Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.2014, Blaðsíða 6
6 Fréttir Helgarblað 7.–10. nóvember 2014
Keyptu á 24 milljónir,
seldu á nærri milljarð
Íslandsbanki hafði umboðið til að selja P/F Magn út árið 2008
Þ
egar Glitnir sölutryggði olíu-
félagið Skeljung fyrir dóttur-
félag Fons árið 2007 fyrir 8,7
milljarða króna sölutryggði
bankinn einnig hluta-
fé Fons í færeyska olíufélaginu P/F
Magni. Glitnir seldi svo 51 prósents
meirihluta í Skeljungi til hjónanna
Svanhildar Nönnu Vigfúsdóttur
og Guðmundar Arnar Þórðarson-
ar síðla árs 2008 en hélt eftir 49 pró-
senta hlut í félaginu.
Bankinn hélt hins vegar eftir um-
boði til að selja P/F Magn, sem var
Skeljungur í Færeyjum, út árið 2008.
Þá tók Fons aftur við umboðinu til að
selja P/F Magn og seldi það félag svo
í apríl 2009 til sömu aðila og höfðu
keypt Skeljung af Glitni skömmu fyr-
ir hrun. Um var að ræða félag í eigu
þeirra Svanhildar Nönnu og Guð-
mundar Arnar sem heitir Hedda
eignarhaldsfélag ehf.
Að sögn skiptastjóra Fons, Óskars
Sigurðssonar, var félagið þá enn í eigu
Pálma Haraldssonar og var stýrt af
honum. Óskar sagði í samtali við DV á
þriðjudaginn að P/F Magn hefði verið
selt út úr Fons áður en hann tók við
því sem skiptastjóri. „Áður en félag-
ið fór í þrot var búið að selja þetta.“
Athygli vekur að P/F Magn var selt
út úr Fons í apríl en félagið var tek-
ið til gjaldþrotaskipta þann 30. þess
mánaðar. Óskar segir að Fons hafi
rift greiðslufyrirkomulaginu á P/F
Magni og gert annan kaupsamning
við þau Svanhildi Nönnu og Guð-
mund Örn Þórðarson. „Hvernig fyrri
viðskiptin voru, hvernig það kom
til að Pálmi selur þetta, það veit ég
ekki.“ Söluverðið fyrir P/F Magn var
ógreitt þegar Fons varð gjaldþrota
en ástæðan fyrir því var greiðslufyr-
irkomulag samningsins sem Óskar
fetti fingur út í.
Samkvæmt ársreikningi Heddu
eignarhaldsfélags fyrir árið 2009
námu keyptir eignarhlutar félagsins
110 milljónum króna árið 2009. Þar
hlýtur að vera vísað til P/F Magns en
færeyska olíufélagið er hins vegar ekki
nefnt á nafn í ársreikningum. Bókfært
verðmæti þessa eignarhlutar var 233,5
milljónir króna í árslok 2009.
Mikill hagnaður
Viðskipti Glitnis með Skeljung og
P/F Magn hafa verið til umfjöllunar
í fjölmiðlum síðustu vikuna, eftir að
Morgunblaðið greindi frá því að þrír
af fyrrverandi starfsmönnum fyrir-
tækjaráðgjafar Glitnis, síðar Íslands-
banka, hefðu hagnast um rúmlega
800 milljónir hver þegar Skeljungur
og P/F Magn voru seld til íslenskra líf-
eyrissjóða í gegnum sjóðsstýringar-
fyrirtækið Stefni í fyrra. Kaupverð fyr-
irtækjanna tveggja var samtals um
átta milljarðar króna. Starfsmennirn-
ir þrír voru þau Einar Örn Ólafs-
son, Kári Þór Guðjónsson og Halla
Sigrún Hjartardóttir. Það var fyrir-
tækjaráðgjöf bankans, þar sem þess-
ir þrír starfsmenn störfuðu, sem sá
um söluna á Skeljungi og einnig P/F
Magni á meðan bankinn hafði um-
boð til þess.
Samkvæmt heimildum DV var
það hins vegar ekki Íslandsbanki sem
seldi P/F Magn heldur Fons þar sem
umboðið til sölutryggingarinnar var
fallið úr gildi í apríl 2009. Í tilkynn-
ingu frá Höllu Sigrúnu Hjartardóttur
í síðustu viku, þar sem hún sagði sig
frá stjórnarformennsku í Fjármála-
eftirlitinu frá og með næstu áramót-
um, segir að Íslandsbanki hefði ekki
haft neitt með viðskiptin að gera: „Ís-
landsbanki, þar sem ég starfaði áður,
hafði ekkert með þessi viðskipti að
gera enda var P/F Magn keypt af
þrotabúi Fons eignarhaldsfélagi.“
Íslandsbanki, fyrirtækið sem Halla
Sigrún starfaði hjá, hafði hins vegar
haft færeyska olíufélagið til sölu-
meðferðar skömmu áður en það var
selt til Heddu.
