Jökull


Jökull - 01.12.1968, Síða 49

Jökull - 01.12.1968, Síða 49
13. mynd. Langskurðir frá Nýjafelli. H: hæð m y. s. DN: fjarlægð frá Nýjafelli, km. 19. sept. 1946 (skv. korti U. S. AMS.); 20. júní 1959; 12—14. júní 1967. Fig- 13. Profiles of the glacier front above Nýjafell. H: elevation, metres above sea level. DN: distance from Nýjafell, km. Sept. 19, 1946 (after the map of U. S. AMS.); June 20, 1959; June 12-14, 1967. ÁLYKTANIR Athuganir þær og mælingar, sem skýrt er frá hér að framan, benda til, að Tungnárjökull hlaupi fram á nokkurra áratuga fresti. Sömu sögu er að segja um aðra flata skriðjökla á norður- og vesturhluta Vatnajökuls. Sigurður Þórarinsson (1964) hefur dregið saman heimild- ir um þessi framhlaup, og telur hann fráleitt, að orsök þeirra sé eldsumbrot undir jökli. Skyndileg framhlaup jökla gerast víðar en á íslandi, t. d. í Alaska (Post 1960), Suður-Ame- ríku og Mið-Asíu (Lliboutry 1965, bls. 658). Greinargerð Post’s um framhlaup jökla í Alaska er mjög fróðleg, einkum athuganir á Muldrow jökli fyrir og eftir framhlaup 1956— 1957. Þessi jökull er langur og tiltölulega rnjór og verður til úr mörgum þvergreinum, er falla af lijarnjöklum. Neðsti hlutinn er allajafna kyrrstæður og eyðist af leysingu, en miðhluti jökulsins hækkar vegna skriðs frá þverjöklun- um, þar til jafnvægið raskast og jökullinn hleypur fram. Post sýnir fram á, að hugsan- legt er að jarðskjálftar hafi komið sumum fram- hlaupunum i Alaska af stað, en raunverulega ástæðu þeirra telur hann röskun á jafnvægi vegna íssöfnunar á miðhluta jökulsins eins og að framan greinir. Weertman (1962) hefur sett fram allflókna kenningu til að útskýra skyndileg framhlaup með minnkandi núningsmótstöðu við botn jökl- anna. Hann gerir ráð fyrir, að vatnið á botn- inum sé í því sem næst jafnþykku lagi. Ef þetta vatnslag þykknar af einhverjum ástæðum, getur það kaffært ójöfnurnar, sem annars ráða skrið- hraðanum. Hinir erlendu jöklar, sem kunnugt er um framhlaup á, eru allir býsna ólíkir hinum flötu skriðjöklum Vatnajökuls. I Alaska a. m. k. eru þetta langir og mjóir jöklar. Lliboutry (1965) getur þess (eftir Mercer), að allt séu þetta „kaldir" jöklar á fremur úrkomulitlum svæð- urn, en Vatnajökull er tempraður og úrkoma þar mikil. Auðvelt er að skýra framhlaup Tungnár- jökuls, ef hann er kyrrstæður milli framhlaupa. Augljóst er, að kyrrstæður jökull tekur mikl- um breytingum með tímanum. Hann þynnist neðan jafnvægislínunnar og þykknar ofan henn- ar og verður smám saman allur brattari. Þetta kemur vel heim við Tungnárjökul á árunum frá 1946 til 1967, sbr. Mynd 13. Nauðsynlegt skilyrði þess, að jökull geti verið kyrrstæður, er að innri spennur, sem orsakast af eigin- þunga jökulsins, fari ekki yfir ákveðið mark, JÖKULL 18. ÁR 383
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Jökull

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.