætlar
einnig að leggja áætlunina fyrir gríska
þingið.
Breska ríkisútvarpið BBC segir
að Tsipras hafi í gær unnið að því að
afla tillögunum stuðning innan grísku
stjórnarflokkanna. Bæði mun gert
ráð fyrir skattahækkunum og skerð-
ingu á eftirlaunum í tillögunum eins
og lánardrottnar hafa krafist. Að sögn
grískra fjölmiðla hljóða niðurskurðar-
og skattatillögurnar upp á rúmlega 13
milljarða evra. Er það hærri fjárhæð
en gert var ráð fyrir í tillögunum sem
hafnað var í þjóðaratkvæðagreiðslu á
sunnudaginn var.
Grikkir þurfa á lánsfé að halda til
að geta opnað banka landsins á ný, en
þeir hafa verið lokaðir í nærri hálfan
mánuð. Þá hafa leiðtogar evruríkj-
anna sagt að Seðlabanki Evrópu muni
loka lánalínum til Grikkja náist ekki
samkomulag um skuldirnar.
Engan „hárskurð“
Donald Tusk, forseti leiðtoga-
ráðs Evrópusambandsins, sagði í gær
að legðu Grikkir fram raunhæfar um-
bótaáætlanir yrðu lánardrottnar
þeirra einnig að leggja fram raun-
hæfar áætlanir um hvernig gera ætti
Grikkjum kleift að standa undir
skuldabyrðinni.
Þýskaland, Holland, Finnland og
nokkur ríki í Austur-Evrópu hafa
verið treg til að fallast á nýja björg-
unaráætlun. Vilja þau að Grikkir fall-
ist á þær umbótatillögur sem gríska
þjóðin hafnaði í þjóðaratkvæða-
greiðslu á sunnudag áður en teknar
verði upp viðræður um niðurfellingu
skulda.
Þannig ítrekaði Angela Merkel,
kanslari Þýskalands, í gær að hún
væri andvíg því að Grikkir fengju
felldar niður skuldir.
„Ég hef sagt að ég tel klassískan
„hárskurð“ ekki koma til greina og sú
skoðun mín hefur ekki breyst síðustu
daga,“ sagði Merkel við blaðamenn í
Sarajevo í Bosníu í gær þar sem hún
var í heimsókn.
Merkel sagðist ekki geta tjáð sig
um þær tillögur sem Grikkir lögðu í
gærkvöldi fyrir Evrópusambandið,
Seðlabanka Evrópu og Alþjóðagjald-
eyrissjóðinn.
„Ég get ekki fjallað um þær fyrr
en þessar þrjár stofnanir hafa lagt
mat á hvað tillögurnar þýða, hvort
áætlunin dugi næstu þrjú ár og hvort
hún tryggi að skuldir Grikklands
verði sjálfbærar.“
Christine Lagarde, fram-
kvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyris-
sjóðsins, sagði hins vegar í vikunni
þegar hún ávarpaði ráðstefnu í Wash-
ington að lánardrottnar Grikkja yrðu
að endurmeta skuldirnar svo að hægt
væri að gera nýtt og raunhæft lána-
samkomulag.
Almenningur uggandi
Almenningur í Grikklandi virðist
síðustu daga hafa haft vaxandi
áhyggjur af því að niðurstaðan í þjóð-
aratkvæðagreiðslu á sunnudag, þar
sem niðurskurðartillögum var hafn-
að, muni leiða til þess að Grikkland
hætti evrusamstarfinu.
„Ég kaus „nei“ en ég vil að
Grikkland verði áfram á evrusvæð-
inu,“ sagði 46 ára gamall ritari á lög-
fræðiskrifstofu í Aþenu við AFP-
fréttastofuna, sem segir meirihluta
landsmanna þessarar skoðunar.
Alþjóðlegir fjármálamarkaðir
virtust í gær veðja á að samkomulag
myndi á endanum nást milli Grikkja
og lánardrottna þeirra. Þannig hækk-
uðu hlutabréfavísitölur í evrópskum
kauphöllum í gær og gengi evrunnar
hélst nokkuð stöðugt.
