Jökull - 01.11.1998, Blaðsíða 72
það sem eftir lifði dags. En á Öræfajökul komumst við og
munaði þar mestu að Hegglund snjóbíll Landsvirkjunar
braut slóðina en færi var æði erfitt fyrir jeppa ofan 1700m
hæðar. A sléttunni var tekin ákomuhola auk þess sem
mælt var þyngdarsvið í öskjunni og norðan hennar. Hins
vegar gaf ekki til göngu á Hvannadalshnúk. A fimmtu-
dag var lokið við þau verkefni sem eftir voru á fjallinu og
um kvöldið var grillað. Niðurferðin var föstudaginn 14.
júní og gekk að óskum. Til Reykjavíkur komum við svo
síðdegis á laugardag eftir vel heppnaða ferð.
RANNSÓKNIR
Vatnshæð Grímsvatna mældist 1384 m y.s. og var sig í
hlaupinu í apríl því 72-75 m. Úr Grímsvötnum runnu 1.1.
km3, heldur minna en í síðustu hlaupum. Er það í takt við
þá þróun sem í gangi hefur verið síðustu 40 ár, að Gríms-
vötn ganga saman vegna þess að jarðhiti hefur minnkað.
Vatnið undir ísnum minnkar að sama skapi og íshellan
þykknar. Þetta veldur æ minni Skeiðarárhlaupum. Ekki
sér fyrir endann á þessari þróun. Þó svo heldur minna
vatn hafi mnnið fram í hlaupinu 1996 en áður, var hlaup-
toppur niðri á Skeiðarársandi hærri en verið hefur síðustu
20 árin. Stafaði þetta líklega af því að nýr sigketill mynd-
aðist í Grímsvatnaskarði, á þröskuldinum sem stíflar
Grímsvötn. Hefur ketilmyndunin (vegna aukins jarðhita í
skarðinu) auðveldað hlaupvatninu að opna sér leið út úr
vötnunum og göng við botn jökulsins því náð að víkka
hraðar og flytja meira vatn en í síðustu hlaupum. Vetrar-
ákoma í Grímsvötnum var 4,8 m og vatnsgildi hennar
2450 mm. Er það heldur undir meðallagi.
Vetrarákoma á Öræfajökli reyndist 11,7 m á þykkt
og vatnsgildið 6300 mm. Er þetta svipað og síðustu 4 ár
og benda tölumar til þess að Öræfajökull sé úrkomusam-
asti staður landsins. Þyngdarmælingar voru gerðar á
Öræfajökli en hann er stærsta eldfjall landsins auk þess
að standa utan eiginlegra gosbelta. Vegna þessarar sér-
stöðu sinnar er hann áhugaverður og er tilgangur þyngd-
armælinganna að kanna innri gerð hans og bera hana
saman við önnur eldfjöll.
GPS tæki voru notuð til að mæla hæð jökulyfrrborðs
við Skaftarkatla. Tilgangurinn er að kanna hugsanlegar
breytingar vegna jarðhitavirkni í kötlunum. Þyngdar-
mælingar vom gerðar samhliða GPS mælingunum. Með
þyngdarmælingunum á að kanna jarðskorpuna undir
kötlunum og þar með hugsanlegar orsakir jarðhitans.
Fyrstu prófanir á nýrri íssjá Raunvísindastofnunar
vom gerðar á Grímsfjalli. Skoðuð var lagskipting snævar
en nýju íssjánni er ætlað að skoða lagskiptingu jökulsins,
m.a. öskulög.
Vitjað var um sjálfvirkar veðurstöðvar Raunvísinda-
stofnunar og Landsvirkjunar á Grímsfjalli, Skálarfells-
jökli og Köldukvíslarjökli. Em stöðvamar hluti af sam-
evrópsku verkefni sem miðar að því að kanna samspil
veðurfars og leysingar á jöklum.
Eins og oftast áður lagði Landsvirkjun til snjóbíl og
Vegagerðin styrkti félagið til kaupa á eldsneyti. Skiptir
þessi stuðningur miklu máli og á stóran þátt í þeim
árangri sem náðst hefur. I ferðinni tókst að bæta nokkm
við eldsneytisbirgðimar á Grímsfjalli.
Þóra Karlsdóttir sá um að panta mat og stjómaði síðan
matseld og birgðahaldi í ferðinni. Sjöfn Sigsteinsdóttir og
fleiri sáu um pökkun á meirihluta matarins hér í
Reykjavík en Þóra gekk frá öðra á Kirkjubæjarklaustri
þar sem hún býr. Ferðanefndin og bílanefndin áttu veg
og vanda að undirbúningi ferðarinnar. Reyndar gerði það
undirbúninginn auðveldari en ella, að ekki þurfti að flytja
snjóbílana austur að þessu sinni því báðir vom staðsettir í
Jöklaseli eftir ferðir vorsins.
Vorferðir JÖRFI hafa verið árlegir viðburðir síðan
1953. Frumherjamir em famir að týna tölunni en með í
för nú var Inga Amadóttir en hún fór sína fyrstu vorferð
árið 1956,'fyrir réttum 40 ámm. Vonandi munu einhver
okkar hinna sem yngri em, ná að sýna sama úthaldið.
Hluti hópsins á Grímsfjalli við snjóbílinn Jaka.
70
JOKULL, No. 46, 1998