Jökull


Jökull - 01.06.2000, Page 57

Jökull - 01.06.2000, Page 57
Upphaf smásjárrannsókna á þunnsneiðum af bergi, og nokkur / tengsl þess við Island Leó Kristjánsson, Raunvísindastofnun Háskólans, Haga, Hofsvallagötu 53, IS-107 Reykjavík INNGANGUR Svonefndar „skautunarsmásjár" (polarizing micro- scopes) hafa verið ómissandi tæki til bergfræðirann- sókna í meira en öld. Hér verður því lýst stuttlega, hvernig þróun þeirra hófst og hvernig ísland kemur þar nokkuð við sögu beint og óbeint. Lykillinn að þessari tækni er sú staðreynd, að ljós er tiltekin sveifluhreyfing í tómarúminu og í efnum. Kringum 1820 og löngu áður en menn vissu hvað var þar eiginlega að sveiflast, áttuðu þeir sig á því að sveifluhreyfingin var þversum á útbreiðslustefnuna, en ekki langsum eftir henni eins og í hljóðbylgju í lofti. Ef ljósbylgja var á leið í z-átt rétthyrnds hnit- kerfis, gat sveiflan því verið samsett úr hreyfingum í áttimar x og y, hvor með sinni sveifluvídd. Tímamun- ur gat einnig verið á milli x- og. y-sveiflanna. Astandi ljóssins að þessu leyti er lýst með hugtaki sem nefnt var „skautun" . Nafngiftin er nokkuð villandi, en ekki verður farið út í þá sálma hér. Á leið ljóss gegnum kristallað efni eins og berg getur bæði stærðarhlutfall og tímamunur x- og y-sveiflanna breytst. Á 19. öldinni urðu miklar framfarir í kristallafræði (crystallography) sem fjallar um myndun og eigin- leika kristalla, steindafræði (mineralogy) sem fjallar m.a. um efnasamsetningu og kristalgerð hinna ýmsu steinda í bergi, og bergfræði (petrography, petrology) sem fjallar um myndun og samsetningu hinna ýmsu bergtegunda. Mismunandi gerðir kristalla hafa mis- munandi áhrif á ljós á leið þess gegnum þá. Af þeim mörgu spumingum sem hægt er að svara með smá- sjárrannsóknum á storkubergi, má nefna: Hve mikið af gosberginu er kristallað og hve mikið glerkennt? Hvaða steindir eru í berginu, og hver er efnasamsetn- ing hverrar steindar? í hvaða röð kristölluðust þær úr bergkviku, og við hvaða hitastig? Varð bergið fyrir ummyndun eða skerspennu eftir að það storknaði? Til þess að slíkar mælingar væru framkvæmanlegar, þurfti að koma upp viðeigandi mælitækni til að greina áhrif kristallanna á Ijós. Skautun ljóssins var þar lyk- ilatriði. WilliamNicol (1768-1851) Allt frá því 1669 var það þekkt, að glærir kristallar af kalkspati höfðu þann sérstaka eiginleika að geta skipt ljósi í tvennt þannig, að ef ljósgeisli fór inn í slíkan kristal, komu tveir samsíða geislar út, hvor með sína sveiflustefnu. Notkun þessa efnis við ljósrannsóknir stuðlaði mjög að því, hve skilningur manna á ljósfræði jókst hratt alla nítjándu öldina, og verður nánar frá því sagt annarsstaðar. Gallalausir kristallar af efninu feng- ust hvergi nema úr einni námu á Islandi, og voru hér- lendis nefndir silfurberg. Aðgreining geislanna við að fara í gegnum íslensku kristallana var hinsvegar ekki mikil þótt hægt væri að auka hana með útbúnaði eins og svonefndum Rochon-prismum. Mælingar voru því ýmsum takmörkunum háðar. William Nicol var kennari í eðlisfræði í Edinborg, en fátt er um ævi hans vitað. Hann benti í stuttri grein (Nicol, 1829) á snjalla aðferð til að láta annan fyrr- nefndra geisla hverfa. Þetta var gert með því að saga silfurbergskristal í sundur á ská og líma hann aftur saman með sérstakri kvoðu (1. mynd). Uppgötvunin olli fljótlega miklum framförum við allar rannsókn- ir með ljósi. Voru slík samsett kristal-prismu alla tíð JÖKULL No. 48 55

x

Jökull

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.