Morgunblaðið - 10.07.2015, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 10.07.2015, Blaðsíða 38
38 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JÚLÍ 2015 Hágæða kristalglös frá Þýskalandi Við bjóðum Spiegelau í fallegum gjafaöskjum sem er tilvalin brúðkaupsgjöf. • Rauðvínsglös • Hvítvínsglös • Kampavínsglös • Bjórglös • Karöflur • Fylgihlutir • Það er ekki að ástæðulausu að fagmaðurinn velur Spiegelau og nú getur þú notið þeirra • Platinumlínan okkar er mjög sterk og þolir þvott í uppþvottavél Spiegelau er ekki bara glas heldur upplifun Allt fyrir eldhúsið Allir velkomnir Progastro | Ögurhvarfi 2, Kópavogi | Sími 540 3550 progastro.is | Opið alla virka daga kl. 9–18 Í erlendum tónlistarmiðlum hafa að undanförnu birst lofsamlegir dómar um einleiksdisk Hlífar Sigurjóns- dóttur fiðluleikara, Dialogus. Á disknum leikur Hlíf verk eftir Jónas Tómasson, Rúnu Ingimundar, Kar- ólínu Eiríksdóttur, Hróðmar Inga Sigurbjörnsson, Alfred Fielder og Merrill Clark. Gagnrýnandi nýjasta heftis Fan- fare segir disk Hlífar fullan af ánægjulegri tónlist sem verðskuldi að heyrast. Hann fjallar um öll verk- in og bætir við að Hlíf móti tónana afar vel og að hann njóti þess sér- staklega að upplifa samruna tónlist- ar og hinnar norrænu náttúru í upp- tökunum, sem hann mælir með við alla unnendur fiðluleiks og náttúru. Gagnrýnandi Voix des arts segir einhverja mestu ánægjuna við að fjalla um tónlist vera að heyra óvænt ókunnuglega efnisskrá sem eftir ein- ungis eina hlustun hefur ekki bara kynnt áður óþekkta listamenn held- ur einnig auðgað skilninginn á möguleikum þegar dáðs hljóðfæris. „Hlíf Sigurjónsdottir er ekki að- eins heimsklassa fiðluleikari heldur birtist hún einnig í þessum hljóðrit- unum sem einstaklega hæfi- leikaríkur uppfræðari,“ skrifar rýn- irinn og bætir við að Hlíf leiki með öryggi ferðalangs sem hefur áfanga- staðinn alltaf fyrir augum. Á vefnum Infodad.com fær disk- urinn þrjár stjörnur af fjórum. Rýn- irinn segir verkin flutt „af umtals- verðum hæfileikum af einleikara sem kann að draga fram hina áhuga- verðu þætti verkanna“. Hann mælir með því að hlýtt sé á eitt verk af diskinum í einu, svo áheyrendur geti betur tekið inn ólík verkin. Rýnir Gapplegate Music Review segir Hlíf bjóða upp á heillandi efn- isskrá sex samtímaverka. Hvert verk búi yfir túlkunarþrautum sem Hlíf leysi með „ljóðrænum þokka og, þar sem þörf er á, umtalsverðri tæknigetu“. Hlíf leysir þrautir af ljóðrænum þokka Fiðluleikarinn Leik Hlífar Sigurjónsdóttur er hrósað. Davíð Már Stefánsson davidmar@mbl.is „Þetta er í raun svolítið skrítin blanda af músík. Þarna er pönkslag- ari og rólegri ballaða. Svo má líka finna elektrónískt demólag,“ segir Hrafnkell Flóki Kaktus Einarsson, einn meðlima hljómsveitarinnar Fufanu, um EP-plötuna Adjust to the Light sem kom út á dögunum. Platan er fyrsta heildstæða verk sveitarinnar eftir að hún tók tals- verðum stakkaskiptum og breytti meðal annars um nafn, úr Captain Fufanu yfir í Fufanu. Nýir meðlimir bæst í hópinn „Þegar við vorum Captain Fufanu gerðum við elektróník. Það gerðist síðan eitthvað árið 2013 og við fórum að gera svolítið öðruvísi tónlist. Eletróníkin var orðin svolítið rokk- uð. Það gerðist í raun bara óvart. Við þurftum þá í raun bara að aðskilja okkur skýrt og skorinort frá Captain Fufanu-verkefninu,“ segir Hrafnkell en hann og Guðlaugur Halldór Ein- arsson stofnuðu kafteininn árið 2008. Sveitin hefur síðan þá tekið gríð- arlegum stakkaskiptum, nýir