Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.2014, Blaðsíða 56
Helgarblað 7.–10. nóvember 2014
87. tölublað 104. árgangur Leiðbeinandi verð 659 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000
Læknar án
landamæra?
Líklega
misskilningur
n „Spölkorn frá mér sé ég
Gunnar Smára [Egilsson] og Ill-
uga Jökulsson. Ég heyri ekki í
þeim en sé að þeir hlæja – eflaust
að einhverju lærðu gríni. Sjálf-
lærðu samt. Gunnar Smári er
með bleikt skilti sem á stendur
„Læknana heim“,“ skrifar Stígur
Helgason ritstjóri hjá Plain
Vanilla. Hann skrifaði pistil, eða
smásögu, í Kjarnann, um mót-
mælin í síðustu viku sem hann
segir vera heiðarlega yfirferð yfir
það sem flaug í gegnum huga
hans á mótmælunum. „Ég hélt
að hann vildi að við færum öll
út til læknanna? Það er líklega
misskilningur. Ég er
orðinn ringlaður,“
segir Stígur í grein-
inni. Sem kunnugt
er hefur Gunnar
Smári stofnað fylk-
isflokkinn þar sem
hann leggur til að
Ísland verði
að 20. fylki
Noregs.
Fékk treyjuna aftur
n Fjölmiðlamaðurinn og fót-
boltamaðurinn fyrrverandi
Hjörtur Hjartarson fagnaði fer-
tugsafmæli á dögunum og deildi
á Facebook-síðu sinni orðum
um það sem ætla má að hafi ver-
ið sú gjöf sem kætti hann mest.
Fékk hann frá félögum sínum
fótboltatreyjuna sem hann
klæddist þegar hann var upp á
sitt besta í boltanum, árið 2001.
„Þeir höfðu keypt hana á upp-
boði fyrir 40 þúsund krónur,
haustið 2001. Hef lengi langað
til að endurheimta þessa treyju
enda mér mjög
svo kær. Það
gerðist síðan
eins og áður
segir á föstu-
daginn. Því-
lík hamingja
með þessa
gjöf! Takk,
þið ljúfu
drengir!“
skrifaði
Hjörtur.
Lausnin liggur
hjá KFC
n Nú þegar Iceland Airwaves
stendur sem hæst þá rifjast upp
fyrir mörgum miðahöfum einn
stærsti ljóðurinn á þeirri ágætu
hátíð; biðraðirnar. Grínistinn og
þúsundþjalasmiðurinn Halldór
Halldórsson, betur þekktur sem
Dóri DNA, gæti þó hafa fundið
lausnina á biðröðum í mið-
borginni, sem einskorðast ekki
við tónlistarhátíðina. „Af hverju
er ekki númerakerfi í biðraðir á
skemmtistaði – eins og á KFC?“
skrifar Dóri á Twitter.
Hugmyndin er það góð að Gísli
Marteinn Baldursson,
sem menntar sig
nú í öllu því helsta
tengdu borgarfræð-
um við Harvard-
háskólann, endur-
tístir henni af
hrifningu.
„Náum vonandi að hjálpa öllum“
Regína Marínósdóttir fer fyrir hópi sem vill láta gott af sér leiða um jólin
V
ið systurnar og mamma vor-
um að ræða þetta við matar-
borðið – hvað margir taka
sumu sem sjálfsögðum hlut,
sem fyrir öðrum er algjör lúxus,“ segir
Regína Marínósdóttir sem sett hef-
ur af stað hópinn Jólahjálp. Þar ætl-
ar Regína að para saman fólk sem er
aflögufært og þá sem hafa minna á
milli handanna og þurfa á aðstoð að
halda. Viðbrögðin hafa ekki látið á sér
standa og hefur Regína þegar orðið
vör við það hversu margir þurfa á að-
stoð að halda. En þeir eru líka margir
sem vilja láta gott af sér leiða.
Regína bendir á að fleiri slíkar síð-
ur séu á Facebook og að augljóst sé
að margir vilji láta gott af sér leiða
þessi jólin. „Þar safnar fólk oft og út-
hlutar svo til þeirra sem þurfa á því að
halda. Ég vil hafa þetta persónulegra
og þess vegna tengi ég fólk sem get-
ur hjálpað við manneskju sem þarf
hjálp. Þá geta þau hjálpast að,“ segir
hún en hún hefur að auki fengið með
sér í lið hárgreiðslufólk sem ætlar að
sjá til þess að börnin, sem Regína og
samstarfsfólk hennar aðstoða, komist
í jólaklippingu.
„Eins og staðan er núna náum við
vonandi að hjálpa öllum sem biðja
um aðstoð. Margir hugsa með sér að
fátækt fólk sé heimilislausa fólkið,
en oft eru þetta fjölskyldur og jafn-
vel einstæðir foreldrar sem ná ekki að
láta hlutina ganga upp.“
Regína hefur oft áður staðið fyrir
slíkum fjáröflunum. Hún tók meðal
annars þátt í söfnun fyrir kaffihúsi á
Kleppsspítala. „Þessi verkefni hafa
alltaf gengið mjög vel,“ segir hún og
bætir því við að það sé mjög gefandi
að taka þátt í slíku. Regina bend-
ir þeim sem ekki hafa Facebook á að
þeir geta haft samband við hana á
netfanginu reginavma@visir.is. n
astasigrun@dv.is Vill hjálpa Regína segir ljóst að
margir þurfi á aðstoð að halda þessi jól.