Jökull


Jökull - 01.12.1968, Síða 12

Jökull - 01.12.1968, Síða 12
jöklinum, en 76% renni burtu þegar fyrsta sumarið. Með því að notfæra sér vatnsgildi lags- ins frá næstsíðasta ári má svo reikna út, að árs- úrkoman við L-VI sé 3100 mm. Samkvæmt upp- lýsingum Veðurstofunnar, sem hefur áætlað meðal ársúrkomu við L-VI út frá öðrum for- sendum, ætti hún að vera um 2800 mm. Mæl- ingar á tvivetni kjarnans frá L-V og V-X, sem báðar eru i tæplega 1300 metra hæð yfir sjávar- máli, sýna, að 52% ársúrkomunnar sitja þar eftir sem ís, en 48% renna burtu fyrsta árið. Vatnsgildi kjarnans frá fyrra ári er ekki þekkt við L-V. Við V-X bendir það hins vegar til, að ársúrkoman þar sé 3100 mm, en það er í góðu samræmi við 3000 mm úrkomuáætlun Veðurstofunnar. Nú sem stendur er verið að mæla tvívetnismagn kjarna úr fyrri árlögum frá nokkrum öðrum stöðum á Vatnajökli. Þótt ekki sé hægt að segja neitt með vissu um niður- stöður þeirra mælinga, enn sem komið er, virð- ist þó ýmislegt benda til, að þegar komið er upp fyrir 1500 m hæð, nái vetrarlagið ekki að gegnblotna yfir sumarið. En það merkir aftur, að beinar mælingar á vatnsgildi kjarna úr fyrra árlagi eiga að gefa til kynna heildarúrkomu ársins. Tvivetni sem hitamœlir liðins tíma Sunnan í Bárðarbungu, í um 1830 m hæð, var grafið og borað með snúningsbor nokkuð niður í næstsíðasta vetrarlag. Staðurinn er merktur V-IX á Mynd 4. Þá var boruð þarna hola með bræðslubor niður á 41 m dýpi. A um það bil 38 m dýpi var komið niður á tæran ís, sem reyndist óslitinn niður á 41 m dýpi. Mælingar á kjarna grynnri holunnar svo og ís- kjarna neðan við 38 m dýpi, benda til þess, að Bárðarbunga sé því sem næst gaddjökull, þ. e. að lítil eða engin sumarbráðnun eigi sér stað. Þetta eru mjög mikilsverðar upplýsingar, því að samkvæmt þeim ætti tvívetnismagn íssins í Bárðarbungu að endurspegla hitabreytingar lið- inna alda, svipað og súrefnissamsætur gera í Grænlandsjökli. Að vísu er ísinn neðst í jökl- inurn á Bárðarbungu vart mjög gamall, ef til vill 400—1000 ára, svo að mælingar á breytingu árshita munu ekki ná yfir nema sögulegan tíma. Slíkar mælingar eru þó vafalaust mikils virði. A árinu 1969 er ætlunin að reyna djúpborun 346 JÖKULL 18. ÁR el'st á Bárðarbungu. Mun reynt að bora 100— 200 m djúpa holu með bræðslubornum. Hvort slík borun tekst, er enn óvíst, úr því verður reynslan að skera. Til allrar óhamingju breytir bræðsluvatn það, sem myndast við borunina, tvívetnismagni kjarnans, á meðan ekki er um saml’elldan ís eða mjög gróft hjarn að ræða. Því er þess að vænta, að kjarni tekinn með bræðslubornum sé fyrst nothæfur til tvívetnis- mælinga, þegar komið er niður fyrir 30 metra. Þar fyrir ofan er því aðeins hægt að notast við kjarna úr gryfju eða kjarna, sem tekinn er með snúningsbor. Þar sem talsverð vandkvæði munu vera á að ná sýnum niður á 30 m dýpi á þann hátt, má búast við, að einhver eyða verði í samfelldum mælingum á Bárðarbungu á komandi sumri. Annað vandamál í sambandi við djúpborun er svo tímasetning ískjarnans. Þrívetnismælingar munu ef til vill aðeins not- hæfar til að tímasetja ískjarna síðustu 20 árin. Tvívetnismælingar má ef til vill einnig nota til tímasetningar, en þó er það ekki fullvíst. Þriðji möguleikinn til að tímasetja kjarnann á ein- faldan hátt er sá, að í ísnum finnist öskulög eldgosa, sem vitað er, hvenær áttu sér stað. Bregðist þessar aðferðir, eru að vísu aðrar þekktar, sem notfæra má við tímasetningu, svo sem að mæla geislakol eða geislavirka kísilsam- sætu, sem finnst í ísnum. Slíkar aðferðir eru þó mjög flóknar og krefjast auk þess mikils magns af ís. Það er því augljóst, að enn er margt óleyst, áður en hægt er að ráðast í endanlega borun gegnum Bárðarbungu með fullkomnum árangri. Sú borun, sem framkvæmd verður í ár, mun þó væntanlega upplýsa, hvort djúpborun í Bárðar- bungu veiti það miklar upplýsingar, að rétt- lætanlegt sé að ráðast í hana. F.innig ætti að koma í ljós, hvort unnt er að beita við borun- ina tiltölulega einföldum aðferðum, eða hvort meiri umsvif reynast nauðsynleg, en það merkir þá jafnframt, að kostnaður við borunina eykst verulega. Notkun tvívetms við rannsóknir á hreyfingum jökla Að lokum er eitt atriði enn, sem ef til vill má fá talsverðar upplýsingar um með tvívetnis- mælingum. Það eru hrevfingar jökulsins. Til að skýra þetta nánar má hugsa sér þversnið af
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Jökull

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.