Líkt og fjallað hefur verið um í DV
létu þeir Einar Örn Ólafsson og Kári
Þór Guðjónsson af störfum í Íslands-
banka í april 2009. Ástæða starfsloka
Einars Arnar var „trúnaðarbrestur“
sem tilkominn var vegna þess að
bankinn taldi að Einar Örn ætti í við-
ræðum við nýja eigendur Skeljungs
um samstarf við þá og að þar af leið-
andi færu hagsmunir bankans og
hans ekki lengur saman.
Hlutafjáreign upp á 24 milljónir
Einar Örn Ólafsson, Kári Þór Guð-
jónsson og Halla Sigrún Hjartardóttir
keyptu svo hluti í Heddu eignarhalds-
félagi árið 2011. Í ársreikningi
eignarhaldsfélags Kára, Nolt ehf.,
er hlutabréfaeign félagsins bókfærð
sem rúmar 24 milljónir króna bæði
árin. Þar hlýtur meðal annars að vera
um að ræða hlutabréfin í Heddu sem
Kári seldi svo í fyrra með rúmlega 800
milljóna króna hagnaði, líkt og þau
Einar Örn og Halla Sigrún.
Árið 2012 seldi Hedda eignarhalds-
félag Skeljungi svo 34 prósenta hlut í
P/F Magni fyrir tæplega 1.342 millj-
ónir króna og var kaupverðið greitt
með hlutabréfum í Skeljungi – sam-
tals 25 prósenta hlut. Orðrétt segir um
þetta í ársreikningi Skeljungs 2012:
„Félagið keypti 34,0% eignarhlut í P/F
Magn af Hedda eignarhaldsfélag ehf.
fyrir 1.341,8 millj. kr. og greiddi fyrir
með nýjum hlutum í Skeljungi hf.“
Miðað við þetta var P/F Magn
tæplega fjögurra milljarða króna
virði árið 2012 en hafði verið 233,5
milljóna virði í árslok 2009 og að því
er virðist enn minna virði árið 2011
þegar hlutafjáreign Kára Þórs í fé-
laginu – þriðjungshlutur – var bók-
færður á 24 milljónir króna. n
Ingi Freyr Vilhjálmsson
ingi@dv.is
Fons seldi en skiptastjóri
rifti Fons, eignarhaldsfélag
Pálma Haraldssonar, seldi P/F
Magn út úr félaginu rétt áður en
það var úrskurðað gjaldþrota í
apríl 2009. Glitnir hafði áður haft
umboð til að selja P/F Magn.
Tengdist ekkert Íslandsbanka Halla
Sigrún Hjartardóttir sagði í tilkynningu í síð-
ustu viku að sala Fons á P/F Magni tengdist
Íslandsbanka ekki neitt. Bankinn hafði hins
vegar haft umboð til að selja olíufélagið.
„Hvernig fyrri
viðskiptin voru,
hvernig það kom til að
Pálmi selur þetta, það
veit ég ekki.
F
jölmiðlafyrirtækið 365 skipti
um endurskoðanda á milli
þess sem sem félagið skilaði
ársreikningi fyrir árið 2012
og svo 2013. Endurskoðandi fjöl-
miðlafyrirtækisins var áður KPMG
en er nú PriceWaterhouseCoopers.
Breytingin á endurskoðanda hefur
verið tilkynnt og skrásett hjá ríkis-
skattstjóra og kemur fram á saman-
burðarskýrslu um starfsemi 365.
Breytingin á endurskoðand-
anum vekur athygli þar sem
KPMG hafði síðastliðin ár gert
athugasemd við rekstarhæfi 365
miðla. Slíka athugasemd var meðal
annars að finna í ársreikningi ársins
2012. Engin slík athugasemda er
hins vegar í ársreikningi 365 fyrir
árið 2013 sem greint hefur verið frá
í fjölmiðlum upp á síðkastið.
