Morgunblaðið - 10.07.2015, Blaðsíða 35
Hermann æfði og keppti í knatt-
spyrnu og körfubolta með Keflavík
á unglingsárunum. Áhugamál hans
snúast ekki síst um golf, hlaup og
skíðamennsku: „Ég hef stundað
hlaup í u.þ.b. áratug og hljóp mara-
þon í Kaupmannahöfn árið 2010.
Annað maraþon er nú ekkert á dag-
skránni á næstunni en ég hef þó
verið að taka þátt í ýmsum styttri
hlaupum. Þetta hefur aldrei verið
nein yfirgengileg árátta hjá mér og
ég hef nú bara hlaupið einn eða í
góðra vina hópi til að halda mér í
formi en aldrei verið í neinum skipu-
lögðum hlaupahópum sem mæla
tíma og vegalengdir af miklum
áhuga.
Auk þess hef ég spilað golf sl. 15
ár án þess að vera nokkur dellukarl
á því sviði. Keppnisandinn þar snýst
einna helst um það að hitta og vera
með góðum félögum.
En skíðaferðir, hlaup og golf eiga
ágætlega við mig og þetta eru þær
íþróttagreinar sem ég ætla að rækta
meira á næstu árum enda henta þær
vel allri fjölskyldunni. Ég hef auk
þess lengi haft áhuga á flestum
íþróttum, einkum þó körfubolta og
knattspyrnu, og er mikill Liverpool-
aðdáandi.“
Fjölskylda
Eiginkona Hermanns er Steinunn
Ýr Þorsteinsdóttir, f. 6.11. 1973,
hársnyrtir. Foreldrar hennar eru
Þorsteinn Bergmann Sigurðsson, f.
7.6. 1951, rafvirki að Húsafelli, og
Anna María Eyjólfsdóttir, f. 11.8.
1952, framkvæmdastjóri í Hvera-
gerði. Stjúpfaðir Steinunnar er
Ólafur Reynisson, f. 26.1. 1952, mat-
reiðslumaður í Hveragerði, en
stjúpmóðir Steinunnar er Sigríður
Snorradóttir, f. 28.12. 1962, fram-
kvæmdasjóri á Húsafelli.
Börn Hermanns og Steinunnar
eru Thelma Hrund Helgadóttir, f.
4.12. 1997, nemi í Reykjanesbæ;
Helgi Bermann Hermannsson, f.
16.3. 2002, og Anna María Her-
mannsdóttir, f. 24.1. 2008.
Albræður Hermanns eru Jóhann
Þór Helgason, f. 1.3. 1979, flugvirki,
búsettur í Garði; og Pétur Örn
Helgason, f. 7.10. 1982, tollgæslu-
maður í Keflavík
Hálfbróðir Hermanns, samfeðra,
er Jón Halldór Sigurðsson, f. 26.9.
1972, lögreglumaður í Keflavík
Foreldrar Hermanns: Helgi Her-
mannsson, f. 24.1. 1953, d. 4.5. 2005,
stýrimaður í Keflavík, og Valdís
Þórarinsdóttir, f. 20.4. 1953, sjúkra-
liði í Keflavík. Í sumarfríi Hermann og Steinunn með þ́inghúsið í Búdapest í baksýn.
Úr frændgarði Hermanns Helgasonar
Hermann
Helgason
Ásta Guðjónsdóttir
húsfr. í Vestmannaeyjum
Valtýr Brandsson
sjóm. í Vestmannaeyjum
Jóhanna Valtýsdóttir
húsfr. í Keflavík
Þórarinn Brynjar Þórðarson
rennism. og vélvirki í Keflavík
Valdís Þórarinsdóttir
sjúkral. í Keflavík
Kristjana Magnúsdóttir
húsfr. í Keflavík
Þórður Sigurðsson
vélstj. í Keflavík
Þuríður Guðmundsdóttir
húsfr. á Stóra Knarrarnesi
á Vatnsleysuströnd
Ólafur Pétursson
útvegsb. á Stóra Knarrarnesi
á Vatnsleysuströnd
Áslaug Ólafsdóttir
húsfr. í Keflavík
Hermann Helgason
verkstj. í Keflavík
Helgi Hermannsson
stýrim. í Keflavík
Ingibjörg Ísleif Halldórsd.
