Jökull


Jökull - 01.06.2000, Side 75

Jökull - 01.06.2000, Side 75
Jöklarannsóknafélags íslands Skýrsla stjórnar Jöklarannsóknafélags íslands á aðalfundi 24. febrúar 1998 SKIPAN STJÓRNAR OG NEFNDA Síðasti aðalfundur Jöklarannsóknafélags fslands var haldinn 25. febrúar 1997 í sýningasal Ferðafélags ís- lands, Mörkinni 6. Fundarstjóri var Hjálmar R. Bárð- arson og Guttormur Sigbjarnarson ritari. A fyrsta stjórnarfundi eftir aðalfund, 17. mars, skipti stjórn með sér verkum og dregið var um röð manna í vara- stjórn. Stjórnin var þannig skipuð: Aðalstjórn: Helgi Björnsson, formaður, kosinn 1995 til þriggja ára. Magnús Tumi Guðmundsson, varaformaður, kosinn 1997 til tveggja ára. Oddur Sigurðsson, ritari, kosinn 1997 til tveggja ára. Jón E. ísdal, gjaldkeri, kosinn 1996 til tveggja ára. Alexander Ingimarsson, meðstjórnandi, kosinn 1996 til tveggja ára. Varastjórn: Ástvaldur Guðmundsson 1. varamaður, kosinn 1997 til tveggja ára. Garðar Briem, 2. varamaður, kosinn 1997 til tveggjaára. Hannes H. Haraldsson, 3. varamaður, kosinn 1996 til tveggja ára. Jón Sveinsson, 4. varamaður, kosinn 1996 til tveggja ára. Valnefnd skipuðu Gunnar Guðmundsson, kosinn 1995 til þriggja ára, Stefán Bjarnason, kosinn 1996 til þriggja ára og Sveinbjörn Björnsson, kosinn 1997 til þriggja ára. Oddur Sigurðsson, ritari félagsins, hafði umsjón með fundagerðum og fréttabréfi. Stjórn félagsins kaus formenn hinna ýmsu nefnda og völdu þeir sér nefndarmenn. Nefndir voru þannig skipaðar: Rannsóknanefnd: Helgi Björnsson formaður, Magnús Tumi Guðmundsson og Jón Sveinsson, Raunvísinda- stofnun, Hannes H. Haraldsson, Landsvirkjun, Odd- ur Sigurðsson, Orkustofnun og Magnús Már Magnús- son, Veðurstofu. Skálanefnd: Sverrir Hilmarsson formaður, Alexand- er Ingimarsson, Ástvaldur Guðmundsson, Guðmund- ur Þórðarson, Jón E. ísdal, Stefán Bjarnason og Vil- hjálmur Kjartansson. Bílanefnd: Þorsteinn Jónsson formaður, Árni Páll Árnason, Garðar Briem, Hafliði Bárður Harðarson og Halldór Gíslason yngri. Ferðanefnd: Árni Páll Árnason formaður, Garðar Briem, Magnús T. Guðmundsson og Sjöfn Sigsteins- dóttir. Fagritstjórar Jökuls voru Áslaug Geirsdóttir og Bryn- dís Brandsdóttir er varðar aðsent efni, Tómas Jóhann- esson að hefti um jöklabreytingar, Bryndís Brands- dóttir að Kötluhefti og Helgi Torfason að hefti um umbrotin í Vatnajökli og Grímsvatnahlaupið haustið 1996. Ritnefnd Jökuls: Helgi Björnsson og Bryndís Brands- dóttir tilnefnd af Jörfi og Áslaug Geirsdóttir, Helgi Torfason, Haukur Jóhannesson, Leó Kristjánsson, Karl Grönvold og Kristján Sæmundsson tilnefnd af Jarðfræðafélagi. Útgáfustjórar Jökuls voru Einar Gunnlaugsson og Helgi Björnsson. Endurskoðendur félagsins voru Elías B. Elíasson og Árni Kjartansson. Hinn 1. febrúar 1998 voru félagar skráðir 442, 12 heiðursfélagar og 56 bréfafélagar. Auk þess fengu 7 fjölmiðlar sendan Jökul og fréttabréfið. Erlendir áskriféndur voru 62. JÖKULL No. 48 73

x

Jökull

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.