Jökull - 01.06.2000, Blaðsíða 60
Leó Kristjánsson
Ferdinand Zirkel (1838-1912)
Ferdinand Zirkel var fæddur í Bonn og nam jarðfræði
þar. Hann ferðaðist um Island 1860 ásamt W. Th.
Preyer síðar lækni, og rituðu þeir saman bók um ferð-
ina (Preyer og Zirkel, 1862). Doktorsritgerð Zirkels
(1861) fjallar um jarðfræði Islands, sem var vissu-
lega óvenjulegt á þessum árum. Stutt æviágrip Zir-
kels og mynd af honum hafa birst áður í Jökli (Schw-
arzbach, 1983). Lengst af (frá 1870) var hann prófess-
or í Leipzig.
Zirkel kynntist Sorby ffjótlega eftir íslandsför
sína, og sá strax hvernig nýir möguleikar í jarðfræði-
rannsóknum gátu opnast með skoðun á þunnsneið-
um bergsýna í smásjá. Meðan Zirkel starfaði í Vín-
arborg næstu tvö ár, fékk hann gerðar þar sneið-
ar af 39 dæmigerðum bergtegundum frá Bretlandi,
Þýskalandi, Nýja-Sjálandi, Islandi og víðar að. Stór
og mikilvæg ritgerð Zirkels (1863) fjallar um athug-
anir hans á þessum fyrstu þunnsneiðum, en hann mun
þá hafa notað venjulegt ljós (3. mynd). Zirkel tekur
þar fram, að sjálfur hafi hann safnað íslensku sýnun-
um, sem eru þessi:
Trakýt (þ.e. líparít) frá bænum Fagranesi ofarlega í
Öxnadal. I ferðabókinni kemur fram að þetta berg
sé í „Kuppe“ (innskotsmyndun?) inni í blágrýtis-
mynduninni þama.
Kvarzríkt trakýt úr Baulu, sem Daninn Forchhammer hafði
nefnt baulit. Einnig rannsakaði Zirkel biksteinssýni
úr Baulu.
Ummyndað feldspatnkt berg milli Reykjavíkur og Seljadals
(sunnan Grímmannsfells í Mosfellssveit), með geisla-
steinunum desmín og kabasít. Zirkel kveðst einnig hafa
skoðað svipað bergsýni frá Vaðlaheiði.
Ung hraun, eitt á leiðinni milli Reykjavíkur og Krísuvík-
ur (Almenningr), annað við Surtshelli og það þriðja frá
Sóleyjarhöfða við Þjórsá.
Basaltgler frá Reykjum á norðvesturlandi (líklega við
Reykjabraut)
Flrafntinna frá Hrafntinnuhrygg.
Zirkel lagði mesta áherslu á að rannsaka bergfræði
gosbergs, og varð um árabil einn þekktasti fræðimað-
ur heims á því sviði. Hann gaf m.a. út kennslubók í
bergfræði 1866, og einnig sá hann um endurskoðun
steindafræði C.F. Naumanns (frá 10. útg. 1877). Mág-
ur Zirkels, Hermann Vogelsang, varð einnig þekktur
bergfræðingur en lést ungur.
3. mynd. Nálar af efni sem Zirkel (1867) nefnir
„Belonit“ í hrafntinnugleri frá Tindastól. Þær lengstu
eru 0.009 mm. - Needles of crystallites in Icelandic
obsidian.
í grein um glerkennt gosberg (Zirkel 1867) er enn
rætt um sýni frá Islandi, sem Zirkel kveðst hafa rann-
sakað mikinn fjölda þunnsneiða af, og sérstaklega eru
nefnd:
Hrafntinna frá Tindastól í Skagafirði (og önnur frá ótil-
teknum stað)
Vikur (Bimsstein) milli Heklu og Skriðufells
Glerkennt efni frá Baulu
Fjögur sýni af biksteini, þar af eitt frá Norðurlandi og tvö úr
Hamarsfirði.
Rannsóknir Zirkels á glerkenndu bergi urðu Kenngott
(1870, 1873) tilefni til skrifa um smásjárathugun á
tveim sýnum af hrafntinnu frá íslandi, og var annað
þeirra sagt komið úr Heklu sem vart getur þó verið.
I bók um smásjárrannsóknir á blágrýti (Zirkel,
1870a), sem tileinkuð er Sorby, er aftur rætt um áður-
nefnt hraun frá Sóleyjarhöfða við Þjórsá, og nefnt er
sýni úr Skaftáreldahrauninu 1783. í greinum Zirkels
um þessar rannsóknir (Zirkel, 1870b, bls. 817; 1872,
bls. 18) kemur einnig fram, að hann hafi skoðað hraun
og gjósku frá Heklu. Ekki var Zirkel alveg hættur við
Island með þessu, því hann var einnig fenginn til að
kanna gjósku þá úr Öskjugosi sem féll í Noregi í mars
1875 (Zirkel, 1875). Nefna má, að tveir aðrir sem létu
að sér kveða í smásjárskoðun bergs, G. vom Rath og
58 JÖKULLNo. 48