Morgunblaðið - 10.07.2015, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 10.07.2015, Blaðsíða 20
FRÉTTASKÝRING Ingvar Smári Birgisson isb@mbl.is Icelandair er eina flugfélagið íEvrópu með beint flug tilþeirra ríkja Bandaríkjannasem hafa lögleitt framleiðslu, sölu og neyslu kannabisefna sam- kvæmt athugun blaðamanns. Eru það Alaska, Colorado, Oregon og Washington-ríki, en hægt er að fljúga beint til ríkjanna frá Keflavík- urflugvelli í þotum Icelandair. Guðjón Arngrímsson, upplýs- ingafulltrúi Icelandair, kannaðist við þá staðreynd að Icelandair flygi til allra ríkja Bandaríkjanna sem hafa lögleitt kannabisefni. „Það var ein- hver sem áttaði sig á þessu hérna og grínaðist með þetta,“ segir Guðjón. „Um er að ræða svæði þar sem menntunarstig er nokkuð hátt og al- mennt frjálslyndi. Portland, Seattle, Denver: þarna býr frjálslynt og menntað fólk, sem er oft líka útivist- arfólk.“ „Bræla jónu eða tvær“ Í það minnsta einn íslenskur ferðavefur hefur ekki látið beint flug Icelandair til kannabishöfuðborga Bandaríkjanna framhjá sér fara. „Hvernig hljómar að taka inn alla áhugaverðustu staðina í Denver og nágrenni og bræla jónu eða tvær í ró- legheitum svona rétt á meðan ekið er milli staða?“ Svona hljómar byrjunin á frétt á ferðasíðunni fararheill.is. Við lok fréttarinnar er lesendum síð- an beint inn á leitarvél sem hjálpar þeim að finna hótelgistingu í Denver, stærstu borg Colorado-ríkis. Eigandi síðunnar kveðst ekki vita til þess að fólk hafi pantað ferðir til Denver í gegnum síðuna í því skyni að reykja kannabisefni en hann hefur þó heyrt fáeinar sögur af Íslendingum sem hafa farið til Bandaríkjanna til að neyta kannabisefna. Colorado og Washington voru fyrst bandarískra ríkja til að leyfa framleiðslu, sölu og neyslu kannabis- efna, árið 2012. Síðan þá hefur kannabistúrismi í ríkjunum tveimur sprungið út og skilað milljörðum í ríkiskassann. Samhliða því starfa nú fjölmargir í kannabistengdum at- vinnugreinum og þjónustuaðilar njóta góðs af ferðamannastraumn- um. Einna fremst í kannabisferðum í Colorado er „420 Tours“. Fyrirtækið býður m.a. upp á helgarpakka sem kostar 1.295 bandaríska dollara, eða 175 þúsund krónur. Í pakkanum eru gestir sóttir á flugvöllinn í Denver í lúxusbíl, í hverjum kannabisreyk- ingar eru leyfðar, og eru keyrðir á fjögurra stjarna kannabisvænt hótel. Þar bíður þeirra gjafapoki fullur af kannabistengdum vörum. Næstu tveimur dögum verður síðan eytt í að heimsækja ræktendur kannabispl- antna og smakka úrvalið undir traustri leiðsögn. Auk þess fara gest- ir á matreiðslunámskeið þar sem þeir læra að elda upp úr kannabis- plöntunni, en sumir vilja frekar inn- byrða kannabis í gegnum mat en reyk. Alkunna er að Íslendingar hafa farið til Amsterdam, höfuðborgar Hollands, til að reykja kannabis lög- lega á kaffihúsum. Borgin, sem hefur upp á margt að bjóða, hefur laðað gesti hvaðanæva sem vilja skemmta sér á kostnað frjálslyndrar fíkniefna- stefnu Hollands. Sumir íbúar borgarinnar eru þó ekki sáttir við kannabistúrismann og vilja þrengja að kannabiskaffihúsum. Þá er spurn- ing hvert kannabistúristarnir fara næst. Ef til vill til Bandaríkjanna, þar sem þeim er tekið opnum örm- um. Kannabistúrismi skilar milljörðum Morgunblaðið/Júlíus Ræktun Kannabistúrismi er vinsæll í þeim ríkjum Bandaríkjanna sem hafa lögleitt kannabisefni. Icelandair flýgur til allra þeirra ríkja. 