Morgunblaðið - 10.07.2015, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 10.07.2015, Qupperneq 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JÚLÍ 2015 Bæjarlind 6 | Sími 554 7030 | Við erum á Facebook 36–56Str: ÚTSALAN ER HAFIN •30–50% afsláttur• Matvælastofnun (MAST) birti í gær áfangaskýrslu um hinn mikla óút- skýrða fjárdauða sem bændur urðu fyrir í vetur og vor. Í samvinnu við Landssamtök sauðfjárbænda og Tilraunastöð Há- skóla Íslands að Keldum var hafist handa við að rannsaka málið þegar það kom upp og varpar skýrslan ljósi á heildarmynd vandamálsins en or- sök þess er þó enn óljós. Aðeins 311 bændur svöruðu kalli MAST af um 2.000, en stofnunin bað bændur að svara spurningalista raf- rænt. MAST þurfti að hafa hraðar hendur við að gera spurningalistann og var hann gerður í svo miklum flýti að það gleymdist að spyrja mik- ilvægra spurninga. Í tilkynningu MAST segir: „Ekki var spurt um ýmislegt sem gott hefði verið að fá svör við, m.a. um hversu lengi féð gekk úti síðastliðið haust, hvernig holdafarið var þegar féð var tekið á hús, hvenær féð var rúið, hvernig gjafaaðstaða er fyrir hey og fóðurbæti, um magn og tegund áburðar síðastliðið sumar o.s.frv.“ Vandamálið ljóst en orsökin ekki enn kunn Morgunblaðið/Árni Sæberg Sauðkind Dýralæknar sendu blóðsýni til Noregs til rannsókna.  Fjárdauðinn enn óútskýrður Áfangaskýrsla » 311 bændur svöruðu af um 2.000. » Hjá helmingi svarenda drapst meira fé en eðlilegt get- ur talist, eða meira en 2%. » Hjá 10% svarenda voru af- föllin meiri en 8% og hæsta tíðnin var 30%. Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Samkomulag var undirritað í gær um uppbyggingu hluta raforkuflutnings- kerfis Landsnets innan Hafnar- fjarðar. Haraldur L. Haraldsson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, og Guð- mundur I. Ásmundsson, forstjóri Landsnets, skrifuðu undir samning- inn. Miðar samkomulagið að því að hægt verði að rífa Hamraneslínur 1 og 2 og að færa Ísal-línur 1 og 2 sem liggja frá tengivirkinu í Hamranesi að álverinu í Straumsvík, fjær byggð. Fram kemur í sameiginlegri yfir- lýsingu Hafnarfjarðar og Landsnets að gert sé ráð fyrir að ný Suður- nesjalína 2, sem verður 220 kV há- spennulína og lögð út á Reykjanes, tengist Hamranesi með 1,5 km löngum 220 kV jarðstreng frá Hraunhellu. Mun Hafnarfjarðarbær gefa út framkvæmdaleyfi á næstunni fyrir þeim hluta Suðurnesjalínu 2 sem liggur um land bæjarins. Minnka hljóð frá tengivirkinu „Samkomulagið sem við undirrit- uðum tryggir að nú þegar verður hafist handa við að breyta ásýnd og bæta hljóðvist við tengivirkið í Hamranesi og að línurnar verði farn- ar að hluta til í jörð næst Hamranesi ekki seinna en árið 2018,“ er haft eft- ir Haraldi í áðurnefndri tilkynningu. Ráðist verður í sérstakar aðgerðir til þess að bæta hljóðvist tengi- virkisins í Hamranesi og verður það meðal annars gert með því að byggja utan um spenna með hljóðdempandi efnum og hækka hljóðmön um tvo metra. „Áformaðar breytingar sem leiða af byggingu Sandskeiðslínu 1 og Suð- urnesjalínu 2, niðurrifi Hamranesl- ína 1 og 2 og tilfærslu Ísallína 1 og 2 munu bæta ásýnd tengivirkisins. Stálgrindamöstur sem standa upp úr byggingunni verða minnkuð og auka- möstur innan lóðarmarka fyrir Suð- urnesjalínu 1 tekin niður um leið og Suðurnesjalína 2 kemur í rekstur,“ segir í tilkynningu. Fjármagnað með lántöku Guðmundur hjá Landsneti segir áætlaðan kostnað fyrirtækisins vegna þessara breytinga nema tæp- um fimm milljörðum króna. Er kostnaður við Suðurnesjalínu 2 auk þess áætlaður um 2,5 milljarðar króna. Heildarkostnaður verkefn- anna er því nokkuð á áttunda millj- arð króna. „Við eigum auðvelt með að fjár- magna þetta. Það