húsfr. í Keflavík
Helgi Eyjólfsson
útgerðarm. í Keflavík
ÍSLENDINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JÚLÍ 2015
Jón Mýrdal, rithöfundur, fædd-ist 10.7. 1825 að Hvammi íMýrdal. Foreldrar hans voru
Steinunn Ólafsdóttir og Jón Helga-
son.
Jón hugðist ganga til mennta en
varð frá að hverfa vegna fátæktar.
Hann fór til Reykjavíkur og nam
trésmíði. Fljótlega fluttist hann
norður í land og kynntist þar Guð-
rúnu Rannveigu Jónsdóttur. Þau
slitu samvistum eftir eitt ár en eign-
uðust dótturina Kristínu Salóme.
Guðrún Jóhannsdóttir, barnabarn
Jóns, segir í minningarorðum um afa
sinn er birtust í Morgunblaðinu 27.9.
1953 að þau hafi ekki átt skap sam-
an, jafnframt hafi Jón „verið tilfinn-
ingaríkur, draumlyndur og nokkuð
ölkær. Guðrún amma var stórbrotin
kona, sem áleit staðreyndir tryggari
fótfestu en hugmyndaflug.“
Jón Mýrdal dvaldi í Kaupmanna-
höfn um skeið, fluttist heim og ferð-
aðist víða um land og starfaði við
smíðar, m.a kirkjubyggingar. Hann
var völundur og handbragð hans bar
vott um listhneigð og vandvirkni.
Penninn var sjaldan langt undan og
mörg verkin urðu til á hefil-
bekknum. Fjöldi verka liggur eftir
hann, kvæði og skáldsögur auk
nokkurra leikrita.
Þekktasta verk hans er Manna-
munur sem kom fyrst út 1872 og hef-
ur verið endurútgefið reglulega síð-
an. Hann ritaði einnig tvær skáld-
sögur á dönsku þegar hann bjó í
Kaupmannahöfn. Í dvöl sinni þar
varð hann fyrir áhrifum ævintýra-
bókmennta eins og glögglega sést í
Mannamuni. Aðalpersónurnar eru
málaðar sterkum andstæðum litum
og gegna því hlutverki að vera góðar
eða vondar. Æskuvinirnir Ólafur og
Vigfús keppa um hylli sömu stúlk-
unnar en bréfaskriftir hafa áhrif á
gang mála. Heiti bókarinnar er lýs-
andi fyrir inntak verksins. Verkið
tekur mið af rómönsuhefð, er form-
úlukennt og ber öll helstu einkenni
vinsældabókmennta. Mannamunur
hefur þó enn sinn sjarma sem líkja
má við galdur sjónvarpsþáttanna
Leiðarljóss.
Jón Mýrdal lést 1899.