20 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JÚLÍ 2015 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ LandsbankiÍslandshefur boð- að að senn hefjist framkvæmdir við nýjar höfuð- stöðvar bankans á lóð við hafnarbakkann, í gömlu Aust- urhöfninni. Að sögn forráðamanna bankans gætu framkvæmdir við bygginguna hafist í lok næsta árs eða byrjun ársins 2017. Þarna verður augljóslega um myndarlegt framtak að ræða, en gert er ráð fyrir að heildarstærð byggingarinnar verði 16.500 fermetrar. Á fyrri stigum málsins hafa verið gerðar nokkrar athugasemdir við þessi áform bankans. Steinþór Pálsson, banka- stjóri Landsbankans, færir á hinn bóginn fram sannfærandi rök fyrir þessari ákvörðun. Samkvæmt þeim er um hag- felldan kost fyrir bankann að ræða, enda skilar fjárfestingin sér til baka á tiltölulega skömmum tíma. Bankastarfsemi hefur gjör- breyst á fáeinum árum hér á landi sem annars staðar og viðskiptavinir bankanna stunda nú drýgstan hluta samskipta sinna við þá án þess að mæta persónulega í bank- ann sinn. Segja má að banki og við- skiptavinir hans séu núorðið í eins konar viðskiptalegri fjar- búð. Í þessu felst mikið hag- ræði, þótt nokkurs söknuðar gæti við þennan samdrátt í mannlegum samskiptum. Þrátt fyrir þess- ar breytingar fer ekki á milli mála að öflugur hópur fólks verður við störf í höfuð- stöðvum bankans. Bygging Landsbankans í miðbænum er til þess fallin að styrkja hann til frambúðar, en aðrir bankar hafa flutt úr miðbænum með starfsemi sína, enda gafst þeim ekki endilega kostur á hagkvæmum lóðum um þær mundir. Ýmsum þótti allt of langt gengið í framtaki hins opin- bera, fyrir hönd skattgreið- enda, þegar ráðist var í gerð tónlistarmusterisins Hörp- unnar. Rök sem færð voru fram í því samhengi áttu full- an rétt á sér. Byggingin er ris- in og starfsemi í fullum gangi í glæsilegum salarkynnum. Rétt hefur reynst að rekst- urinn þar yrði aldrei sjálfbær í fjárhagslegum skilningi. En það breytir ekki því að byggingin sem slík er prýðileg til að sjá og reksturinn er aug- ljóslega styrkjandi fyrir mið- bæjarmyndina. Enn er þó nokkurt sár á þessu svæði og æskilegt að það verði fullbyggt sem fyrst. Ákvörðun forráðamanna Landsbanka Íslands um bygg- ingu nýrra höfuðstöðva í hjarta borgarinnar er með öðru áfangi á þeirri leið. Ástæðulaust er að ætla annað en að bankinn muni vanda til verka, þótt eðlilegs hófs verði gætt, og að verkinu muni miða vel fram. Því er rétt að fagna ákvörðun hans. Fleira er jákvætt en neikvætt við nýja ákvörðun LÍ} Nýjar höfuðstöðvar Hið íslenskaBiblíufélag var stofnað á þessum degi fyrir 200 árum. Félagið hefur allan þann tíma haft með höndum yfirumsjón með þýðingum og útgáfu á Biblí- unni. Þannig hefur félagið séð til þess að fagnaðarerindið sé ávallt til á skiljanlegu máli fyrir Íslendinga og með því stuðlað að öflugra trúarlífi og betra mannlífi. Enginn getur dregið í efa hin miklu áhrif sem Biblían hefur haft á Vesturlönd, ekki aðeins á trúarlíf heldur einnig á menningu og listir. Enn fremur hefur íslensk þýðing Biblíunnar, allt frá dögum Guðbrands biskups fram til okkar daga, haft mikil áhrif á málfar og tungutak á Íslandi. Þessi tímamót eru einnig merki- leg fyrir þeirra hluta sakir að Hið íslenska Biblíu- félag er elsta starfandi félag á Íslandi, stofnað um það leyti sem íslensk þjóð var að vakna úr löngum dvala. Því til merk- is er sú staðreynd að Hið ís- lenska bókmenntafélag fagn- ar sama áfanga á næsta ári, en bæði þessi félög hafa stuðl- að að vexti og viðgangi ís- lenskrar tungu, hvort á sinn hátt. Hið íslenska Biblíufélag hefur því haft margvísleg já- kvæð áhrif hér á landi og á þessum tímamótum er full ástæða til að þakka félaginu fyrir farsæl störf í gegnum tíðina og óska því heilla um langa framtíð. Hið íslenska Biblíu- félag 200 ára}Merk saga Það lyftist aldeilis brúnin á