Jökull - 01.12.1974, Qupperneq 74
um kl. 11 árdegis féllu nokkrar skriður á Hval-
fjarðarveginn innan við Skeiðhól, og var sú
mesta skammt innan við hólinn. Tepptust tugir
bíla beggja vegna við skriðuna í rúma þrjá
klukkutíma, þar á meðal áætlunarbílar vestur
og norður.
1963
(.Skriðufall úr Laugarvatnsfjalli. Heimild: Morg-
unbl. 6. marz.)
Laugardaginn 2. marz síðdegis féllu tvær skrið-
ur úr Laugarvatnsfjalli, upp af byggðinni á
svipuðum stað og á s.l. ári. Þessar skriður stöðv-
uðust þó áður en þær komust niður í fjalls-
rætur.
(Hrun í Olafsvikurenni. Heimild: Morgunbl.
27. apríl.)
Sunnudaginn 21. apríl varð grjóthrun t'ir
Olafsvíkurenni inni á Klifi og lenti allstór
steinn á jeppabíl, er þar var á ferð, braut vélar-
hús hans og annað aurbrettið, en fór síðan urn
30 m niður á litis þar fyrir neðan. Við þetta
snerist bíllinn við á veginum. Tveir menn,
feðgar, voru i bílnum og sakaði þá ekki, en
grjót féll bæði framan og aftan við bílinn.
(Vegarspjöll á Austurlandi. Heimild: Morgun-
bl. 14. maí.)
Aðfaranótt 12. maí rigndi rnikið á Austur-
landi og fóru vegir víða illa, en þeir voru
blautir fyrir og jarðklaki í þeim, svo að vætan
seig seint niður. Aurskriða féll þá á veginn
skammt frá Eskifjarðarkauptúni.
(Hrun úr Ólafsvíkurenni. Heimild: Morgunbl.
28. ágúst.)
Tveir rnenri voru við sprengingar undir Olafs-
víkurenni á mánudagskvöldið 21. ágúst um kl.
8. Kom þá grjóthrun úr Enninu og slasaðist
annar maðurinn, svo að flytja varð hann í
skyndi með flugvél á Landsspítalann í Reykja-
vík.
Talið var, að sprengingarnar hefðu valdið
hruninu.
1964
(Skriðuföll í Ólafsfirði. Heimild: Tíminn 25.
ágúst.)
Eftir rniðjan sept. gerði Jrrálátar rigningar á
70 JÖKULL 24. ÁR
Siglufirði og Ólafsfirði með snjókomu til fjalla.
Föstudaginn 21. var hvítt af snjó ofan í sjó
á Olafsfirði, en þann snjó tók að mestu upp
laugardaginn 22., því að þá rigndi látlaust, og
urðu þá miklir vatnavextir. Um kvöldið þ. 22.
hlupu fram þrjár skriður í svokölluðu Kleifa-
horni. Tvær Jreirra runnu saman, er niður kom,
og færðu Kleifaveginn í kaf á 60—80 m kafla.
Urn 200 m norðar hljóp stærsta skriðan fram
úr djúpu gili og rauf stórt skarð í veginn. Var
vegurinn af þessum sökum ófær um hríð.
(Skriðuföll í Vatnsdal. Heimild: Morgunbl. 2.—
4. sept.)
Mánudaginn 31. ágúst féll skriða úr Vatnsdals-
fjalli milli Bjarnastaða og Másstaða. Þetta var
urn kl. 9 síðdegis. Kom skriðan eftir lækjargili
hátt úr fjallinu, en breiddi úr sér, er farveg-
inn þraut, skammt ofan við veginn, og flæddi
yfir hann á 40—50 m breiðum kafla, svo að
hann varð gersamlega ófær. Síðan hélt nokkur
hluti skriðunnar áfram alveg niður í Flóð.
Mjög mikil rigning var þarna á mánudaginn
fram um liádegi, en minni, er leið á daginn.
Leysing var mikil í fjallinu, og olli hún vexti
lækja og smáskriðulilaupum hér og þar.
Leysingin hélt áfram næstu daga. Klukkan
7—8 á miðvikudagskvöldið 2. sept. hljóp mikill
vöxtur með grjótburði í læk, sem rennur gegn-
um túnið á Bjarnastöðum, en hann hafði ekki
borið frarn grjót að neinu ráði síðan í júní
1925 (sbr. Skriðuföll og snjóflóð I, bls. 467).
Einnig hljóp þetta sama kvöld mikið flóð í
bæjarlæk á Hjallalandi, 3—4 km sunnar, og
breytti það farvegi lækjarins til muna.
Þessi hlaup í lækjunum hljóta að orsakast af
vatni, er safnast fyrir inni á fjallinu.
Loks gerðist það svo um kl. 1 á fimmtudags-
nóttina 3. sept., að skriða hljóp úr Vatnsdals-
fjalli rétt norðan við Hjallaland, en olli ekki
tjóni. Tvær smáskriður höfðu orðið þar nokkru
áður. Um líkt leyti og þessi síðasta skriða hljóp,
kom nýtt hlaup í lækinn á Bjarnastöðum, en
olli ekki tjóni. Vöxtur lækjarins hélzt næstu
daga.
(Skriður i Valþjófsdal. Heimild: Veðráttan okt.)
MiSvikudaginn 21. okt. runnu sex skriður á
veginn í Valþjófsdal í Onundarfirði. Miklar
rigningar voru vestanlands um þetta leyti. Varð
úrkoman 70 mm í Kvígindisdal eina nóttina.