Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.2014, Blaðsíða 54

Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.2014, Blaðsíða 54
Helgarblað 7.–10. nóvember 201454 Fólk S olveig Pálsdóttir, einn með- limur Reykjavíkurdætra, hef- ur verið að dunda sér við það upp á síðkastið að teikna alla meðlimi grúppunnar í teiknimyndastíl. Hún er með B.A.- gráðu í myndlist frá Listaháskóla Ís- lands en hún lærði einnig listtengda kennslufræði í sama skóla. Draumur um teiknimyndapersónur „Pælingin á bak við grúppuna var sú að fyrir utan að þjappa okkur saman sem hóp, virkja konur og koma okk- ur á framfæri þá vildum við líka láta drauma rætast. Einn af mínum draumum var að fá að gera teikni- myndapersónur af öllum í hljóm- sveitinni og þær tóku allar vel í það. Þær leikstýrðu frösunum sínum sjálf- ar og hvað kemur fyrir á myndinni.“ Áhersla lögð á sameflli Á öllum myndunum er þríhyrning- ur og fimm punktar. „Þríhyrningur- inn er hljómsveitarlógóið en stærstur hluti meðlima er með það húðflúrað á sig. Öfugur þríhyrningur er líka fornt tákn kvenlegrar orku. Punktarnir fimm tákna hópinn en opni hringur- inn í miðjunni táknar einstaklinginn í hópnum. Þetta stendur í raun fyrir að allir standi jafnir innan hópsins og áhersla er lögð á samvinnu og sam- efli. Fyrir utan einstaklingsmynd- irnar gerði ég líka hópmynd sem við erum allar á, en við erum að fara að láta prenta hana á boli fyrir okkur. Myndin verður framan á bolnum en þríhyrningurinn aftan á. Opinn hópur Reykjavíkurdætur eru 21 en þær eru ekki alltaf allar virkar í einu. „Salka Sól og Steinunn eru um þessar mund- ir mjög uppteknar við upptökur með hljómsveitinni AmabAdamA og eru því í smápásu frá Reykjavíkurdætrum. Þær geta samt alltaf hoppað inn þegar þær vilja. Salka Valsdóttir, eða Bleach Pistol eins og hún kallar sig, er nú í brúðkaupsferð að keyra um Banda- ríkin í sendiferðabíl sem hljómar ótrúlega skemmtilegt. En við erum mjög frjálslegar í hópnum, meðlimir geta verið eins virkir og þeir vilja.“ Nóg að gera Fyrir utan að að vinna með Reykja- víkurdætrum þá hefur hún verið að teikna plaköt og plötuumslög fyrir metalhljómsveitirnar Plastic Gods og World Narcosis. „Það er ótrúlega gaman að teikna fyrir þá. En það er gott að vera að teikna þetta á sama tíma og ég hef verið að teikna fyrir Reykjavíkurdætur. Ef ég vil eitthvað létt og hresst fer ég yfir í það en ef ég vil tapa mér í eymd og smáatriðum fer ég í metalinn.“ Nýtt lag á Airwaves Reykjavíkurdætur munu spila á nokkrum tónleikum á Iceland Air- waves um helgina, bæði „off“- og „on-venue“. „Við verðum í Eymunds- son í dag, föstudag, Íslenska barnum á morgun og svo á Húrra á sunnu- daginn. Við ákváum að taka okkur tveggja mánaða pásu frá spileríi fram að tónlistarhátíðinni og við nýttum tímann til að semja tvö ný hóplög. Við munum spila annað þeirra nú um helgina en hitt bíður betri tíma, við vonumst eins til þess að myndbönd fyrir bæði lögin verði birt fyrir áramót.“ Gengið vonum framar „Það kom mér smávegis á óvart hvað okkur hefur gengið vel í þessu verk- efni þar sem við byrjuðum bara í fyrra. Við höfum verið að spila mik- ið og fengið mikla athygli. En við höf- um líka fengið á okkur harða gagn- rýni sem er bara gott. Við getum hins vegar vel tekið henni, ólíkt forsætis- ráðherra okkar og ríkisstjórninni,“ segir Solveig að lokum. n Teiknar allar Reykjavíkurdætur n Grúppa full kvenlegrar orku n Frumflytja nýtt lag á Airwaves Helga Dís Björgúlfsdóttir helgadis@dv.is „Einn af mínum draumum var að fá að gera teiknimynda- persónur af öllum í hljómsveitinni. Solveig Pálsdóttir Solveig er lærður myndlistamaður og vinnur við það til hliðar við Reykjavíkurdætur. myND SiGtryGGur Ari reykjavíkurdætur Hópmyndin sem verður á hljómsveitarbolunum. Baggalútur á Kjarnann Guðmundur Pálsson, Baggalútur og fjölmiðlamaður, hefur sagt upp störfum hjá RÚV og mun á næstunni halda úti vikuleg- um þáttum í Hlaðvarpi Kjarnans. Greint var frá þessu á Kjarnanum. Þættirnir hafa fengið nafnið Pabbi þarf að keyra, en Guðmundur mun í þeim segja ferðasögu fjöl- skyldunnar sem keyrir nú á fjöl- skyldubílnum um Evrópu. Í samtali við Kjarnann segir Guðmundur að fjölskyldan hafi þurft á tilbreytingu að halda. Þau hafi verið orðin þreytt á mikilli vinnu og argaþrasi á Íslandi og því ákveðið að skella sér í ferða- lag. „Við erum sannfærð um að ferðin muni bara styrkja fjöl- skylduböndin og varla er hægt að hugsa sér betri fjárfestingu en það,“ segir Guðmundur. Trendsetterinn sneri aftur Leynibloggarinn sem kallar sig Trendsetterinn hefur snúið aft- ur, aðdáendum til mikillar gleði. Trendsetterinn sló óvænt í gegn í október með kaldhæðnum skrif- um þar sem hann gerði grín að lífsstílsbloggurum. Mörgum þótti þetta kærkomin ádeila á ógrynni lífsstílsbloggsíðna þar sem allt er fullkomið og fallegt. En það kunnu þó ekki allir að meta skrifin og einhverjir lífsstílsbloggarar stigu fram og sögðu ljótt að gera grín að öðrum. Í kjölfarið ákvað Trendsetterinn að draga sig í hlé og hverfa aftur inn í fjöldann eftir sínar 15 mínútur af frægð. Hléið varð hins vegar ekki langt því bloggarinn sneri aftur nokkrum dögum síðar eftir að æstir aðdáendur fylltu pósthólfið hans á Facebook með hjartnæm- um skilaboðum. Laddi listmálari Skemmtikrafturinn Laddi hefur vent sínu kvæði í kross og hefur snúið sér að listmálun. Nú nýver- ið birti hann mynd af einu mál- verka sinna á Facebook. Sagðist hann gera það vegna nokkurra áskorana en að það væri hugrekki út af fyrir sig að gera það. Mál- verkið kallar hann Hamskipti. Laddi hefur verið að skemmta landanum í fjölda ára og er sívin- sæll. Fyrr á árinu sýndi RÚV sjón- varpsþætti þar sem farið var yfir feril hans. Hann er sífellt að og nú síðast birtist hann í mörgum gervum í Stundinni okkar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.