Grikkir lögðu fram nýjar tillögur
AFP
Í Aþenu Kona gengur framhjá kebabvagni í Aþenu. Stefnt er að niðurstöðu um skuldamál Grikkja á sunnudag.
Fallast á flestar kröfur lánardrottna, þar á meðal um skattahækkanir og niðurskurð á eftirlaunum
Áform um rúmlega 13 milljarða evra niðurskurð ríkisútgjalda, jafnvirði 1.920 milljarða króna
Skuldavandi Grikkja
» Gríska ríkið skuldar 320
milljarða evra, jafnvirði 47.400
milljarða króna.
» Grikkir hafa tvívegis feng-
ið neyðaraðstoð frá Evrópu-
sambandinu og Alþjóðagjald-
eyrissjóðnum, samtals 240
milljarða evra. Þá voru 107
milljarða evra skuldir afskrif-
aðar árið 2012.
» Grikkir hafa nú óskað eftir
nýju neyðarláni til þriggja ára.
Styðja ESB Grískir stuðningsmenn Evrópusambandsins efndu til mót-
mælaaðgerða framan við þinghúsið í miðborg Aþenu í gær.
Ung kona, sem slasaðist alvarlega í
bílslysi í Skotlandi, lá í bílnum í þrjá
sólarhringa við hlið unnusta síns,
sem lést í slysinu. Lögregla fékk til-
kynningu um slysið en tilkynning-
unni var af einhverjum ástæðum
ekki sinnt. Konan, sem heitir Lam-
ara Bell og er 25 ára, liggur á
sjúkrahúsi í öndunarvél og er í lífs-
hættu. Bíll, sem hún og unnusti
hennar, John Yuill, 28 ára, voru í fór
út af hraðbraut skammt frá Stirling
í Skotlandi sl. sunnudag en bíllinn
fannst ekki fyrr en á miðvikudag.
Lögreglan í Skotlandi viður-
kenndi í gær, að tilkynning hefði
borist á sunnudag um bílflak á engi
við veginn. Verið sé að rannsaka
hvers vegna ekki var brugðist við
þeirri tilkynningu.
Sinntu ekki tilkynningu um umferðarslys
Morð á 12 ára gamalli norskri stúlku
árið 1999 er hugsanlega upplýst.
Karlmaður sem var á sínum tíma
dæmdur fyrir morðið en síðan sýkn-
aður hefur nú verið handtekinn á ný.
Kristin Juel Johannessen var 12
ára í ágúst 1999 þegar hún fannst
látin skammt frá heimili sínu nálægt
Larvik í Noregi. Krufning leiddi í
ljós að stúlkan hafði verið kyrkt.
Fyrst var 54 ára gamall karlmaður
handtekinn og ákærður fyrir morðið
en fallið var frá ákærunni skömmu
síðar. Í maí árið 2000 var 23 ára gam-
all karlmaður frá Sandefjord hand-
tekinn í Stokkhólmi þegar hann kom
frá Eistlandi. Maðurinn var ákærður
og í kjölfarið dæmdur í 12 ára fang-
elsi fyrir morðið.
Dómnum var áfrýjað en áður en
málið var tekið fyrir í áfrýjunardóm-
stóli féll ríkissaksóknari Noregs frá
ákærunni á grundvelli niðurstöðu
DNA-rannsókna á hári sem fannst á
morðstaðnum. Þótti ljóst að hárið
væri ekki af manninum eins og upp-
haflega var talið. Maðurinn var í
kjölfarið formlega sýknaður af
ákærunni. Hann fékk síðar jafnvirði
um átta milljóna íslenskra króna í
bætur frá norska ríkinu.
En nú hafa verið gerðar nýjar
rannsóknir á hárinu og í kjölfarið var
maðurinn handtekinn á ný.
Gamalt morð-
mál að leysast?
Sýknaður maður handtekinn aftur
Laugavegi 7, 101 Reykjavík - Sími: 551-3033 Flo
ttir í fötu
m
Við seljum frægu
buxurnar
– frábært úrval