Morgunblaðið - 10.07.2015, Page 18

Morgunblaðið - 10.07.2015, Page 18
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JÚLÍ 2015                                    !"  !# $#$ " # %   ! #% #!$ &'()* (+(    ,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5  !  !#" $% " " % !% !$$ #" % % # !% !% $%$ " # %# !#" !  #"$# %"# !"% Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● Lög sem Alþingi samþykkti í lok júní sem veita innlendum aðilum undanþágu frá svokallaðri skjölunarskyldu mun spara íslenskum fyrirtækjum hundraða milljóna óþarfa kostnað, að mati Við- skiptaráðs Íslands. Skjölunarskyldan var innifalin í milliverðlagsreglunum sem voru lögfestar í byrjun árs 2014. Til- gangur þeirra var að fyrirbyggja mögu- leika aðila í tveimur eða fleiri ríkjum til að draga með óeðlilegum hætti úr skatt- greiðslum. Upphaflega var þó gert ráð fyrir að fyrirtæki í innlendum viðskiptum skyldu einnig falla undir skjölunarskyld- una. Það jók kostnað fyrirtækjanna að sögn Viðskiptaráðs. Einföldun íþyngjandi regluverks sparar stórfé ● Heildarútgáfa ríkisbréfa nam 29,2 milljörðum króna á fyrri helmingi ársins samkvæmt Lánamálum ríkisins. Sala í almennum útboðum nam 28,8 millj- örðum og sala í gjaldeyrisútboðum Seðlabanka Íslands 0,4 milljörðum. Á þriðja ársfjórðungi er stefnt að því að bjóða út 2ja, 5 og 10 ára markflokka að andvirði 5-15 milljarða króna. Ákvörðun um hvaða flokkar verði fyrir valinu á hverjum tíma mun ráðast af markaðsaðstæðum. Útboð ríkisbréfa nam tæpum 30 milljörðum STUTTAR FRÉTTIR ... BAKSVIÐ Margrét Kr. Sigurðardóttir margret@mbl.is „Við metum það svo að það sé þegar komið svigrúm til að leyfa lífeyris- sjóðunum að kaupa erlendan gjald- eyri í ljósi þess mikla magns gjald- eyris sem flæðir til landsins. Það er ekki ástæða til að bíða fram á næsta ár,“ segir Ásdís Kristjánsdóttir, for- stöðumaður efnahagssviðs Samtaka atvinnulífsins (SA). En samkvæmt aðgerðaáætlun stjórnvalda um af- nám gjaldeyrishaftanna eru áform um að hefjast handa á næsta ári við að losa í skrefum höftin á gjaldeyr- iskaupum þar sem miðað er við að líf- eyrissjóðirnir fái 10 milljarða króna heimild árlega. Hún segir þá upphæð einungis dropa í hafið í hlutfalli við gjaldeyr- isinnstreymið og þá uppsöfnuðu er- lendu fjárfestingaþörf lífeyrissjóð- anna sem er metin um 180 milljarðar króna. „Á fyrstu 6 mánuðum ársins er Seðlabanki Íslands (SÍ) búinn að kaupa gjaldeyri fyrir nær 90 millj- arða króna. Ef þetta innflæði heldur áfram væri hægt að hefjast handa nú þegar við að hleypa fleirum að í gjaldeyriskaupum.“ Gjaldeyriskaupin tvöfaldast Seðlabankinn hefur keypt gjald- eyri í skiptum fyrir íslenskar krónur í miklu magni að undanförnu og áætlar SA að upphæðin muni nema 226 milljörðum króna í lok ársins. Upphæðin er tvöföld á við það sem var á síðasta ári þegar gjaldeyris- kaup SÍ námu 111 milljörðum króna. Ásdís segir að með þessum miklu kaupum sé SÍ að draga úr virkni peningastefnunnar þar sem ekki er um mótvægisaðgerðir að ræða til að draga úr og koma í veg fyrir að pen- ingamagn í umferð aukist. „Seðlabankinn gæti gripið til þess að selja eignir sínar sem eru arfleifð frá hruninu eða auka bindingu inn- stæðureikninga fjármálafyrirtækja. Þeir eru þess í stað að fjölga krónum í umferð með peningaprentun því þegar erlendir aðila koma til lands- ins borgar bankinn fyrir gjaldeyrinn í íslenskum krónum.