Morgunblaðið - 10.07.2015, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 10.07.2015, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JÚLÍ 2015 Andri Steinn Hilmarsson ash@mbl.is Norrænum ungmennum sem koma hingað til lands í gegnum Nordjobb, sameiginlega norræna atvinnumiðlun sem fjármögnuð er af Norrænu ráð- herranefndinni og norrænu ríkis- stjórnunum, hef- ur fjölgað um u.þ.b. 60 prósent síðan 2009. Kristín Manú- elsdóttir, verkefn- isstjóri Nordjobb á Íslandi, segir að á sama tíma fækki umsóknum frá Ís- lendingum sem vilja fara út. „Það er örugg- lega háð því að ástandið á vinnumark- aði er að batna. Fólk þarf ekki jafn mikið að leita út. Á hinum löndunum á Norðurlöndunum gengur verr að fá ný störf á meðan við höfum fengið töluvert af nýjum vinnustöðum á Ís- landi í ár,“ segir Kristín. Fjölgað jafnt og þétt frá hruni Ekki eru til tölur yfir fjölda Íslend- inga sem fóru út á vegum Nordjobb í ár að sögn Kristínar en í fyrra fóru um 70 íslensk ungmenni til annara landa á Norðurlöndum, þar af fóru flestir til Danmerkur. Í ár koma um 80 ungmenni hingað til lands samanborið við 50 manns ár- ið 2009. Störfum á Íslandi fækkaði mikið á milli áranna 2008, þegar störf á vegum Nordjobb voru 120 hérlend- is, og 2009. Síðan þá hefur störfum fjölgað jafnt og þétt á milli ára að sögn Kristínar, en flestir sem hingað koma eru Svíar og Finnar. „Þetta er aðeins meira núna en undanfarin ár. Eftir fjármálahrunið gátum við ekki tekið á móti eins mörgum, en þá voru margir sem fóru út,“ segir Kristín. Gott að samnýta vinnumarkað Kristín segir að gott sé að hafa verkefni á borð við Nordjobb til þess að samnýta vinnumarkaðinn á Norð- urlöndunum, en að Nordjobb standa Finnland, Danmörk, Færeyjar, Ís- land, Svíþjóð, Noregur, Grænland og Álandseyjar. Hún segir að í Finnlandi hafi störf- um á vegum Nordjobb fækkað nokk- uð og þeir taki nú á móti fáum ein- staklingum miðað við höfðatölu. Finnar taka nú á móti um 40 manns og hefur störfunum fækkað samhliða auknu atvinnuleysi þar í landi. Flestir starfa við ferðaþjónustu „Miðað við höfðatölu erum við og Álandseyjar að taka langflesta. Það eru bara Svíþjóð og Noregur sem taka fleiri einstaklinga en Ísland,“ segir Kristín. Launakjör þeirra sem hingað koma eru samkomulag á milli at- vinnurekenda og starfsmanna, en þó þannig að farið sé eftir kjarasamn- ingum. Nordjobb aðstoðar ungmenn- in, sem eru á aldrinum 18 til 28 ára, við að útvega húsnæði ásamt því að aðstoða við gerð umsóknar kennitölu og skattkorts. Störfin eru flest í ferðaþjónustu en eins hafa verið störf í búskap, m.a. í sauðburði, og í sumarstörfum hjá Kópavogsbæ, Reykjavík og Garða- bæ, segir Kristín. Ungmenni sýna Íslandi áhuga  Störfum á vegum Nordjobb fjölgar hratt á Íslandi  Hlutfallslega flestir til Íslands og Álandseyja  Gengur verr að fá ný störf í öðrum löndum á Norðurlöndunum, segir verkefnisstjóri Nordjobb á Íslandi Ljósmynd/Nordjobb Vinna Flestir þeirra sem koma á vegum Nordjobb starfa við ferðaþjónustu. Hópurinn á myndinni var hér í fyrra. Kristín Manúelsdóttir Benedikt Bóas benedikt@mbl.is Umhverfisstofnun hefur gefið út að- gerðaráætlun fyrir Dimmuborgir í Mývatnssveit fyrir næstu fjögur ár- in. Þegar ríkið úthlutaði 850 millj- ónum til ferðamannastaða fengu Dimmuborgir 38,5 milljónir en áætl- að er að bíða með framkvæmdir þar til í haust. Daði Lange Friðriksson sat í vinnuhópnum sem gaf út áætlunina fyrir Landgræðsluna. Hann segir að framkvæmdir í ár muni ekki hefjast fyrr en mesti ferðamannastraum- urinn sé farinn framhjá. „Það er ver- ið að undirbúa flest verkefni en við bíðum róleg meðan straumurinn er mikill af ferðamönnum. Það verður ekkert hægt að framkvæma fyrr en í ágúst eða september.“ Samkvæmt áætluninni á að láta hendur standa fram úr ermum í ár. Meðal verkefna sem ráðist verður í er malbikun á svokölluðum Stóra hring, lagfæra og byggja upp Kirkjuhring endurnýja vegvísa og gönguleiðakort og uppfæra upplýs- ingar og fræðslu um Dimmuborgir á heimasíðu stofnunarinnar. Þá á að malbika og merkja bílastæði á þjón- ustusvæði. Þá munu Landgræðslan og Umhverfisstofnun gera for- könnun á því með hvaða hætti skuli staðið að talningu ferðamanna í Dimmuborgum. Á næsta ári skal komið upp skilti þar sem kemur fram að Dimmu- borgir séu friðlýst svæði, halda áfram malbikun stíga og vinna að fræðsluáætlun og öryggisáætlun þar sem fjallað skal um