Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.2014, Blaðsíða 33
Helgarblað 7.–10. nóvember 2014 Fólk Viðtal 33
„Þetta er ekki bara eitthvað
101-lið“
Svavar Knútur hefur verið settur
á hálfgerðan stall sem alþýðu-
hetja og stjórnmálamenn hafa rifið
hann í sig síðustu daga, en sjálfur
segir hann það rugl að láta mót-
mælin snúast um hans persónu.
„Í næstu mótmælum verð ég bara
með puttana á tökkunum og að
raða upp sviði. Þá hljómar önn-
ur rödd úr samfélaginu og svo
hljómar þriðja röddin úr samfé-
laginu. Við ætlum að draga fram
allar raddir samfélagsins og sýna
þeim samstöðu. Þetta snýst um að
sýna læknum, Vestfirðingum, fólki
á Djúpavogi, skúringakonum úr
stjórnarráðinu, kennurum og fleir-
um samstöðu. Þetta er ekki bara
eitthvað 101-lið. Fólkið í landinu
er orðið dauðþreytt,“ segir Svavar
Knútur sem er augljóslega búinn
að fá sig fullsaddan af ástandinu
í þjóðfélaginu. En mótmælin á
mánudaginn voru bara byrjun-
in, að hans sögn. Upphafið að ein-
hvers konar byltingu fólksins. Allra
þeirra sem eru búnir að fá nóg.
„Svo vil ég bara bjóða þessa
menn, sem tuða yfir pissu- og
kúkabrandara, velkomna í hóp
„góða fólksins“ sem þeir eru svo
uppteknir að tala niður,“ segir Svav-
ar Knútur, en með „góða fólkinu“
á hann við hugtak sem til dæmis
sjálfstæðismennirnir Elliði Vignis-
son og Tryggvi Herbertsson hafa
notað yfir fólk sem telur sig hafa
pólitíska rétthugsun að leiðarljósi.
Elliði skrifaði einmitt um „góða
fólkið“ á bloggsíðu sinni fyrir ekki
svo löngu og sagði það leggja sína
„óskeikulu mælistiku á hvað má og
hvað má ekki“.
„Kveiktu í mér, kveiktu í mér“
Svavar Knútur segir forsvarsmenn
mótmælanna á mánudaginn vís-
vitandi hafa lagt af stað í róleg-
heitum. „Við fórum af stað með
hógværar kröfur um kurteisi og
auðmýkt af hálfu stjórnvalda. En
af því þeim kröfum er svarað með
þjósti, leiðindum og skætingi þá
munu þessi mótmæli fara stig-
vaxandi. Við höldum aftur af
reiðinni, við höldum aftur af eyði-
leggingunni, en við höldum líka á
kyndlunum og getum látið þá falla.
Falla í olíupollinn sem íslenskt
samfélag er.“
Hann bendir á að stjórnvöld hafi
sagt mótmælin óskýr. Hvorki væri
á hreinu hverjir væru að mótmæla
né hverju væri verið að mótmæla.
En ástæðan fyrir því sé einföld. „Ef
kröfurnar eru sagðar óskýrar, þá er
það bara af því þær eru svo margar.
Það er svo mikið að. Það eru komn-
ar mörgþúsund kröfur inn á síðuna
okkar og við erum að raða þeim
upp eftir því hversu reitt fólk er. Svo
leggjum við þær fram næsta mánu-
dag. Við ætlum að gera þetta frið-
samlega í samstarfi við lögregluna
en það mun smátt og smátt verða
ljóst hvað það er mikil eldhætta
í þessu samfélagi. Það erum við
sem erum að passa að það brenni
ekki yfir. Ríkisstjórnin hoppar bara
í pollinum og segir „kveiktu í mér,
kveiktu í mér“.“
Kemur að því að Íslendingar
missa stjórn á sér
Þrátt fyrir að Svavar Knútur vilji
síður vera reiður maður, þá segir
hann reiði geta verið heilbrigða ef
hún er uppbyggileg. „Ef fólk held-
ur fókus og notar reiðina uppbyggi-
lega þá getur hún verið góð. Það er
það sem við erum að gera, við erum
að reyna að skila reiði okkar mjög
skilmerkilega til stjórnvalda. Þegar
stjórnvöld taka hins vegar ekki fal-
lega á móti þeim skilaboðum held-
ur bara þusa yfir einhverjum einum
kúkabrandara og búið, þá skapast
sú áhætta að reiðin breytist í nei-
kvæða reiði, eyðileggjandi reiði.
