Morgunblaðið - 10.07.2015, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JÚLÍ 2015
ER KOMINN TÍMI
Á SJÓNMÆLINGU?
Hamraborg 10 – Sími: 554 3200 – Opið: Virka daga 9.30-18
Traust og góð þjónusta í 19 ár
Úrval af nýjum
umgjörðum frá
Brynja B. Halldórsdóttir
brynja@mbl.is
Ragnheiður Gunnarsdóttiropnaði heimili sitt ogstofnaði Kisukot, athvarffyrir ketti á Akureyri árið
2012 því hún vildi bjarga köttum á
vergangi. Sama ár var hún valin
Norðlendingur ársins af lesendum
Akureyri vikublaðs. Frá því að Kisu-
kot var stofnað hefur hún bjargað
nokkrum hundruðum katta frá því
að verða úti. Sumir hafa komist aft-
ur til síns heima eftir að hafa týnst,
aðrir hafa fengið nýtt heimili og enn
aðrir hafa eignast heimili í fyrsta
skipti fyrir tilstilli Ragnheiðar.
Hún rekur Kisukot heima hjá
sér þar sem hún hefur ekki fengið
hentugra húsnæði fyrir reksturinn
og bæjaryfirvöld hafa ekki sýnt
starfseminni neinn sérstakan áhuga.
Ragnheiður býr því verulega þröngt.
„Álagið er ævinlega mest á sumrin.
Núna er ég með 16 kettlinga og átta
fullorðna í heimilisleit í Kisukoti,“
segir Ragnheiður. ,,Kettlingar eru
yfirleitt subbur þannig að þetta er
mikil vinna.“
Hún vinnur einnig í Dýraríkinu
á Akureyri og því fer nær allur
hennar tími í að aðstoða dýr.
Kattaveiðar í hesthúsahverfi
Hugmyndin að stofnun kattaat-
hvarfs kviknaði að sögn Ragnheiðar
þegar hún las fréttir um kattaveiðar
bæjaryfirvalda fyrir nokkrum árum.
„Þar kom fram að bærinn væri að
veiða villiketti uppi í hesthúsahverfi
á Akureyri og svæfa þá. Ég vildi þá
sjá hvort ég gæti gert eitthvað ann-
að en að láta greyin í svæfingu.“
Bæjarbúar eru mjög iðnir að
hringja í Ragnheiði þegar kettir
finnast sýnilega týndir eða heim-
ilislausir. Hún tekur líka við slös-
uðum köttum og hefur þurft að
svæfa slasaða ketti.
Dýralæknirinn hennar hleyp-
ur undir bagga með því að veita
henni góðan afslátt af vinnu vegna
svæfinga, geldinga og annarra
læknisaðgerða. „Það bjargar mér
alveg að vera ekki að borga fullt
verð,“ segir hún og bætir við að
hún einbeiti sér helst að útigangs-
köttum og villiköttum. Fólk hringi
engu að síður mjög reglulega í
hana og biðji hana um að taka við
köttum. Kettirnir séu mun fleiri en
hún ráði við.
Reiðir sig á styrki frá fólki
Rekstur kattaathvarfs getur
verið kostnaðasamur og því hefur
Ragnheiður stofnað styrktarreikn-
ing sem einstaklingar geta lagt
frjáls framlög inn á. Þá er hægt að
ganga í samnefnt félag og greiða
hóflegt árgjald til að styðja við
reksturinn. Ragnheiður segir líka
Bjargvættur
norðlenskra katta
Frá því að Ragnheiður Gunnarsdóttir stofnaði Kisukot heima hjá sér árið 2012
hefur hún bjargað hundruðum katta frá því að verða úti. Hún stendur ein að
starfseminni og þarf að reiða sig á styrki frá einstaklingum til að halda rekstr-
inum gangandi. Hún myndi helst vilja koma á samstarfi við Akureyrarbæ en
henni hefur verið mætt af áhugaleysi af hálfu bæjaryfirvalda.
Úlfljótsvatn er kjörinn staður til að
heimsækja um helgina enda nóg af
afþreyingu fyrir alla fjölskylduna. Má
þar nefna veiði í vatninu, bátsferðir,
vatnasafarí, frisbígolf, bogfimi, klif-
urturn, strandblak fótbolta og
þrautabraut. Margt af þessari afþrey-
ingu er ókeypis, en fyrir annað eins
og afnot af bátum er tekin leiga.
Þar fyrir utan er boðið upp á skipu-
lagðar gönguferðir, hjólaferðir og
skoðunarferðir fyrir hópa. Þeir sem
vilja kveikja varðeld verða fyrst að fá
leyfi til þess og eldiviður er seldur í
þjónustuhúsi.
Úlfljótsvatn er vel staðsett mið-
svæðis á Suðurlandi, aðeins 40 mín-
útna akstur frá Reykjavík og 20 mín-
útur er verið að aka frá Selfossi. Frá
Úlfljótsvatni er svo aðeins um 20
mínútna akstur að Þingvöllum og 40
mínútna akstur að Gullfossi. Tjald-
svæðið rúmar um 5.000 gesti.
Vefsíðan www.ulfljotsvatn.is
Morgunblaðið/Golli
Bátar Hægt er að leigja árabát og fara út á vatnið. Einnig má veiða í vatninu.
Nóg að gera á Úlfljótsvatni
DILL Restaurant í Reykjavík hefur
verið tilnefndur til hinna virtu hönn-
unarverðlauna Restaurant & Bar De-
sign Awards. Verðlaunin taka til
hönnunar, innréttingar, lýsingar og
heildarupplifunar viðskiptavina en
ekki matar eða drykkja.
Verðlaunaafhendingin verður í
London 1. október nk. Meðal dómara
eru Tony Chambers, ritstjóri hins
virta tímarits Wallpaper.
Hönnuður DILL Restaurant er Hálf-
dán Pedersen sem hefur m.a. hannað
innréttingar á veitingastað á Hverf-
isgötu 12, Snaps, Kex Hostel, Geysi
og Mikkeller & Friends Reykjavík.
Hönnun
DILL tilnefndur
til verðlauna
Morgunblaðið/Ómar
DILL Hönnuður er Hálfdán Pedersen.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Uppi verður fótur og fit á Hvanneyri
núna á laugardaginn en þá verður
Hvanneyrarhátíðin 2015 haldin. Há-
tíðin hefst klukkan tíu um morguninn
með örnámskeiði í orfslætti en til-
kynna þarf þátttöku fyrirfram til
Bjarna Guðmundssonar hjá Landbún-
aðarsafni Íslands.
Skemman Kaffihús verður svo opn-
að í hádeginu en hátíðin er sett á
kirkjutröppum Hvanneyrarkirkju kl.
13.30. Þar munu Björn Þorsteinsson,
rektor LbhÍ, og Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson forsætisráðherra
ávarpa gesti.
Um daginn verður svo boðið upp á
fornbílasýningu, markað, kaffisölu,
dráttarvélasýningu, keppni í pönnu-
kökubakstri og skemmtidagskrá fyrir
börn. Formlegri dagskrá lýkur kl.
17.00. Um kvöldið spilar hljómsveitin
Veturhús en miðaverðið, 1.500 krón-
ur í seðlum eða klinki, er greitt við
innganginn.
Hvanneyrarhátíð
Pönnukökur, fornbílar og sláttur
Sætar subbur 16 kettlingar eru í Kisukoti nú og þeim fylgir vinna.
Dýravinur Ragnheiður Gunnarsdóttir ásamt fimm ára fressinu Snæ.