Merkir íslendingar
Jón Mýrdal
90 ára
Bjarni Einarsson
Sjöfn Jónsdóttir
85 ára
Jóna Kristjana Jónsdóttir
Jón Ó. Kjartansson
80 ára
Erna Louise Nielsen
Ólafur Eyberg Guðjónsson
75 ára
Guðmundur Davíðsson
Guðmundur Frímannsson
Ingibjörg Björnsdóttir
Jóna Margeirsdóttir
70 ára
Hjörtur Egilsson
Hjörtur Markússon
Jón Björgvin Kjartansson
Kolbrún Theódórsdóttir
Sigurður Jónsson
Sigurður Marinósson
Sigurður Þ. Jakobsson
Sigurður Þorsteinsson
Þórdís Soffía Kjartansdóttir
Þuríður Fjóla Pálmarsdóttir
60 ára
Guðmundur Sævar
Árnason
Kristín Gísladóttir
Ragnheiður Bogadóttir
Sigurgeir Smári Harðarson
Sigurþór Hólm Tryggvason
Stefanía Sörheller
Sveinbjörn Sveinbjörnsson
Þórður Guðjón Halldórsson
50 ára
Grazyna María Okuniewska
Guðlaug Ósk Guðjónsdóttir
Högni Guðmundsson
Kristín Anna Kristjánsdóttir
Lovísa Ólafsdóttir
Tony Michael Sparkes
40 ára
Andri Sveinsson
Elmar Þorbergsson
Gunnlaugur Hrafnkell
Ágústsson
Jóhannes Sveinn Sveinsson
Jónas Birgisson
Katrín Óskarsdóttir
Kjartan Orri Ingvason
Kjartan Örn Þorgeirsson
Steindór Birgisson
Thelma Björk Árnadóttir
Þórlaug Einarsdóttir
30 ára
Adomas Bradunas
Atli Kristófer Pétursson
Benedikta Sörensen
Valtýsdóttir
Edda Ósk Einarsdóttir
Jóhanna Katrín Jónsdóttir
Sigrún Símonardóttir
Valgerður Brynja
Viðarsdóttir
Til hamingju með daginn
30 ára Sindri ólst upp á
Dísastöðum í Flóa, hefur
búið í Reykjavík frá 2004,
lauk prófum BSc-prófi í
lífefnafræði og starfar við
Landsbankann í Reykja-
vík.
Maki: Sigrún Steinsdóttir,
f. 1985, félagsráðgjafi hjá
Reykjavíkurborg.
Börn: Baldur Steinn, f.
2010, og stúlka, f. 2015.
Ḿ́óðir: Jóna Hannes-
dóttir, f. 1949, fyrrv. kenn-
ari á Selfossi.
Sindri Freyr
Eiðsson
30 ára Jón Páll ólst upp á
Hellu, býr þar og starfar
hjá verktakafyrirtækinu
Þjótanda á Hellu.
Maki: Inga Lára Ragnars-
dóttir, f. 1991, hótelstarfs-
maður.
Börn: Ísabella Margrét
Pálsdóttir, f. 2003, og Hin-
rik Þór Pálsson, f. 2014.
Foreldrar: Viðar Þór Ást-
valdsson, f. 1965, og Jó-
hanna Ósk Pálsdóttir, f.
1966.
Jón Páll
Viðarsson
30 ára Jón Emil ólst upp í
Reykjavík, er þar búsett-
ur, lauk doktorsprófi í
stjarneðlisfræði frá
Princeton University og er
að hefja störf við Stokk-
hólmsháskóla og Nordita
stofnunina í Stokkhólmi.
Maki: Dórótea H. Sigurð-
ardóttir, f. 1986, bygg-
ingaverkfræðingur.
Foreldrar: Valgerður
Jónsdóttir, f. 1958, og
Guðmundur Emilsson, f.
1951.
Jón Emil
Guðmundsson
Allir þeir sem senda blaðinumynd af nýjum borgara eðamynd af brúðhjónum fá fría áskrift
að Morgunblaðinu í einnmánuð.
Hægt er að sendamynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón
Hlíðasmára 11 · 201 Kópavogur · Sími 534 9600 · heyrn.is
Aldrei hefur
verið
auðveldara
að heyra
Enn er bætt um betur með nýju
ReSound heyrnartækjunum
sem gefa eðlilega og
áreynslulausa heyrn.
Taktu þátt í framþróuninni og
prófaðu þessa hágæða tækni.
GOLDEN
LOBE
AWARDS
2014
ASSOCIATION OF
INDEPENDENT
HEARING HEALTHCARE
PROFESSIONALS
Most Innovative
Concept 2014
presented to:
Resound - LiNX
made for iPhone