verður gert með lántökum og að hluta til með eigin fé,“ segir Guðmundur í samtali við Morgunblaðið og bætir við að fyrir- tækið standi mjög vel og geti því haf- ist handa við að byggja upp raf- orkukerfið. „Þetta eru vissulega mjög miklar breytingar en á sama tíma nauðsynlegar. Það er hér verið að byggja upp raforkukerfi til fram- tíðar,“ segir hann. Landsnet ræðst í miklar framkvæmdir  Samkomulag um uppbyggingu hluta raforkuflutningskerfis undirritað í gær Ljósmynd/Landsnet Samið Guðmundur I. Ásmundsson og Haraldur L. Haraldsson semja. Framkvæmdir » Hamraneslínur 1 og 2 verða rifnar samkvæmt sam- komulagi Hafnarfjarðar og Landsnets. » Ísal-línur 1 og 2 verða færð- ar fjær byggð í Hafnarfirði. » Ný Suðurnesjalína 2 mun tengjast Hamranesi með 1,5 km löngum jarðstreng. » Hljóð frá tengivirkinu í Hamranesi verður minnkað. Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Þingvallanefnd hefur ákveðið að hefja innheimtu bílastæðagjalds á þremur afmörkuðum bílastæðum á Þingvöllum. Er í fyrsta lagi um að ræða á Hakinu við efri enda Al- mannagjár, þar sem finna má gesta- stofu þjóðgarðsins, í öðru lagi á svo- nefndu Þingplani, þaðan sem gengið er upp í Almannagjá af Efrivöllum, og í þriðja lagi á Valhallarplani þar sem hótelið stóð áður. Ólafur Örn Haraldsson þjóð- garðsvörður segir gjaldið vera þjón- ustugjald sem ætlað er að standa undir kostnaði þjóðgarðsins við rekstur bílastæðanna. „Ferðaþjón- ustan hefur til að mynda margoft sagt að hún sé reiðubúin til þess að greiða fyrir veitta þjónustu,“ segir hann. Gjaldskráin talin vera hófleg Aðspurður segir Ólafur Örn gjald fyrir hvern einkabíl vera 500 krónur samkvæmt gjaldskránni og 750 krónur fyrir jeppabifreið og minni hópferðabíl. Fyrir hópferðabíl með 14 farþega eða færri eru greiddar 1.500 krónur en 3.000 krónur séu bílarnir gerðir fyrir fleiri farþega en 15. Gjaldið, sem staðfest hefur verið af forsætisráðuneytinu, veitir heim- ild til að leggja bifreið í allt að 24 klukkustundir. „Ég á nú bara von á því að þessu verði vel tekið og er gjaldið fyrir hópferðabílana til dæmis mjög hóf- legt,“ segir Ólafur Örn. Er gert ráð fyrir að heildartekjur þjóðgarðsins verði um 40 til 50 milljónir króna á ári en þjónustu-, rekstrar- og við- haldskostnaður bílastæðanna er um 50 milljónir króna á ári. Tekur nokkrar vikur Ólafur Örn segir það taka nokkr- ar vikur að ganga frá bílastæðum og koma upp nauðsynlegum búnaði vegna gjaldtökunnar. Er að auki þörf á að kynna gjaldið fyrir aðilum í ferðaþjón- ustu. „Það mun taka fjór- ar til átta vikur að fá gjaldstaurana og koma þeim upp. Á meðan ætlum við hins vegar að undirbúa merkingar. Þetta verður svo allt saman klárt einhvern tímann í lok ágúst eða byrjun septem- ber.“ Morgunblaðið/Ómar Flosagjá Þingvellir eru einn fjölsóttasti ferðamannastaður landsins og fjölgar þeim sífellt sem sækja garðinn heim. Bílastæðagjald tekið upp á Þingvöllum  Við lok sumars verður gjaldheimta á vissum bílastæðum Ólafur Örn Haraldsson, þjóð- garðsvörður á Þingvöllum, segir þjóðgarðinn hafa bætt við sig starfsfólki í vor vegna mikillar fjölgunar ferðamanna þangað ár hvert. Sækir nú um ein millj- ón ferðamanna garðinn heim. „Við bættum töluvert mörgu fólki við hjá okkur í vor og kom það sér nú aldeilis vel því fjölg- un ferðamanna hingað er alveg gífurleg,“ segir Ólafur Örn og bendir á að um sé að ræða 25% fjölgun á milli ára. „Og þótti okkur nú nóg um í fyrra þegar 700.000 ferða- menn sóttu þjóðgarðinn heim. Við nálgumst nú mjög hratt að hingað á Þingvelli komi ein milljón ferða- manna,“ segir hann. Um ein millj- ón á Þingvelli 25% AUKNING MILLI ÁRA Ólafur Örn Haraldsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.