“ Gæti grafið undan genginu Aðspurð hvort SÍ geti haldið áfram að auka peningamagn í um- ferð án mótvægisaðgerða segir hún að þeir gætu haldið áfram að prenta peninga. „En það endar bara í verð- bólgu sem grefur undan gengi gjald- miðilsins. Krónan mun þá veikjast auk þess sem þetta ýtir undir lægri markaðsvexti. Bankinn er í raun að vinna gegn vaxtahækkununum sem komu til framkvæmda fyrir skömmu og er því að vinna gegn sínum eigin aðgerðum,“ segir Ásdís. Hún telur tímabært að Seðlabankinn ljúki við að selja eignasafn sem tilkynnt var í árslok 2013 að ætti að selja fyrir 100 milljarða króna. Gjaldeyrisforðinn of mikill En er gjaldeyrisforðinn að verða of stór? „Óskuldsetti gjaldeyrisforð- inn er að byggjast upp mjög hratt og gæti verið kominn í 265 milljarða í árslok. En hins vegar er skuldsetti forðinn 460 milljarðar. Það er mjög dýrt fyrir okkur að halda honum úti vegna mikils vaxtakostnaðar. Ég tel því að það ætti að byrja að greiða niður skuldsetta forðann.“ Hún segir að oft sé miðað við að gjaldeyrisforðinn sé jafnhár öllum erlendum skammtímaskuldum en forðinn hér sé orðinn tvöfaldur á móti erlendum skammtímaskuldum. „Að mínu mati er gjaldeyrisforð- inn orðinn of mikill. Ég sé ekkert því til fyrirstöðu að byrja að hleypa inn- lendum aðilum á móti þessu innflæði því þá er ekki verið að hafa áhrif á peningamagnið,“ segir Ásdís. Svigrúm til að hleypa fleir- um að í gjaldeyriskaupum Gjaldeyriskaup SÍ Milljarðar króna 2009 2010 2011 2012 2013 2014 Áætlun2015 Heimild: Seðlabanki Íslands, útreikningar efnahagssviðs SA. 250 200 150 100 50 0 -50 -15 30 13 17 1 111 226  Mikil gjaldeyriskaup SÍ vinna gegn peningastefnunni, segir hagfræðingur SA Flugfélagið WOW air flutti 83 þúsund farþega í síðastliðnum mánuði og fjölgaði þeim um 49% frá sama tíma- bili í fyrra. Sætanýting í vélum félags- ins var 84% og batnaði með því um 8% milli ára. Félagið flýgur nú á tvo áfangastaði í Norður-Ameríku og 18 áfangastaði í Evrópu. Skúli Mogensen, forstjóri og stofn- andi félagsins, segist mjög ánægður með bætta sætanýtingu, ekki síst vegna þess hversu mjög framboðið hefur aukist yfir tímabilið. „Miðað við þær frábæru móttökur sem við höfum fengið er ljóst að við munum halda áfram að stækka og bæta við fleiri áfangastöðum á næsta ári beggja vegna Atlantshafsins,“ segir Skúli. Flugfélagið er nú um stundir með sex vélar á sínum snærum. Tvær þeirra eru nýjar og af gerðinni Airbus A321. Hinar fjórar eru frá sama fram- leiðanda en bera framleiðslunúmerin A320 og A319. Ör fjölgun hjá WOW  84% sætanýting í vélum félagsins Flug Nýjasta vélin í flota WOW air. ● Simon David Knight er nýr eigandi að Juris lögmannsstofu. Hann hefur starfað sem sérfræðingur hjá Juris frá árinu 2012 en á árunum 2007-2012 var hann lögfræðilegur ráðgjafi hjá Kaupþingi og slitastjórn þess. Áður starfaði hann hjá al- þjóðlegu lögmannsstofunni Simmons & Simmons í London og Abu Dhabi á árunum 2005-2007. Simon lauk prófi í lögfræði frá háskólanum í Cambridge, Stóra-Bretlandi, árið 2003. Hann öðlaðist réttindi sem lögmaður í Englandi og Wales árið 2007. Í samvinnu við Andra Árnason hrl. og Stefán A. Svensson hrl., hefur Simon á undanförnum árum unnið að verkefnum tengd- um flóknum málaferlum, sérstaklega sem varða þrotabú ís- lensku bankanna og málaferlum milli landa. Þá hefur hann enn- fremur, í samvinnu við dr. Finn Magnússon hdl. og Sigurbjörn Magnússon hrl., unnið að fjármögnunar- og fjárfestingaverkefnum, m.a. er lúta að fjárfestingu er- lendra aðila á Íslandi svo og fjárfestingu íslenskra aðila erlendis. Simon er trúlofaður Ástu Kristínu Þorsteinsdóttur, leiðsögumanni, og eiga þau tvö börn. Breskur lögmaður í eigendahópinn hjá Juris Simon David Knight

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.