Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.2014, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.2014, Blaðsíða 28
Helgarblað 7.–10. nóvember 201428 Fólk Viðtal H eilsan er þokkaleg en ég þarf nokkra mánuði til að safna kröftum og ná mér að fullu. Ég býst við að ég geti það og reyni það,“ segir Jóhanna Kristjónsdóttir ferðamálafrömuður, blaðamaður og rithöfundur sem er að jafna sig eftir skurðaðgerð þar sem krabbameinsæxli var fjarlægt úr öðru lunga hennar. Mætti ekki í útgáfupartíið Jóhanna sendi nýlega frá sér bókina Svarthvítir dagar en hefur lítið get- að tekið þátt í kynningu bókarinnar vegna veikindanna. Þess í stað hef- ur hún treyst á fólkið sitt til að taka slaginn fyrir sig. „Ég gat ekki mætt í mitt eigið útgáfupartí en þá var það Vera Illugadóttir sem las upp úr bók- inni. Ég hef bæði Veru og dóttur mína, Elísabetu, og systur mína, Val- gerði til að lesa fyrir mig í nóvember og desember. Þetta er ekkert vesen. Bókin verð- ur bara að sýna og sanna að hún geti staðið á eigin fótum,“ segir Jó- hanna sem viðurkennir þó að það sé undarlegt að standa svona á hliðar- línunni við útgáfu bókar. „En ég hef ekki kraftana og þess vegna þýðir ekkert að hugsa um það. Ég verð að gjöra svo vel og sætta mig við þetta. Heilsan er einu sinni merkilegri en allt annað. En vissulega hefði verið gaman að taka þátt í þessu.“ Endurminningar lítillar stelpu Jóhanna ólst upp í hópi þriggja systkina í Reykjavík. Hún gekk í Landakotsskóla, Kvennaskólann og Menntaskólann í Reykjavík. Faðir hennar, Kristjón Kristjónsson, var framkvæmdastjóri hjá Sambandi íslenskra samvinnufélaga og lengi framkvæmdastjóri BSÍ en móðir hennar, Elísabet Engilráð Ísleifs- dóttir, var gjaldkeri í mörg ár hjá BSÍ. „Svarthvítir dagar eru endurminn- ingar lítillar stelpu sem var að velta fyrir sér heiminum, stríðinu, pólitík- inni, vináttunni og öllu heila gallerí- inu á tíma sem fólk gæti verið forvitið um. Það hefur ekki verið mikið skrif- að um þennan tíma held ég,“ segir hún en bókin spannar tímabilið 1940 til 1956. Alltaf verið mikil listakona Hún segir það hafa verið lítið mál að rifja upp bernsku sína en viður- kennir að hafa haft dagbækur sín- ar til hliðsjónar. „Það er athyglisvert hvað minnið geymir. Ég hef afskap- lega gott minni og þetta kom til mín í myndum eða glömpum. Mér fannst forvitnilegt þegar ég byrjaði að sjá hvað ég myndi og hvað myndi koma til mín. Það var æði margt en kannski ekki allt í samfellu fyrstu árin. Ég hélt dagbók þegar ég var níu ára, þrett- án og fimmtán ára og gat stuðst við hana þegar ég var ekki alveg viss,“ segir hún og játar að hafa haldið dag- bók af og til allar götur síðan. „Þau ár sem ég bjó í útlöndum hélt ég dag- bók og alltaf þegar ég fer í ferðalög. Þetta eru ekki bækur fullar af hjart- næmum upplýsingum og leyndar- málum heldur staðreyndadagbækur. Þegar ég var níu ára var ég að hugsa allt mögulegt, eins og hvort ég væri sú klaufalegasta í leikfimi af öllum og hvort ég ætti að fara í bíó og sjá eft- irlætisleikkonuna mína. Svo færðist þetta aðeins til. Þrettán og fimmtán ára var ég að skrifa lista. Ég hef alltaf verið mikil listakona og geri lista yfir „Heppin að þetta skyldi fara vel“ Jóhanna Kristjónsdóttir greindist nýlega með krabbamein í lunga. Hún er komin heim af sjúkrahúsi þar sem æxlið var skorið í burtu. Jóhanna lætur engan bilbug á sér finna og er staðráðin í að ná sér að fullu. Jóhanna ræðir hér um veikindin, nýju bókina, árin með Jökli, ferðalögin og fordóma í garð íslam og fjölskylduna sem hún segir sitt mesta stuðningsfólk. Indíana Ása Hreinsdóttir indiana@dv.is „Áður en við Gísli fórum frá Bagdad hringdi ég í Saddam Hussein og þakkaði hon- um fyrir að hafa sleppt honum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.