með- limir bæst í hópinn og aðrir farið, og í dag skipa fimm meðlimir Fufanu. „Við erum með Erling Bang á trommum, Einar Helgason í elektró- níkinni og Karl Torsten Ställborn úr Muck er síðan á gítar ásamt Guð- laugi. Það eru í raun þessir nýju meðlimir sem gera verkefnið mögu- legt. Demóið „City Lights“, sem finna má á þessari EP-plötu, sýnir í rauninni svolítið hvað við getum gert án hljóðfæraleiksins. Svo þarf bara ákveðinn aukakraft til þess að lyfta þessu upp í hinum lögunum,“ segir hann. Spila á Pohoda í Slóvakíu Hljómsveitin hélt í gær af stað til Slóvakíu þar sem hún mun koma fram á tónlistarhátíðinni Pohoda. Hrafnkell kveðst einkar spenntur fyrir tónleikunum en segir hópinn því miður verða vængbrotinn á svið- inu. „Pohoda er stórmerkileg hátíð. Kalli fer því miður ekki með okkur þar sem hann verður með Muck á Eistnaflugi. Við erum þó búnir að undirbúa það eitthvað. Annars leggst þessi ferð mjög vel í okkur og við erum mjög spenntir. Við spil- uðum einnig á Rock Werchter í Belgíu um síðustu helgi, fórum óvænt þangað inn með viku fyr- irvara. Það var alveg geggjað. Við áttum eiginlega engan veginn von á því hversu magnaðir þeir tónleikar voru. Ég vona að þetta verði eins í Slóvakíu. Fjölmiðlarnir úti hafa alla- vega tekið vel í þetta, þeir mæla með okkur. Það verður því vonandi bara gaman,“ segir hann og bætir við að sveitin muni flytja lög af EP- plötunni sem og breiðskífunni Few More Days To Go sem von er á með vetrinum. „Við munum flytja tvö hressari lögin af EP-plötunni á tónleikunum, svo verða tekin lög af stóru plötunni, þau fylla upp í lagasettið. Sú plata kemur út í október,“ segir Hrafnkell en Fufanu gefur út undir formerkj- um útgáfufyrirtækisins One Little Indian. „Það gengur mjög vel hjá One Little Indian. Það væri örugglega ekki hægt að gera þessa músík ann- ars staðar. Það er fullt frelsi þarna, þetta er ekki eitthvert „major label“ sem stjórnar því hvað fer á plötuna og hvað ekki,“ segir hann. Stefna á tónleika í ágúst „Við stefnum síðan að því að reyna að gera eitthvað hérna heima á Ís- landi í ágúst, það er reyndar ekkert slegið með það. Airwaves-hátíðin er í raun það eina sem er bókað hjá okk- ur. Við vorum reyndar með óhefð- bunda tónleika í síðustu viku á Bost- on. Þegar við spilum hérna heima á þá virðist það einhvern veginn alltaf koma upp óvænt. Við erum þó eins og áður segir að reyna að skipu- leggja eitthvað í ágúst,“ segir Hrafn- kell. „Við stefnum síðan að því að fylgja stóru plötunni eftir þegar hún kem- ur út. Það er ekkert ljóst hvert við förum, við vitum ekkert þessa dag- ana. Við bíðum bara spenntir eftir því að fá að gefa hana út, það liggur við að maður telji niður dagana,“ segir hann en þess má geta að fyrsta singulinn af þeirri plötu, „Circus Life“, auk fleiri tóndæma, má nálg- ast á vefsíðunni youtube sem og vef- síðu sveitarinnar fufanu.net. Fufanu drap kafteininn fyrir rokkið  Hljómsveitin Fufanu gaf nýlega út EP-plötuna Adjust to the Light og von er á breiðskífu í oktbóber  Sveitin lék nýverið á hátíðinni Rock Werchter og hélt til Slóvakíu í gær til að koma fram á Pohoda Kvintett Hljómsveitin Fufanu varð til úr elektrótvíeykinu Captain Fufanu sem Hrafnkell Flóki Kaktus Einarsson og Guðlaugur Halldór Einarsson stofnuðu árið 2008. Einar Helgason, Erling Bang og Karl Torsten Ställborn hafa síðan bæst í hópinn sem spilaði meðal annars á Rock Werchter um síðustu helgi. Ljósmynd/Lewis Allman

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.