Jökull


Jökull - 01.11.1998, Page 59

Jökull - 01.11.1998, Page 59
um vestantil (þ.e. vestan Hrútár og nokkuð austan hennar eins og hún fellur nú). Við Hrútá lá hann fram úr öldunum fram að Heiði, upp að kletti við svonefndar Hrútártorfur og stíflaði Múlakvísl um skeið við mynni Múlagljúfurs einhverntíma á árunum 1870-77, er hefur verið mikill gangur í honum, en tók síðan að hörfa talsvert, a.m.k. við Heiðina. Nokkrum ámm áður hafði þó verið allbreitt bil milli Heiðarinnar og jökulsins. En telja má víst að nokkrum áratugum áður hafi jökullinn einnig lagst að Heiðinni um tíma, sennilega á ámnum 1830-40 (Sigurður Bjömsson, 1958). Ekki hefur jökullinn þó alls staðar gengið fram á fremstu öldur á árunum 1870-80 að sögn eldra fólks, enda virðist ölduröð, sem sums staðar má sjá framan við aðal öldurnar bera þess merki að jökullinn hefur ekki gengið fram á þær á síðari hluta þeirrar aldar. Eru þær austantil við Fitjaöldur (við Fjallsá) og í Gamla- seli, fram af mótum Hrútár- og Fjallsjökla. Þessar öld- ur eru lágar, enda hefur borið að þeim árframburð. Sumar þeirra eru allvel grónar og eins á köflum milli þeirra, þó svo sé ekki alls staðar. Munur á gróðri var þó mun meira áberandi fyrr á ámm, áður en gróður fór að aukast í hinum yngri öldum, og þær sem best voru grónar á Fitjum hefur Fjallsá algerlega eyðilagt er hún tók að renna þama fram 1938. Við Fitjar (Fitjaöldur) eru þessar öldur um 50-100 m framan við næstu 4. mynd. Séð frá hlaðinu á Reynivöllum í Suðursveit í september 1996. Breiðamerkurjökull er að mestu horfinn af sjónarsviðinu. Veitið einnig athygli hve mikið Öræfajökull hefur hjaðnað. Yfirborð Breiðamerkurjökuls er skýrt með brotinni línu. Ljósm. Þorsteinn Þorsteinsson. - The same view as infig. 3 in Septemher 1996. Breiðamerkurjökull has almost completely disappeared from the scene. The outlet glaciers from Orcefajökull in the background have also shrunk notably. The profile of Breiðamerkurjökull is accentuated by a dashed line. JÖKULL, No. 46, 1998 57

x

Jökull

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.