Við viljum það ekki. En það mun
koma að því að Íslendingar missa
stjórn á sér,“ segir hann fullviss um
að mótmælin muni færast í aukana
með hverri vikunni sem líður. En
til stendur að koma saman á hverj-
um mánudegi, þangað til aðgerð-
ir stjórnvalda bera þess merki að
hlustað sé á almenning.
„Ég sprengdi fyrsta
kínverjann“
Kvisast hefur meðal manna að
Svavar Knútur sé að taka við af
Herði Torfasyni sem hinn mót-
mælandi tónlistarmaður, en sjálf-
ur þvertekur hann fyrir slíkt. Hann
tekur þó skýrt fram að hann beri
mikla virðingu fyrir kollega sínum
og hans aðgerðum. „Ég er ekki að
fara að verða táknmynd fyrir neitt.
Ég elska Hörð Torfa og finnst hann
frábær, en ég er ekki að fara að
verða hann.“
Þá segist hann andsnúinn allri
persónudýrkun og persónugerv-
ingu hlutanna. „Ég tek mér fyrir-
myndir í börnunum, eldra fólki
og öllum sem lifa með kærleika í
þessum heimi. En ég er samt dóna-
kall,“ segir hann hlæjandi og held-
ur áfram: „Ég á fjölskyldu sem ég
þarf að sinna. Ég á tónlistarferil
sem ég þarf að sinna og ég er svo
sannarlega ekki að gera honum
neinn greiða með því að vera ein-
hver mótmælandi.“ En hann vill
alls ekki blanda saman tónlistinni
og mótmælunum og gætir þess að
halda því tvennu aðskildu. Nú vill
hann beina athyglinni að mótmæl-
unum en á meðan situr tónlistin á
hakanum. „Ég ætla bara að styðja
við þetta átak. Ég sprengdi fyrsta
kínverjann, en ætla svo bara að
hjálpa til með rest.“
Hann ætlaði sér aldrei að
verða talsmaður mótmælanna
og var í raun meinilla við það.
„Mér var meinilla við að fara upp
á svið og vera reiður maður. Mér
finnst miklu skemmtilegra að
vera skemmtilegi gæinn og þess
vegna sagði ég líka þennan kúka-
brandara. Bara til að koma fólki til
að hlæja í þessu alvarlega ástandi.
Við verðum líka að geta hlegið
saman þó að við séum reið.“
Þriðja barnið á leiðinni
Þrátt fyrir að Svavar Knútur verði
reiður af því að tala um ástandið í
þjóðfélaginu og mótmælin, þá læt-
ur hann þessa reiði ekki ná tökum
á sér fyrir alvöru. Enda varla pláss
fyrir reiðina í lífi hans á næstunni
því hann á von á sínu þriðja barni
eftir mánuð. „Ég hlakka alveg rosa-
lega til. Ég er að gera þetta fyrir
þau, fyrir börnin mín. „Hægt og ró-
lega er verið að svipta fólk hlutum,
lífsgæðum sem það hafði. Sem við
höfum sem samfélag ákveðið að
væru góð og fyrir okkur. Við höf-
um sem samfélag ákveðið að við
greiddum fyrir heilbrigðisþjónustu
og menntun saman. Þessi þjóð er
sammála um fullt af grundvallar-
gildum en ríkisstjórn er í óðaönn
að ganga þvert á þau.“
Svavar Knútur og bræður hans
voru aldir upp við mikla réttlætis-
kennd og það hefur mótað hann
mikið. „Þegar við sjáum brotið á
fólki og þegar við sjáum grafið und-
an réttlætinu þá verðum við reiðir.
