Jökull


Jökull - 01.06.2000, Page 82

Jökull - 01.06.2000, Page 82
lög fjarri byggð. Báðir hópar höfðu gagn og gaman af. Hvergi í heiminum nema á Islandi gat slíkt félag orðið til eftir miðja 20. öld. I öðrum löndum myndi fólki aldrei hafa dottið stofnun slíks félags í hug. Þar var ekkert ókannað land um miðja þessa öld, hvergi unnt að kveikja brennandi áhuga til samvinnu fólks úr ýmsum starfsstéttum um landkönnun, rannsóknir og ferðalög um jökla, fræðslu og útgáfustarf. Ein systur- stofnun okkar erlendis gæti verið Konunglega breska landkönnunarfélagið, sem stofnað var á 18. öld. Eg hef lagt mig fram við starf fyrir Jöklarannsóknafélag- ið, einkum að ritstjórn og útgáfu Jökuls og með því að tengja jöklarannsóknir mínar við Háskólann og er- lendis við þetta félag og kynna þær félögum. Störf mín og kynni af mörgum góðum jöklafélögum hafa veitt mér mikla ánægju og þó að ég hverfi nú úr stjórn er ekki ætlun mín að slíta tengsl við þá góðu félaga sem ég hef kynnst í jöklaferðum og á félagsfundum. Með þeim vil ég áfram starfa að ýmumjöklarannsókn- um, sem ég reyndar hyggst sinna í auknum mæli með- an færi gefst. Félögum öllum óska ég heilla og þeim sem taka við stjórn félagsins góðs gengis við störf að markmiðum þess. Helgi Björnsson Horft úr austri yíir Grímsfjall. í forgrunni má sjá sprungur í útfalli Grímsvatna sem mynduðust í stórhlaupinu í nóvember 1996. Myndin er tekin 19. desember 1998. Aska úr gosmekkinum dreifist til suðausturs, yfir Gríms- fjall. Ljósm.IPhoto Magnús Tumi Guðmundsson. The Grímsvötn eruption, December 19, 1998. Northwesterly winds carry the tephra over Grímsfjall, the southern caldera rim. 80 JÖKULL No. 48

x

Jökull

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.