Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.2014, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.2014, Blaðsíða 2
Helgarblað 7.–10. nóvember 20142 Fréttir Áhyggjur af áfengis- frumvarpi Bæði Hagar, sem rekur Bónus og Hagkaup, og Festa, sem rek- ur Krónuna, Nóatún og Kjarval, hafa hug á því að selja áfengi í verslunum sínum verði frumvarp um frjálsa sölu áfengis samþykkt. Viðskiptablaðið greinir frá þessu. Á sama tíma og nú liggur fyrir að flestar matvöruverslanir myndu selja áfengi þá hefur landlæknis- embættið þungar áhyggjur af frumvarpinu og telur landlækn- ir að lögin yrðu í beinni andstöðu við metnaðarfulla og mikilvæga stefnumótun ríkisstjórnarinn- ar um að efla lýðheilsu í landinu. Þetta kemur fram í umsögn embættisins um frumvarpið. Þar er einnig vísað til bréfs frá Evrópuskrifstofu Alþjóðaheil- brigðisstofnunarinnar sem lýsir þungum áhyggjum af möguleg- um afleiðingum frumvarpsins. Neysla muni aukast meðal ungs fólks og viðkvæmra hópa. Bjarni á bílaleigubíl Ráðherrabifreið Bjarna Benedikts- sonar, fjármála- og efnahagsráð- herra, var í sumar tekin úr notkun að ráði umboðsins vegna þess að ekki var lengur hægt að tryggja rekstraröryggi hennar. Síðan þá hefur Bjarni haft bílaleigubíl til umráða. Viðskiptablaðið greindi frá þessu á fimmtudag en þar höfðu menn veitt því athygli að Bjarni var ekki lengur á BMW 530-ráðherrabifreið sinni. Hún var keypt fyrir fjármálaráðu- neytið árið 2005 og kostaði þá rúmar 5,4 milljónir að því er fram kom í úttekt DV á ráðherrabíla- flotanum árið 2010. Í Viðskiptablaðinu segir að eft- ir að umboðið hafi ráðlagt ráðu- neytinu að taka bifreiðina úr notk- un hafi farið fram örútboð vegna kaupa á nýrri bifreið í samstarfi við Ríkiskaup. Þá sé ferill málsins í samræmi við lög um opinber inn- kaup og rammasamning frá árinu 2011 um kaup á ráðherrabílum. n Kostnaður vegna veikinda þyngir róðurinn hjá einstæðri móður É g á ekki ofan í mig né barnið mitt. Ég reyni að vera jákvæð og hress á daginn en á kvöldin græt ég og reyndar stundum á daginn líka,“ segir rúmlega fer- tug kona sem búsett er í Fellahverf- inu í Reykjavík. Hún á ellefu ára son og tvö börn um tvítugt sem bæði eru flutt að heiman. Konan er með meltingarsjúkdóm og hefur því verið öryrki í rúmlega tuttugu ár. Að henn- ar sögn var auðveldara að framfleyta eldri börnunum þó að það hafi ver- ið erfitt. „Þá gat ég í það minnsta sett mat á borðið. Það fékkst meira fyrir tekjurnar. Núna í byrjun nóv- ember á ég 6.000 krónur eftir til að lifa mánuðinn af. Það er afgangur af 10.000 króna gjöf frá góðri konu,“ segir hún. Konan segir ástandið hafa versn- að mikið síðustu tvö ár og hafa tekjurnar aðeins dugað fyrstu viku mánaðar. Hún veiktist alvarlega í haust og hefur kostnaður vegna veikindanna þyngt róðurinn. „Núna í nóvember fer ég í segulómun sem kostar á bilinu 30.000 til 35.000 fyrir öryrkja. Ég veit ekki hvernig ég á að fjármagna þetta. Það kemur í ljós. Hver heimsókn til sérfræðings kostar 2.700 krónur. Eftir að ég veiktist duga tekjurnar aðeins fyrstu tvo til þrjá daga mánaðarins.“ Barnið bíður mánaðamóta Þegar eldri börn konunnar voru lítil var afi þeirra, faðir konunnar, á lífi, og naut fjölskyldan mikillar hjálpar frá honum. „Hann gerði svo mikið með þeim og foreldrar mínir buðu þeim með upp í sumarbústað og annað. Hann keypti á þau föt svo þau voru alltaf fín til fara. Það er allt öðruvísi með þann ellefu ára.“ Yngsti sonurinn þekkir ekki ann- að en fátækt og segir konan sorglegt að staða barnsins sé þessi. „Ég spurði hann um daginn hvort hann hlakkaði ekki mikið til jólanna en þá sagði hann: „Nei, ég hlakka til að það komi fyrsti.“ Honum finnst svo gam- an um mánaðamót. Þá fær hann smá nammi og ég get keypt hamborgara og steikt fyrir hann. Ég reyni að hafa kósí hjá okkur um helgar. Þá baka ég og við horfum saman á góða mynd í sjónvarpinu.