Jökull - 01.06.2000, Blaðsíða 88
Magnús T. Guðmundsson
Leiðangursmenn í Gjálp 8. júní, á þeim stað þar sem gígurinn var í gosinu.
tekin vatns- og setsýni úr Grímsvatnaholunni. Ekki
náðist að klára þriðju holuna, í Grímsvatnaskarði, þar
sem þröskuldurinn er hæstur og ísinn þykkastur. Stóð
holan í 340 m þegar hætt var.
I Gjálp var unnið við íssjármælingar, þyngdar-
mælingar og breytingar frá í fyrra mældar. Þrátt fyrir
að gosgjáin hafi gengið dálrtið saman var flest með
sama svip og árið áður. Tindur Gjálpar var þó horfinn
í ís og mun ef að líkum lætur verða bið á að hann sjáist
aftur. Sá munur var þó frá því í fyrra að sprungur voru
fullar af snjó og svæðið víða fært á vélsleðum.
I ferðinni var komið fyrir 18 jarðskjálftamælum
á og við Bárðarbungu, til viðbótar þeim 24 mælum
sem settir voru upp í lok maí umhverfis Grímsvötn.
Hlustuðu mælar þessir á jarðskjálfta í sumar og mun
úrvinnsla gagnanna leiða í ljós tilvist og lega kviku-
hólfa á svæðinu. Aðalskipuleggjandi og prímusmótor
þessa mikla verkefnis, Bryndís Brandsdóttir, var þó
fjarri góðu gamni. Sat hún heima og gréri sára sinna
eftir ævintvralegt flug fram af Grímsfjalli við annan
mann þann 13. maí eins og frægt er orðið. En Bryn-
dís var mætt á Grímsfjall seinna í sumar og tókst að
ljúka verkefninu. Geri aðrir betur. Skylt verkefni var
mæling þyngdarsviðs á um 170 stöðum víðsvegar um
vestanverðan jökulinn en úrvinnsla þeirra gagna mun
varpa ljósi á tengsl eldstöðva og gefa mynd af rótum
þeirra. I sama tilgangi fór nokkur hópur á Öræfajökul
og mældi þyngdarsvið og ísþykkt.
Að venju mældi leiðangurinn vatnshæð Gríms-
vatna sem nú orðið felst í því að mæla yfirborð íshell-
unnar á borstaðnum á miðri hellunni. Vatn sást í 40^4-5
m djúpum katli undir Vestari Svíahnjúk en að því varð
ekki komist vegna sprungna. Vatnshæðin þann 7. júní
mældist 1353 m y.s.
Vetrarafkoma var mæld í Grímsvötnum, á Bárð-
arbungu og á sléttunni milli Hvannadalshnúks og
Hnapps á Öræfajökli. I Grímsvötnum reyndist hún
aðeins 1600 mm. A Bárðarbungu var snjólag síðasta
vetrar 3.8 m og vatnsgildi 1900 mm. Er hvortveggja
langt undir meðallagi. Vetrarúrkoman hefur hins vegar
skilað sér á Öræfajökli en þar var árlagið 11.7 m á
þykkt.
A Grímsfjalli settu leiðangursmenn upp nýja
gufurafstöð til viðbótar þeirri sem fyrir var. Með því
var aflað viðbótarafls fyrir nýjan skjálftamæli Veður-
stofunnar. Unnið var að öðrum undirbúningi fyrir upp-
setningu mælisins en áætlað er að hann verði kominn
í gagnið eftir vorferð á sumri komanda.
86 JÖKULL No. 48