Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.07.2015, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.7. 2015
Græjur og tækni Hvað er það sem vex hratt, er smekkfullt af prótíni, hefur tvöfalt nær-ingargildi grænkáls og smakkast eins og beikon? Svarið: Sjávarþangs-
beikonið sem vísindamönnunum í Oregon hefur tekist að framleiða.
Flesk fyrir heilsuna
V
indorka er verulega van-
nýtt auðlind og þó að
vöxtur vindorkubúa hafi
verið töluverður á undan-
förnum árum er vindorka innan við
fimm prósent af heildarorkufram-
leiðslu Bandaríkjanna. Því hefur
stundum verið haldið fram að vind-
orka sé komin á endamörk tækni-
framfara og ekki sé hægt að gera
mikið meira til að lækka kostnað
og afköst vindmylla.
Þessu er Jose Zayas, fram-
kvæmdastjóri Department of Ener-
gy’s Wind and Water Power Tec-
hnologies Office í Bandaríkjunum,
ósammála og líkir þróun í vindorku
við þróun nýrra bíla
„Á báðum sviðum er um að ræða
tækni sem við þekkjum og skiljum
mjög vél en hvorug tæknin er
komin á endastöð þróunar. Nýj-
ungar í bílum eru fjölmargar, allt
frá myndavélatækni, þróun raf-
magnsbíla og sjálfkeyrandi bíla.
Það er enn nóg svigrúm til að
bæta bíla. Sömu lögmál eiga við
um vindmyllur og við erum enn að
sjá mikla þróun á sviði vindorku og
munum sjá á næstu árum.“
Nýjungar í þróun vindmylla og
aukin áhersla á hreina orkugjafa
hefur þó eftir allt saman fært
hlutfall orkuframleiðslu frá vind-
orku úr 0,36 prósent árið 2004 í
4,83 prósent í byrjun þessa árs.
Vindorka gæti því orðið 10 pró-
sent af orkuframleiðslu Bandaríkj-
anna einhvern tíman á næstu tíu
árum.
Enginn vindur á Íslandi?
Vindorkan er komin til að vera og
ætlar að sækja í sig veðrið, ef svo
má að orðið komast, á næstu árum
og áratugum. Þessa auðlind hafa
Íslendingar hins vegar lítið sem
ekkert nýtt sér, þrátt fyrir að hér
á landi virðist sjaldan eða aldrei
gott logn.
Margrét Arnardóttir, verk-
efnastjóri vindorkuverkefnis
Landsvirkjunar, segir helstu
ástæðu þess að Íslendingar hafi
hingað til ekki nýtt sér vindinn í
orkuvinnslu í meira mæli hafi verið
góður aðgangur að ódýrum vatns-
afls- og jarðvarmaorkukostum.
„Við höfum þessa tvo frábæru
kosti í annars vegar vatnsaflinu og
hins vegar í jarðvarmanum sem
hafa fullnægt eftirspurninni og
þess vegna ekki þurft að skoða
aðra kosti til þessa. Þá hefur vind-
orkan verið dýrari hingað til en
vegna mikillar eftirspurnar eftir
hreinni orku hefur tækninni fleygt
fram og kostnaður hríðfallið. Þetta
skýrist ekki síst af aukinni um-
hverfisvitund fólks um allan heim
og áhuganum á því að skipta út
mengandi orkugjöfum eins og t.d.
kola- og gasorkuverum fyrir hreina
orkugjafa. Vindorkan er svarið við
því kalli og fyrir vikið er hún tölu-
vert hagkvæmari í dag en fyrir fá-
einum árum,“ segir Margrét og
bendir á að víða í heiminum sé
vindorka ódýrasti valmöguleikinn
þegar kemur að byggingu nýrra
virkjana. Einnig er Ísland meðal
þeirra svæða í heiminum þar sem
vindur á landi er hvað mestur.
Vel yfir heimsmeðaltali
Í desember árið 2012 reisti Lands-
virkjun tvær vindmyllur á hraun-
sléttu norðan við Búrfell í Þjórs-
árdal. Um er að ræða stærstu
vindmyllur sem reistar hafa verið á
Íslandi en mastrið sem heldur
hvorri myllu er 55 metrar á hæð.
„Við settum vindmyllurnar fyrst
og fremst upp til að kanna rekstur
vindmylla við séríslenskar að-
stæður ásamt því að skoða áhrif ís-
ingar, ösku, jarðvegs og áhrif á
dýra- og mannlíf. Vonir okkar
stóðu til þess að nýtingarhlutfall
vindmyllanna fyrir ofan Búrfell
gæti náð á bilinu 35 til 36 prósent
yfir árið en það er helsti mæli-
kvarði á hagkvæmni staðsetningar.
Fyrir fyrsta dagatalsárið reyndist
nýtingin hins vegar vera 44 pró-
sent sem var vonum framar og enn
í dag er nýtnihlutfallið svipað.“
Orkunýting vindmylla Lands-
virkjunar er því töluvert yfir
heimsmeðaltali sem að sögn Mar-
grétar er 28 prósent og telur hún
þá með vindmyllur á sjó úti sem
almennt skila hærra nýtnihlutfalli
en vindmyllur á landi.
Hver er þá möguleiki Íslands í
nýtingu á vindorku? Er þetta ein-
hver orka sem kemur frá einni
vindmyllu?
