Jökull


Jökull - 01.12.1952, Blaðsíða 9

Jökull - 01.12.1952, Blaðsíða 9
Ákoma á Vatnajökli. Brotnu línurnar sýna vatnsgildi snjólagsins frá hausti 1950 til 24. apr. 1951. Accumulation on Vatnajökull. The broken lines show the water-equivalent of the snow layer of the winter 1950/51 up to April 24, as measured by the author during tlie French-Icelandic Vatna- jökull Expedilion, March-April 1951. (Cnfr. also the table in the right hand corner of the map). Vonarskarði og vestur um Hágöngur var lítill snjór. Þar eð teikningin á aSeins að sýna snjómagn- ið á Vatnajökli, eins og það var 24. apríl 1951, má ekki taka þessar niðurstöður sem heildar- magn snjósöfnunartímabilsins 1950—1951, því að snjósöfnun mun hafa haldið áfram fram eftir vori, einkum á mið- og norður-hluta jökulsins. En snjómælingar eru fyrst einhvers virði, þegar þær ná óslitið yfir nókkurt árabil og athuganir fara fram eigi sjaldnar en tvisvar á ári, vor og haust. Fyrir nokkrum árum hefði það verið tal- in bjartsýni að tala um reglubundnar snjómæl- ingar á Vatnajökli vegna erfiðleika og kostnað- ar. Nú horfir málið öðruvísi við, þar sem góðar snjóbifreiðar eru komnar til sögunnar. Eitt mesta vandamál mælinganna var að ákveða mörkin milli árslaganna, en við það naut ég leiðbeiningar Jóns Eyþórssonar, sem fengið hefur mikla reynslu af snjómælingum. Víða var hægt að fara eftir ryklagi í snjónum, einkum neðan við snælínu, en þegar við slíkt var ekki að styðjast, var ákvörðunin grund- völluð á útliti hjarnlaganna og stærð krystall- anna. Takist að koma á fót reglubundnum og samfelldum snjómælingum, verður að setja nið- ur stálpípur eða aluminiumstangir með fótplöt- um og mæla svo við stangirnar ár eftir ár. SUMMARY. The winter 1950f51 was cold with persisting winds from NE. The maximum accumulation was found in the central and northern portions of the ice cap. The author points out, that in 1936 the Swedish-Icelandic expedition, on the contrary, found the maxi-. mum accumulation on the southern slopes, 1000—1300 m. a. s. 7

x

Jökull

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.