“ Konuna langar að gefa yngsta syni sínum snjóbretti því vinir hans eiga slíkt og hann langar líka í. „Ég er að leita á sölusíðum á netinu að ódýru, notuðu snjóbretti. Ég gat heldur ekki keypt handa honum reiðhjól en eldri bróðir hans bjó til hjól úr þremur gömlum. Það er reyndar mjög fínt hjól. Í sumar var honum boðið í af- mæli sem var haldið í bíói og honum fannst það alveg æðislegt því við get- um aldrei farið í bíó,“ segir hún. Hefur aðgang að sorpgámi Konan á kunningja sem starfar í stórmarkaði á höfuðborgarsvæðinu og hefur hann útvegað henni gamla banana úr sorpgámi sem hún nýtir til að baka bananabrauð. Hún hefur fengið mat fyrir þau mæðginin einu sinni í mánuði hjá Fjölskylduhjálp Íslands og tvisvar sinnum í mánuði hjá Mæðrastyrksnefnd. Aðspurð um stuðning frá sínum nánustu kveðst konan fá góðan andlegan stuðning frá móður sinni og systur. „Ég á líka góðar vinkonur sem hafa gefið mér hluti sem þær eru hættar að nota. Ein þeirra er sérstaklega hjálpsöm og hefur til dæmis gefið okkur rúm- föt. Alltaf þegar við hittumst koma þær með veitingar því ég hef lítið til að bjóða upp á. Fyrr í haust buðu þær mér á tónleika og það var alveg frábært. Þær vita hver staðan hjá mér er.“ Föst heima vegna veikinda Eftir að konan veiktist alvarlega í meltingarvegi í haust á hún erfitt með að fara út úr húsi því hún hef- ur ekki stjórn á hægðum sínum. Hún fer í aðgerð eftir áramót sem hún vonar að lagi heilsuna. Því á hún erfiðara með að sækja mat til hjálparstofnana því hún getur ekki staðið í röð og beðið. Núna treystir hún á síðu á Facebook þar sem gef- inn er matur. „Konurnar sem standa að síðunni hafa bjargað lífi mínu. Reglurnar hjá hjálparstofnunum eru þannig að það má ekki senda neinn fyrir sig, maður verður að koma sjálfur. Um jólin hef ég alltaf far- ið til Mæðrastyrksnefndar og feng- ið bækur, spil og annað skemmtilegt til að gefa syni mínum í jólagjöf og inneignarkort fyrir jólamat. Mæðra- styrksnefnd er í Hátúni og veikind- anna vegna er það of löng leið fyr- ir mig að fara núna. Ég hef reynt að finna jólagjafir sem kosta minna en 1.000 krónur á netinu en ekki fundið neitt ennþá. Þetta verða sérstaklega erfið jól í ár.“ n Fleiri barnafjöl- skyldur undir lágtekjumörkum Að sögn Bergsteins Jónssonar, framkvæmdastjóra UNICEF á Íslandi, er mun líklegra að börn einstæðra foreldra, börn sem eiga fjölskyldur þar sem atvinnuþátttaka er lítil og börn innflytjenda búi á heimilum undir lág- tekjumörkum. „Þetta varpar ljósi á það sem kemur alltaf upp aftur og aftur. Það þarf að finna sértæk úrræði á sama tíma og í boði eru góð almenn úrræði fyrir samfélagið í heild,“ segir hann. UNICEF á Íslandi kynnti á dögunum skýrslu um þróun fátæktar barna í 41 ríki innan OECD og Evrópusambandsins frá árinu 2008 til 2012. Niðurstöður hennar sýndu meðal annars að fátækt á Íslandi hefur dýpkað á tímabilinu. Fólk sem fellur undir lágtekjumörkin í dag fellur lengra frá þeim að meðaltali en árið 2008 og mælist því fátækara. Í skýrslunni kemur fram að styrkur velferðarkerfa og áherslur í stefnumótun hafi ráðið úrslitum við að koma í veg fyrir aukna fátækt barna. Bergsteinn segir að eftir hrun hafi framan af tekist að verja hag barnafjölskyldna. „Með breytingum á skattkerfi og í félagslega kerfinu voru útgjöld til fjölskyldna aukin sem hluti af vergri þjóðarframleiðslu. Á árunum 2010 til 2012 hafði ríkið minna úr að moða og stuðningurinn minnkaði. Skýrslan sýnir fram á að á því tímabili hafi barnafjöl- skyldum undir lágtekjumörkum fjölgað.“ Dagný Hulda Erlendsdóttir dagny@dv.is Fátækt Konan treystir á matargjafir á Facebook- síðu. Henni þykir sárt að geta ekki veitt ellefu ára gömlum syni sínum neitt. MynD Sigtryggur Ari„Ég á ekki ofan í mig né barnið mitt“ „Honum finnst svo gaman um mánaðamót. Þá fær hann smá nammi og ég get keypt ham- borgara og steikt fyrir hann.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.