Jökull


Jökull - 01.06.2000, Side 79

Jökull - 01.06.2000, Side 79
Skýrsla stjórnar JÖRFI1998 jökla á Franz Jósefslandi. Alls taka jöklafræðingar frá níu þjóðum þátt í þessu verkefni. Könnun á afkomu og hreyfingu Vatnajökuls Á árinu unnu félagar á Raunvísindastofnun og Lands- virkjun áfram að mælingum á afkomu og hreyfingu á Vatnajökli, allt frá Tungnaárjökli og Köldukvíslar- jökli í vestri um Dyngjujökul, Brúarjökul og Eyja- bakkajökul í norðri, en Breiðamerkurjökul í suðri. Af- koma Vatnajökuls var hörmuleg vegna þess að saman lögðust lítil snjókoma og mikil leysing. Safnsvæðið var aðeins um 30-40% af flatarmáli jökulsins í stað 60% í meðalári og hjarnmörk um 200 m ofar en venja er. Sé þetta það sem koma skal hverfur Vatnajök- ull fyrir lok næstu aldar og Jöklarannsóknafélag ís- lands myndi í auknum mæli beita sér á næstu ára- tugum að könnun lands sem kemur undan jökli. Bæta þyrfti örnefnanefnd við félagið. Stöðugt yrði erfiðara að fara um jöklana vegna sprungna þar sem brydda fer á fjallstoppum og jökulárnar yrðu enn varasamari en nú er. Könnun á Langjökli Dagana 5. til 24. apríl var gerður rannsóknaleiðang- ur á vegum Raunvísindastofnunar, Landsvirkjunar og Hitaveitu Reykjavíkur á Langjökul til þess að kanna landslag undir honum svo að unnt væri að gera kort af yfirborði hans og botni og afmarka einstök vatnasvið. Þar með tókst að ljúka kortagerð af öllum stórjöklum landsins tuttugu árum eftir að frumgerð íssjárinnar var smíðuð. Rannsóknirnar á Lagngjökli vorur liður í viða- miklum rannsóknum á aðrennsli grunnvatns til Þing- vallavatns, Sogsvirkjana og Hengilsins. Jafnframt var mæld afkoma og hreyfing jökulsins og á þessu ári er fyrirhugað framhald á því verki. Samtímis því að unnið var að íssjármælingum var borað í Baldjökul undir stjórn Þorsteins Þorsteinsson- ar, jöklafræðings sem dvaldist hálft ár við Raunvís- indastofnun í leyfi frá störfum við Stofnun Alfreds Wegeners í Þýskalandi. Landsvirkjun, Vísindasjóður og Jöklarannsóknafélagið auk Raunvísindastofnunar studdu þetta verk. Komst borinn niður á 70 m og er nú unnið að könnun á borkjarnanum. Síðar er stefnt að frekari djúpborun á Vatnajökli til þess að kanna ösku- lög, afkomu jökulsins og kristalgerð hans. Afkoma Hofsjökuls Félagar á Orkustofnun, undir forystu Odds Sigurðs- sonar, unnu að mælingum á afkomu Hofsjökuls með svipuðu sniði og nokkur undanfarin ár. FUNDIR Að loknum aðalfundarstörfum 27. febrúar sýndi Helgi Björnsson ýmsar myndir frá jöklum en á vorfundi 6. apríl flutti Guðrún Larsen erindi um gjóskulög í Vatnajökli og gossögu eldstöðva undir jöklinum frá því land byggðist. Rannsóknir á öskulögum í Vatna- jökli, undir forystu Guðrúnar Larsen, hafa aukið vitn- eskju um sögu gosa í Vatnajökli og um aldur íss í jökl- inum. Þá sýndu Magnús Tumi Guðmundsson og Odd- ur Sigurðsson myndir af Snæfellsnesi vegna væntan- legrar sumarferðar félagsins um þær slóðir. Á haustfundi 28. október flutti Þorsteinn Þor- steinsson, jöklafræðingur, erindi sem hann nefndi Vítt og breitt um Grænlandsjökul. Þar greindi hann frá meginniðurstöðum djúpborunar á hæsta kolli Græn- landsjökuls um loftslag veðurfar allt frá síðustu ís- öld, sagði frá rannsóknaleiðöngrum um norðurhluta Grænlandsjökuls sumurin 1993-1995 og tilgangi og upphafi annarrar djúpborunar þar sumarið 1996. Sem kunnugt er hafa nokkrir íslendingar tekið þátt í þessu starfi. Þá greindi hann frá ýmsum rannsóknum á skrið- jöklum Grænlands og sýndi myndir frá Bröttuhlíð í suðri til Station Nord í norðri. Að kaffihléi loknu sýndi Ástvaldur Guðmundsson myndir frá vorferð félagsins 1997 urn umbrotasvæðið á Vatnajökli. ÚTGÁFA JÖKULS Jökull kom ekki út á árinu en nú í vor hillir und- ir útgáfu 45. árgangs. í þessu riti, sem Tómas Jó- hannesson ritstýrir, verður greint frá jöklabreytingum frá því reglubundnar sporðamælingar hófust á þriðja áratug þessarar aldar, ferðum á Vatnajökul allt frá landnámstíð og sagt frá mælingum á afkomu Vatna- jökuls á fyrrihluta þessa áratugar. Þá vinnur Bryn- dís Brandsdóttir ötullega að ritstjórn 46. árgangs, sem flytur greinar um Kötlu. Loks vinnur Helgi Torfason að öflun efnis um umbrotin í Vatnajökli og Gríms- vatnahlaupið haustið 1996. JÖKULL No. 48 77

x

Jökull

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.