Í ársreikningi félagsins fyrir 2012
benti KPMG á að gengju áætlanir
stjórnenda 365 ekki eftir gæti ver-
ið vafi á rekstrarhæfi fjölmiðlafyrir-
tækisins vegna þess að ætlað, bók-
fært verðmæti eigna sé hugsanlega
minna en talið er. Með öðrum orð-
um að óefnislegar eignir 365 hafi
verið ofmetnar. Í ársreikningi 365
fyrir 2012 voru óefnislegar eignir
sagðar vera 5.880 milljónir króna
en heildareignir rúmlega 9.850
milljónir. Óefnislegu eignirnar voru
með öðrum orðum um 60 prósent
eigna.
Bókfært virði óefnislegra eigna
lækkaði ekki í ársreikningi 365 fyrir
árið 2013 en athugasemdina um
ætlað verðmæti þessara eigna var
ekki að finna í honum. n
ingi@dv.is
365 skipti um endurskoðanda
Engin athugasemd um rekstrarhæfi
Nýr endurskoðandi 365 hefur nú fengið
nýjan endurskoðanda en Jón Ásgeir Jóhann-
esson, eiginmaður Ingibjargar Pálmadóttur,
aðaleiganda félagsins, er fyrrverandi aðal-
eigandi fyrirtækisins. MyNd SIgTryggur ArI
Salan er aftur
komin til
skoðunar
Salan á Skeljungi er aftur komin
til skoðunar hjá Íslandsbanka,
áður Glitni, í kjölfar nýrra upp-
lýsinga um hagnað þriggja fyrr-
verandi starfsmanna bankans á
viðskiptum með fyrirtækið í fyrra.
Þetta kom fram í upplýsingum
sem bankinn veitti DV á miðviku-
daginn. Ekki liggur fyrir hvers eðlis
skoðunin er eða hversu langt hún
er komin. Starfsmennirnir fyrrver-
andi eru Einar Örn Ólafsson, Halla
Sigrún Hjartardóttir og Kári Þór
Guðjónsson.
Salan á Skeljungi var skoðuð
sérstaklega eftir að Einar Örn
Ólafsson lét af störfum í bank-
anum árið 2009. Ekkert misjafnt
kom út úr þeirri skoðun, líkt og DV
greindi frá árið 2011. Glitnir hafði
einnig haft færeyska olíufélagið
P/F Magn til sölumeðferðar út árið
2008 en hafði ekki selt fyrirtækið á
þeim tíma, líkt og fjallað er um hér
til hliðar. Hugsanlegt er að skoðun
Íslandsbanka nú beinist einnig að
P/F Magni og tilraununum til að
selja það fyrirtæki árið 2008.
Glitnir sölutryggði bæði Skelj-
ung og P/F Magn fyrir Pálma Har-
aldsson fjárfesti, eða félög í hans
eigu, árið 2007. Ekki gekk að selja
Skeljung fyrr en um haustið 2008
þegar Svanhildur Nanna Vigfús-
dóttir og Guðmundur Örn Þórðar-
son keyptu meirihluta í fyrir-
tækinu – 51 prósent – fyrir 1,5
milljarða.
Í apríl 2009 hætti Einar Örn svo
í bankanum vegna trúnaðarbrests
og réð sig til Skeljungs nokkrum
vikum síðar. Í lok apríl keyptu
Svanhildur og Guðmundur Örn
P/F Magn af þrotabúi Fons en fyr-
irtækjaráðgjöf Íslandsbanka hafði
áður haft fyrirtækið til sölu. Árið
2011 eignuðust Einar Örn, Halla
Sigrún og Kári svo hluti í félaginu
Heddu ehf. sem hafði keypt P/F
Magn af Fons. Þremenningarn-
ir hafa neitað því að hafa grætt á
Skeljungi og segjast aðeins hafa
hagnast á sölu P/F Magns.w
Hugo Boss söluaðilar:
Reykjavík:
Gilbert úrsmiður Laugavegi 62 s: 551-4100
Gullúrið–úra og skartgripaverslunv Mjódd s: 587-4100
Úra- og skartgripaverslun Heide Glæsibæ s: 581-3665
Meba Kringlunni s: 553-1199
Meba - Rhodium Smáralind s: 555-7711
Hafnarfjörður
Úr & Gull Firði-Miðbæ Hafnarfjarðar s: 565-4666
Keflavík:
Georg V. Hannah, úrsmiður Hafnargötu 49 s: 421-5757
Selfoss:
Karl R. Guðmundsson, úrsmiður Austurvegi 11 s: 482-1433
Akureyri:
Halldór Ólafsson úrsmiður Glerártorgi s: 462-2509
Akranes:
Guðmundur B. Hannah, úrsmiður Suðurgötu 65 s: 431-1458
Egilsstaðir:
Klassík Selási 1 s:471-1886
Úra- o skartgripaversl n
Heide Glæsibæ - s: 581 36 5