öryggi gesta og starfsfólks. Á síðasta árinu eða 2019 mun Landgræðslan og Umhverf- isstofnun meta þörf fyrir aðgangs- stýringu inn í Dimmuborgir til verndar viðkvæmri náttúru svæð- isins og munu athuganir fara fram í júlí. „Nú er verið að ákveða hvað eigi að gera, fá efni, hvernig eigi að for- gangsraða verkefnum og fleira. Við vorum að malbika 600 fer- metra um daginn af göngustígum, þannig að það er búið að gera heil- an helling,“ segir Daði en hann var staddur á Jökuldal að skoða tófu- yrðlinga þegar Morgunblaðið sló á þráðinn. Þjóðgarðurinn bíður líka Vatnajökulsþjóðgarður fékk sam- tals 197 milljónir af þeim 850 sem ríkið úthlutaði í maí. Þórður H. Ólafsson, framkvæmdastjóri þjóð- garðsins, segir að verkefnin sem yrði ráðist í séu í undirbúningi enda stutt síðan fjármununum var út- hlutað. „Útboðið tekur tíma en það fer flestallt í gang á þessu ári og einhver verkefni munu klárast á þessu ári. Eflaust fara einhver verk yfir á árið 2016 en flest munu klárast í ár.“ Malbikað Stígarnir í Dimmuborgum eru nú margir malbikaðir og það hefur gefið góða raun. Fjögurra ára áætlun  Aðgerðaráætlun við Dimmuborgir sem gildir til 2019  Ráðast í stígagerð, setja upp vegvísa og malbika plön Ísak Rúnarsson isak@mbl.is Vinna við húsnæðisfrumvörp Eyglóar Harðardóttur, félags- og húsnæðismálaráðherra, mun halda áfram í sumar en eitt þeirra, hús- næðisbótafrum- varpið, er komið í umsagnarferli hjá Alþingi. Að því loknu mun samráðshópur taka við frum- varpinu og vinna úr þeim ábend- ingum sem koma fram í umsagnar- ferlinu. Áður hafði verið stefnt að því að ljúka af- greiðslu á húsnæðisbótafrumvarpi á vorþingi en niðurstaðan af sam- komulagi um þinglok var sú að frumvarpið yrði sent til umsagnar og tekið fyrir að nýju í haust. ,,Við getum ekki sagt hvort þetta verða fjögur eða fleiri mál, það verður bara að koma í ljós í kjölfar vinn- unnar í sumar. Vonandi getum við komið fram með málin á fyrstu dög- um þingsins,“ segir Eygló í samtali við Morgunblaðið en áður hafa kom- ið fram tvö mál auk húsnæðisbóta- frumvarpsins en þau eru um húsa- leigulög og húsnæðissamvinnufélög og auk þess hefur vinna staðið yfir í velferðarráðuneytinu í tengslum við frumvarp um félagslegt húsnæðis- kerfi. Heimildir Morgunblaðsins innan úr þingflokki Sjálfstæðisflokksins herma að þar á bæ sé ekki víðtækur stuðningur við húsnæðisbótafrum- varpið og frumvarp um félagslegt húsnæðiskerfi, en áður hefur komið fram gagnrýni fjárlagaskrifstofu fjármálaráðuneytisins á fyrrnefnda frumvarpið. Frumvörpin þurfi að taka verulegum breytingum svo stuðningur fáist frá þingmönnum flokksins. Spurð um stuðning Sjálfstæðis- flokksins við málin segir Eygló: „Rík- isstjórnin lýsti því yfir í tengslum við kjarasamninga að við hefðum í hyggju að leggja þetta meðal annars til og það var samþykkt í ríkisstjórn að leggja fram frumvörpin. Aðilar vinnumarkaðarins líta svo á að þessar breytingar á húsnæðiskerfinu séu hluti af samkomulagi þeirra og for- senda fyrir gerð kjarasamninga. Ég hef ekki heyrt neitt annað frá forystu Sjálfstæðisflokksins, en að menn hafi í hyggju að standa við það, enda stóð öll ríkisstjórnin að þessari yfirlýs- ingu.“ Í yfirlýsingunni kemur einnig fram að vinna eigi að því að aðstoða kaupendur á fasteignamarkaði við fyrstu kaup og finna eigi leiðir til þess að gera húsnæðissparnað var- anlegan. „Það liggur ekki fyrir hvort við gerum séreignarsparnaðarleið- ina varanlega eða hvort það verður farið í einhverja aðra útfærslu en það er á hreinu að það kemur fram tillaga um það hvernig eigi að standa að húsnæðissparnaði til framtíðar fyrir ungt fólk. Í yfirlýsingunni er talað um að frumvörpin eigi að vera komin fram á haustmánuðum og afgreidd fyrir áramót. Þetta eru þó samstarfs- verkefni ríkisins, sveitarfélaga og að- ila vinnumarkaðarins,“ segir Eygló. Aðgerðirnar í húsnæðismálum eiga að byggjast að miklu leyti á skýrslu verkefnisstjórnar um fram- tíðarskipan í húsnæðismálum en sú skýrsla kom út fyrir rúmu ári. Einn af stærstu þáttunum í þeirri skýrslu er þó enn óútfærður en hann snýr að framtíðarfjármögnun húsnæðiskerf- isins en þar er lagt til að sett verði á laggirnar sérstök húsnæðislánafélög að danskri fyrirmynd. Húsnæðisfrum- vörp aftur fyrir þing í haust  Gætu orðið fleiri en fjögur  Óvíst með stuðning Sjálfstæðisflokksins Eygló Harðardóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.