„Þessar vindmyllur sem við höf-
um sett upp hér eru frekar litlar á
heimsmælikvarða þótt okkur kunni
að finnast þær stórar. Þær vinna
hvor um sig um 900 kW að há-
marki og sé miðað við 40 prósent
nýtingu gætu þær fullnægt orku-
þörf um 700 heimila hvor.“
Mögulega fleiri vindmyllur
Vindurinn fer víða á Íslandi og
mörg svæði koma til greina við
uppsetningu á vindmyllum. Mar-
grét bendir þó á að þær muni
þjóna Landsvirkjun best í samspili
við vatnsaflið.
„Mikil samlegðaráhrif eru með
vindorku og vatnsorku. Vindasöm-
ustu mánuðir ársins eru einnig þeir
mánuðir þar sem vatnsrennsli í
uppistöðulón er minnst. Vindmyll-
urnar geta þá unnið rafmagn á
meðan vatnsaflstöðvar spara vatn
til að nota þegar vinda hægir. Við
vinnum nú að hönnun vindlundar
með allt að 200 MW uppsett afl á
sama svæði og rannsóknarvind-
myllurnar eru staðsettar. Fyrir-
hugaður virkjunarkostur gerir ráð
fyrir allt að 80 vindmyllum sem
eru töluvert stærri en þær sem
fyrir eru.“
Spurð um frekari uppsetningu
vindmyllna á Íslandi og hvort þær
nýtist eingöngu til jöfnunar við
aðra orkugjafa segir Margrét vind-
inn spennandi kost og ný tækni
geri hann enn meira spennandi og
vísar þá m.a. í nýja orkugeymslu-
tækni frá fyrirtækinu Tesla.
Virkja
íslenska
vindinn
VINDORKA HEFUR VERIÐ VANNÝTT AUÐLIND Á ÍSLANDI
EN NÚ ERU ÁFORM UM AÐ SETJA UPP TUGI VINDMYLLNA
TIL AÐ BEISLA KRAFTA VINDSINS.
Vilhjálmur Andri Kjartansson vilhjalmur@mbl.is
Margrét Arnardóttir, verkefnastjóri vindorkuverkefnis Landsvirkjunar, segir möguleika Íslands á sviði vindorku vera
mikla. Rannsóknir á tveimur vindmyllum séu jákvæðar en nýtingahlutfall þeirra hafi verið 44 prósent.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Um langt skeið átti gítarmagnarinn
hug og hjörtu þeirra hjá gítarmagn-
araframleiðandanumMarshall, svo
bættust heyrnartól og blátannar-
hátalarar við. Nú hefur fyrirtækið
bryddað upp á því að smíða snjall-
síma sem hlotið hefur heitið Lond-
on og keyrir á Android búnaði.
Hafi maður á annað borð hug-
mynd um vanalegt útlit Marshall
mun hönnunin á snjallsímanum ekki
koma á óvart. Síminn hefur þetta
sérstaka kassalagaða útlit, er með
tveimur hátölurum að framanverðu
og tveimur tengjum fyrir heyrn-
artól að ofanverðu. Tónlistin ræður
hönnun tækisins að utan jafnt sem
innan, en Marshall vann símann í
samvinnu við finnska fyrirtækið
Creoir.
Tækið býður upp á að tveir geti
hlustað í einu á tónlist í víðómi.
Snúrutengin tvö bjóða eins upp á
að hægt er að spila tónlist í gegn-
um símann á meðan hlustað er á
aðra línu með heyrnartólunum
gegnum sérstakt smáforrit fyrir
plötusnúða.
Vilji maður hins vegar taka upp
fremur en að spila tónlist er einfalt
að taka upp með tvöföldum hljóð-
nema sem er hávaðadeyfandi. Þá
fylgir einnig sérstakt smáforrit til
þess að nota við upptökur.
Músíksími frá Marshall
GÍTARMAGNARAFRAMLEIÐ-
ANDINN MARSHALL MUN
SENDA FRÁ SÉR SNJALLSÍMA
FYRIR TÓNLISTARUNN-
ENDUR Í LOK ÁGÚST.
Tónlistarunnendur með tækjadellu munu vilja eintak af Marhall London.
Púlsinn sló ekki í starfsmönnum nýs
hótels sem var opnað í Japan í vik-
unni, og ekki hjartað heldur ef út í
það er farið. Það vill svo til að allir
starfsmenn hótelsins eru vélmenni
af einni eða annarri sort.
Talið er að „daman“ og ensku-
mælandi risaeðla sem starfa við
móttökuborðið muni vekja mesta
lukku meðal gesta en auk þeirra er
fjöldi annarra vélmenna sem vinnur
ýmiss konar störf á hótelinu.
Vélmenni sjá til að mynda um að
flytja farangur fyrir gesti og svo má
nefna að hinn viðkunnanlegi og tví-
tyngdi Nao er í húsvarðarhlutverki.
Til stendur að vélmenni sjái um her-
bergisþjónustu, væflist um og veiti
upplýsingar um skemmtilega við-
burði í nánd við hótelið. Loks ber að
nefna einkaþjóninn Kawaii sem
fylgir öllum herbergjum og sér um
daglega dynti, stjórnar t.d. ljósum
og fylgist með veðrinu svo gestir viti
hvort þeir þurfi að taka regnhlíf með
sér út í skoðunarferðina.
VÉLMENNAHÓTEL
Enskumælandi risa-
eðla í móttökunni
Það eru litlar líkur á mannlegum mis-
tökum á þessu hóteli í Japan.