Svo er til fólk sem verður reitt í um-
ferðinni ef einhver keyrir fram fyr-
ir það, það er kjánaleg reiði. Þegar
það er gengið á réttlæti fólks þá
brýst hins vegar út heilbrigð reiði
sem ber að taka mark á, þrátt fyrir
alla kúkabrandara heimsins.“
Myndlíkingin kemur
úr partíi á Flateyri
En hvaðan kemur þessi myndlík-
ing af gaurnum sem kúkaði á gólf-
ið, er þetta saga úr raunveruleikan-
um? „Hún kemur bara úr partíi á
Flateyri,“ segir Svavar Knútur hlæj-
andi og blaðamaður veit ekki al-
veg hvort hann á að trúa honum.
„Þetta er bara rokk-myndlíking.
Maður hefur séð ýmislegt gerast,“
bætir hann við og heldur áfram:
„Ég hef séð fólk koma illa fram ein-
hvers staðar og svo gerir það bara
illt verra.“ Hann segist þó langt í frá
vera fullkominn sjálfur.
„Ég hef aldrei gefið mig út fyrir
að vera einhver jólastrákur. Fyrir
að vera manneskja sem segir aldrei
nein ljót orð. Ég segi fullt af ljót-
um orðum. Ég er góður kall, en
ég er líka mjög hrjúfur. Ég er skil-
getið afkvæmi Kolbeins kafteins og
Bangsa bestaskinns. En Kolbeini
kafteini þykir líka vænt um Tinna,
honum þykir vænt um fólkið sitt.
Hann er bara vondur út í bófa og
ræningja.“
Aðspurður hvort hann telji að
umræddur kúkabrandari hafi á
einhvern hátt rýrt innihald ræðu
hans á mótmælunum, segir hann
það af og frá. „Þetta er svona hent-
ugleikahneykslun. Ef að einn mað-
ur á einum mótmælum segir kúka-
brandara þá eyðileggur það ekki
skoðanir fimm þúsund manns sem
eru komnir til að mótmæla. Það er
bara djók að tala svona.“
Lítið fyrir sviðsljósið
Svavar Knútur er maður uppfullur
af ást og væntumþykju og vill helst
breiða út faðminn til sem flestra.
Hann vill vera góður maður og
vonar að hann sé einn slíkur. Það
sé þó annarra að dæma um það.
„Mér þykir ógeðslega vænt um
fólk, jafnvel fólk sem ég er reiður út
í. Fólk sem ég er mjög ósammála í
pólitík þykir mér jafnvel bara vænt
um. Mér þykir mikilvægt að það sé
svoleiðis. Maður getur verið reiður
út í fólk sem manni þykir vænt um,
jafnvel fjölskylduna sína ef manni
blöskrar.“
Þrátt fyrir að Svavar Knútur
beri það kannski ekki með sér þá
er hann frekar feimin týpa og vill
helst halda sinni persónu fyrir utan
sviðsljósið. Segist eiga frekar erfitt
með það þegar athyglin beinist að
honum. „Það er ástæða fyrir því að
ég er trúbador, þá get ég bara spil-
að með fólkinu mínu og haft það
gott,“ segir Svavar Knútur hrein-
skilinn. Hann lætur sig þó hafa
það núna, að sviðsljósið beinist að
honum, en bara í skamman tíma.
Hann segist alls ekki vilja vera
hrokafullur og vonar að orð hann
hljómi ekki þannig. „Ég vil ekki
stuða fólkið í landinu, ég vil frekar
reyna að hjálpa því. Svo vil ég bara
hverfa á braut, halda áfram að vera
tónlistarmaður og gera gagn í sam-
félaginu,“ segir hann að lokum. n
Illa við reiði
Svavar Knútur
vill miklu frekar
vera skemmti-
legi gæinn en
þessi reiði.
MyndIr SIgtryggur ArI
Á mótmælunum Svavar Knútur hlaut mikið lof fyrir ræðu sína á mótmælunum en hún fór þó fyrir brjóstið á einhverjum.
„Ég er ekki
með neitt
umboð til að ráða
neinu í þessu landi.
Það er engin krafa á
mig að vera kurteis.
Sterkari en áður Unglingsárin voru Svavari erfið vegna eineltis en hann stendur uppi
sterkari fyrir vikið.„Mér
þykir ógeðs-
lega vænt um fólk,
jafnvel fólk sem
ég er reiður út í.