áhuga-mönnum um íslenska sögu ogfornfræði þegar Morgunblaðiðflutti þá forsíðufrétt á miðviku-daginn að skáli frá landnámsöld hefði óvænt komið í leitirnar við fornleifa- rannsókn á horni Lækjargötu og Skólabrúar. Fornleifafræðingarnir höfðu fengið það verk- efni að rannsaka rústir torfbæjar sem þarna stóð á 19. öld, áður en enn eitt miðbæjarhót- elið rís á lóðinni. Torfbærinn, sem hét Lækj- arkot, er sögufrægur fyrir að hafa hlotið heimsókn sjálfs Kristjáns IX. konungs Dan- merkur, en hann rak þar inn nefið óboðinn og fyrirvaralaust í Íslandsheimsókninni 1874. Má segja að sú heimsókn hafi verið ígildi Danne- brog-orðu fyrir heimilisfólkið, fátækt alþýðu- fólk, og voru betri borgarar bæjarins sem enga heimsókn fengu sannarlega ekki hressir með kóng sinn þann daginn. En undir Lækjarkoti leyndust eldri minjar sem menn höfðu ekki átt von á enda engar sagnir um þær eða rit- aðar heimildir. Þarna virðast vera rústir veglegs skála með langeldi sem sagt er að sé örugglega frá fyrstu öld- um byggðar í landinu. Hann gæti jafnvel hafa verið hí- býli fyrstu eða annarrar kynslóðar landnámsmanna. Forngripir sem fundist hafa í rústinni og við hana stað- festa að æði langt er um liðið síðan menn reistu þennan skála. En uppgreftrinum er ekki lokið og öll úrvinnsla gagna og nákvæmari aldursgreining er eftir. Þess vegna er heldur snemmt að fara að skrafa um Ingólf og Hallveigu Fróðadóttur í þessu sambandi, þótt vissulega sé hún góð og þjóðleg sú hefð að fletta upp í Íslendingasögunum og Land- námabók þegar fornleifar skjóta óvænt upp kollinum. Mér skilst að fornleifafræðingarnir hafi fengið þau fyrirmæli að hraða vinnu sinni sem mest, mæla upp staðinn og taka þá forn- gripi með sér á brott sem skoða þurfi frekar og varðveita. Heill vinnuflokkur verkamanna og iðnaðarmanna sé tilbúinn að hefjast handa um hótelbygginguna strax og fornleifafræð- ingarnir verði farnir á braut. Frá mínum bæjardyrum séð er málið ekki svona einfalt. Ef í ljós kemur við frekari rannsókn að þarna eru leifar um mannvist frá landnámsöld finnst mér óverjandi að moka yfir rústirnar og reisa ofan á þær steinsteypt mannvirki eins og stefnt er að. Miklu nær er að þessi lóð verði þá, að hluta til að minnsta kosti, frátekin sem minjastaður þar sem almenningur og ferðafólk getur fræðst um elstu sögu okkar. Merkilegar rústir bæjar frá landnámstíma eru reyndar til sýnis í hótelkjallaranum við Aðalstræti, en þarna væri viðbót sem minjavarslan og ferðaþjón- ustan gætu nýtt sér. Með samtengingu þessara tveggja minjastaða væri hægt að skapa mjög áhugaverða sýn- ingu. Leyfi ég mér að vona að borgaryfirvöld og Minja- stofnun íhugi þetta áður en flanað er að óafturkræfum stórframkvæmdum á lóðinni. gudmundur@mbl.is Guðmundur Magnússon Pistill Minjastaður fyrir almenning STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen Neysla kannabisefna er ennþá bönnuð á Íslandi og því má telja afar ólíklegt að útlend- ingar komi hingað gagngert til að neyta kannabisefna, sér- staklega þegar fjölmörg lönd nálægt Íslandi hafa tekið upp frjálslyndari stefnu í fíkniefna- málum, þar sem neytendur fíkniefna eru ekki sóttir til saka fyrir vörslu neyslu- skammta. Þó er sérstök þjónusta boðin fyrir ferðamenn á leið til Ís- lands sem vilja neyta kannabis- efna. Facebook-síðan „Iceland Weed“ býður upp á að ferða- menn leggi inn pöntun fyrir kannabisi og fái efnin jafnvel afhent við komu á Keflavík- urflugvelli. Ferðalöngum er lof- að svari innan dags, leggi þeir inn pöntun eða fyrirspurn. Fá jónurnar á flugvellinum FERÐAMENN Á ÍSLANDI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.