Jökull


Jökull - 01.12.1952, Page 34

Jökull - 01.12.1952, Page 34
land frá 1901—1949. Árin 1901—1915 eru gerð eftir línuriti Thoroddsens, en við það hef ég aukið framhaldinu eftir heimildum, sem fyrir liggja. Er þær einkum að finna í Nautisk-Mete- orolgisk Árbog, sem danska veðurstofan gefur út, og ísfregnum, sem Veðurstofa íslands hefur safnað. Myndin sýnir, að mesta ísár á þessari öld var 1902. Þar næst eru svo 1911 og 1915. Árið 1918 kom mikill hafís að landi í jan., en hvarf aftur um miðjan febrúar. Síðan hafa flest ár verið íslaus að kalla. Þó var talsverður lausais við land vorið 1932 og 1949. Hinir dreifðu svörtu punktar tákna yfirleitt, að ís hafi sézt snögg- vast frá landi eða á miðurn úti, en horfið mjög fljótlega, án þess að verulegur trafali yrði af fyrir fiskveiðar eða siglingar. POLAR ICEAT THE COASTS OF ICELAND In the 19th century the occurrence of polar ice was very frequent at the Icelandic coasts, in some cases almost surroundig the whole island. Th. Thoroddsen has made a diagram showing the duration and magnitude of polar ice at the Icelandic coasts for the periode 1781—1915. The above figure is based on that diagram for 1901—1915 but the rest has the present author made according to available sources. The diagram shows that since 1918 there has been very little ice at the Icelandic coasts. Most of the years have been without ice or only scattered ice has been observecl from land or reported by ships. Erlendir gestir Sumarið 1952 komu allmargir ungir náttúru- fræðingar hingað til þess að kynna sér sitthvað í náttúru landsins. Hér verður getið þeirra, sem helzt lögðu stund á rannsókn jökla. Voru þeir allir brezkir. Fjórir stúdentar frá Durham háskóla unnu að rannsóknum á Breiðamerkurjökli. Er þetta 5. sumarið í röð, sem leiðangur keniur hingað frá Durham. Hafa þeir jafnan unnið í sam- starfi við Jón Eyþórsson og m. a. mælt og gert Leiðangur Rannsóknafélags Durharn háskóla, 1952. Talið frá vinstri: A. J. Clissold, M. S. Wilkinson (fararstjóri), R. H. Jewitt og J. S. Heatley. The members of the Durham University Explor- ation Society Expedition 1952. uppdrætti af Sólheimajökli (1948), Kötlujökli (1949), I-Iagavatni (1950), og Breiðamerkurjökli og Esjufjöllum (1951—1952). Frá því seint í júlí til ágústloka 1952 unnu 6 enskir kvenstúdentar að kortagerð og mæling- um á jaðarrásasvæðinu suður af Másvatni í Suð- ur-Þingeyjarsýslu. Voru þessar mælingar gerð- ar að undirlagi Sig. Þórarinssonar í því skyni að komast að nánari vitneskju um það, hversu hratt ísaldarjökullinn hefði þynnzt og hörfað á þessu svæði. Stúlkurnar, sem þátt tóku í þess- um leiðangri voru: N. E. Drew (fararstjóri), M. Rodgers, P. A. Cordingley og M. Kimberley, allar frá Lundúnaháskóla (Bedford College), B. Roofe og C. Moore, frá háskólanum í Cam- bridge (Newnham College). í júlímánuði og framan af ágústmánuði dvöldu tveir stúdentar frá háskólanum í Notting- ham, J. D. Ives og H. T. Gleave, í Öræfum, einkum á svæðinu kringum Morsárjökul, og unnu að ýmsurn undirbúningsrannsóknum í sambandi við stærri leiðangur, sem þeir hyggj- ast gera til þessa svæðis á sumri komanda. PRENTSMIÐJAN ODDl H.F. 32

x

Jökull

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.