Jökull


Jökull - 01.11.1998, Page 62

Jökull - 01.11.1998, Page 62
jaðarurðum þeirra og einkum á það við fram af Kvíárjökli milli Kambanna. Með tilliti til þessa mun mega telja líkur til að stórgrýti þetta við Kvíárjökul muni að nokkru (e.t.v. miklu) leyti vera frá þessu tíma- bili, eða ekki löngu síðar. GRÓÐUR Á JÖKLI I Esjufjallarönd var gróðurtorfa, eða öllu réttar smá torfur þétt saman, spölkom frá jökuljaðrinum hér um bil upp frá miðjum Nýgræðum. Þarna var grjótjökull en gmnnt á ísinn. Ekki er vitað með vissu hve lengi þessi gróður hefur verið þama, eða hvenær fyrst hefur orðið vart við hann, en stærst mun torfan hafa orðið og heilleg- ust á árunum 1910-1920, og þá notuð til beitar á sumr- um. Grasið var hávaxið og gróskumikið og grænkaði snemma, enda notið áburðar frá svartbak, sem verpti þar, en nægur raki úr jöklinum. Þama var skýlt og lá vel við sól. Röndin var mjög há um miðju og óslétt. Torfan var sunnan eða suðvestan í röndinni og því í skjóli fyrir norðanátt, sem raunar gætir lítið á þessu svæði þó hún sé oft hvöss vestar á sandinum. Austan- áttar gætir lítið á þessum slóðum, þó henni fylgi oft mikil rigning. Líklega hafa torfumar oftast verið innan við 100 m á lengd og nokkm mjórri, þýfðar mjög eða ójafnar á yfirborði og svo sem að líkum lætur breyting- um háðar, ekki aðeins hvað lögun snerti, heldur og stærð og legu. Héldust þær þó alllengi, enda mun svartbakur- inn hafa átt sinn þátt í að græða þær upp á ný er einhver hluti þeirra byltist um. Er jökullinn fór að skríða fram á þessu svæði fyrir og um 1929, fóru torfumar að tætast í sundur og hurfu síðan er lónið fór að myndast við jökuljaðarinn. Gróð- urinn var fábreyttur, aðaltegundin mun hafa verið fjalla- sveifgras, en fleiri puntgrös munu hafa fundist þar, einnig helluhnoðri og skammkrækill. Þess má geta að 1933 var smá torfa (mun hafa verið á annan fermetra) skammt framan við Esjufjöll á röndinni. HELSTU RIT SEM STUÐST ER VIÐ Ahlmann, H. W. og Sigurður Þórarinsson. 1943. Vatnajökull. Scientific results of the Swedish-Icelandic investigations 1936-37-38. Stockholm, ESSELTE. Árni Magnússon. 1955. Chorographica Islandica. Safn til sögu Islands og íslenskra bókmennta að fornu og nýju. Annar flokkur 1.2. Reykjavík, Hið íslenska bókmennta- félag. Bjöm Pálsson. 1953. Eg man þá tíð. Ileima er bezt, janúar hefti. Boulton, G. S., P. W. V. Harris og J. Jarvis. 1982. Stratigraphy and stmcture of a coastal sediment wedge of glacial ori- gin inferred from sparker measurements in glacial Lake Jökulsárlón in southeastem Iceland. Jökull, 32,37-47. Eggert Olafsson. 1981. Ferðabók Eggerts Olafssonar og Bjarni Pálsson, um ferðir þeirra á Islandi árin 1752- 1757. Steindór Steindórsson íslenskaði. Bókaútgáfan Öm og Örlygur hf. Finnur Jónsson. 1914. Tvö heimildarit um byggð í Öræfum. I Afmœlisrit til dr. phil. Kr. Kahmds bókavarðar við safn Arna Magnússonar 19. ágúst 1914, bls. 34-47. Kaup- mannahöfn, Hið íslenska fræðafélag. Flosi Bjömsson. 1957. Gengið á Öræfajökul í slóð Sveins Pálssonar. Jökull, 7, 37-39. Flosi Bjömsson. 1965. Varða Sveins Pálssonar. Jökull, 15, bls. 121. Flosi Bjömsson. 1975. Varða Sveins Pálssonar í Kvískerja- föllum. Arbók Hins ísl. fornleifafélags 1974,143-146. Guðmundur G. Bárðarson. 1934. Islands Gletscher. Beitrdge zur Kenntnis der Gletscherbewegungen und Schwankun- gen auf Grund alter Quellenschriften und neuester Forschung. Reykjavík, Vísindafélag Islendinga (Societas Scientamm Islandica), XVIII. Guttormur Sigbjamarson. 1970. On the recession of Vatna- jökull. Jökull, 20,50-61. Háskólinn í Glasgow. 1965. Kort af Breiðamerkurjökli í mæ- likvarða 1:15.000. Department of Geography. Henderson E. 1957. Ferðabók: frásagnir um ferðalög um þvert og endilangt Island árin 1814 og 1815 með vetur- setu í Reykjavík. Reykjavík, Snæbjöm Jónsson. Holland E. T. 1862. Peaks, passes, and glaciers: being excur- sions by members ofthe Alpine Chtb. London. Howell, F. W. W. 1893. Icelandic pictures. London, The Re- ligious Tract Society. Isleifur Einarsson. 1918. Skrá frá 1712 um eyddar jarðir í Öræfum. Blanda I. Reykjavík. Lister, H. 1953. Report on glaciology at Breiðamerkurjökull 1951. Jökull, 3,23-31. Nprlund, N. E. 1944. Islands Kortlœgning. En historiskfrem- 60 JOKULL, No. 46, 1998

x

Jökull

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.