Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.2014, Blaðsíða 50

Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.2014, Blaðsíða 50
50 Menning Sjónvarp Helgarblað 7.–10. nóvember 2014 Aftur til fortíðar – bara ekki minnar eigin É g varð þeirrar ánægju aðnjót- andi fyrir um hálfum mánuði að geta skotist aftur til fortíð- ar. Einn var þó galli á þeirri gjöf Njarðar að sú fortíð var ekki mín. Þegar ég árið 1972, eða þar um bil, þá ungur sveitadrengur, sá í svarthvítu 20 tomma Tandberg- sjónvarpi kvikmyndina A Hard Day's Night, með hljómsveitina The Beatles í aðalhlutverkum, varð vendipunktur í tilveru minni. Bítl- arnir; Jón, Páll, Georg og Hringur, eins og þeir gjarna voru kallaðir í denn, urðu átrúnaðargoð mín. Þegar þarna var komið sögu hafði The Beatles runnið sitt skeið, en tónlistin opinberaði mér veröld sem hafði að mestu einkennst af tónlist þeirri sem Ríkisútvarp- ið, með sína einu rás landsins, sendi út og ómaði í eldhúsinu úr Kurér-viðtæki þegar svo bar undir. Endrum og sinnum gátum við systkinin hlustað á Kanaútvarpið, en fóstri var þá oftar en ekki fljótur til og sagði okkur að „lækka í þessu gargani“. Tími Bítlanna En hvað sem því líður þá tók við tími Bítlanna hjá mér; til að byrja með bárust mér í hendur ein og ein LP-plata eða kassetta, sem þá var helsta byltingin, með hljóm- sveitinni. Í kaupfélaginu í Borgar- nesi gat ég stundum keypt þýsk tímarit; Bravo lifir í minningunni. Allar greinar þar sem fjórmenning- ana frá Liverpool bar á góma voru klipptar út og þeim haldið til haga. En aldrei sá ég The Beatles á sviði og barmaði mér á stund- um fyrir að hafa fæðst áratug of seint. Seinna meir, með tilkomu internetsins, gafst mér tækifæri til að sjá þessi goð bernsku minnar flytja ódauðleg lög sín á sviði og sjá þá breytast með tíðaranda sem þeir iðulega höfðu meiri áhrif á en sam- tíðarmenn þeirra. Fyrir um hálfum mánuði sá ég loksins The Beatles, reyndar The Bootleg Beatles en um var að ræða ljúfa sárabót fyrir aðdáanda sem kominn er yfir miðjan aldur. Ásamt syni mínum, sem fékk áhuga á The Beatles í gegnum pápa sinn, skund- aði ég í Háskólabíó til móts við for- tíð sem ekki var mín. Við fengum sæti á aftasta bekk og ég tvinnaði saman nokkur góð blótsyrði sem mér höfðu verið töm á tungu er ég stundaði farmennsku. Ástæða þess var sú að mér er farið að förlast sýn og þrátt fyrir að vera með gleraugu þá ber ég vart kennsl á fólk sem kastar á mig kveðju hinum megin götunnar. Mér fannst súrt í brotið að fá ekki að sjá „Bítlana“ greini- lega. Þegar leið á sýninguna kom reyndar í ljós að þessi sjóndepurð reyndist mikil blessun. Slæm sjón til bóta Allar götur frá fyrsta lagi var ljóst að meðlimir The Bootleg Beatles höfðu kynnt sér til hlítar sviðs- framkomu fjórmenninganna frá Liverpool, líkamshreyfingar, takta og talsmáta. Jafnvel „Ringo“, sem annars lítið bar á, klikkaði ekki á neinu því sem einkenndi fyrir- myndina. Áreynslulítið renndi hljóm- sveitin gegnum hvert lagið á fætur öðru en tók sér hlé öðru hvoru til að uppfæra klæðaburð í anda hvers tímabils. Þessi för mín aftur til fortíðar, sem ég átti aldrei, varð hin besta skemmtun og þegar upp var stað- ið kom í ljós kostur þess að hafa ekki endurnýjað gleraugun. Af aftasta bekk var engu líkara en ég væri í reynd að berja átrúnaðar- goð mín forðum augum, því með góðum vilja var hægt að líta, eða hlusta, framhjá því að þó nokkur blæbrigða- munur var á röddum The Bootleg Beatles og The Beatles. Ef ég vildi fullkomna blekkinguna þurfti ég bara að loka hægra auga mínu og þá sá ég bara þoku- kenndar verur sem hreyfðust á sviðinu. n „… en fóstri var þá oftar en ekki fljótur til og sagði okkur að „lækka í þessu gargani“. Sjónvarpsdagskrá RÚV Stöð 2 SkjárEinn Stöð 2 Sport L eikkonan Rose McGowan hef- ur lýst því yfir að henni finn- ist samkynhneigðir menn meiri kvenhatarar en gagn- kynhneigðir menn. Þetta kemur til vegna sniðgöngu homma gagnvart Dorchester-hótelinu í Beverly Hills vegna laga sem eigandinn, sold- áninn af Brunei, setti í heimalandi sínu. Lögin kveða á um að grýta eigi homma til dauða. Rose finnst að þeir eigi einnig að fordæma skort á kvenréttindum í Arabalöndum, þó Brunei sé í Suðaustur-Asíu. Í fyrstu stóð hún með þeim í aðgerðunum en dró í land síðar. „Eigum við að ræða það að ég hef engan homma séð berjast fyrir réttindum kvenna?“ spurði hún. Hún sagði svo að hún hefði ekki orðið vör við nokkurn samkynhneigðan for- dæma það að löggjöf um jöfn laun kynjanna hafi ekki farið í gegn á bandaríska þinginu. „Hommar hafa í raun bara barist fyrir því að fá að taka þátt í skrúðgöngum í appelsínugulri sundskýlu og taka MDMA.“ n helgadis@dv.is Vill að þeir berjist meira fyrir réttindum kvenna McGowan segir homma hata konur Sunnudagur 9. nóvember Stöð 2 Sport 2 Bíóstöðin Gullstöðin Stöð 3 07.00 Morgunstundin okkar 07.01 Smælki (7:26) 07.04 Kalli og Lóla (25:26) 07.15 Tillý og vinir (35:52) 07.26 Kioka (52:52) 07.33 Pósturinn Páll (11:13) 07.48 Ólivía (37:52) 07.59 Vinabær Danna tígurs 08.10 Kúlugúbbarnir (10:26) 08.34 Tré-Fú Tom (1:13) 08.56 Um hvað snýst þetta allt? (40:52) 09.00 Disneystundin (44:52) 09.01 Finnbogi og Felix (1:10) 09.24 Sígildar teiknimyndir 09.30 Herkúles (1:10) 09.53 Millý spyr (65:78) 10.00 Chaplin (13:50) 10.06 Undraveröld Gúnda 10.20 Fisk í dag e (4:8) 10.30 Óskalög þjóðarinnar e (4:8) (1974-1983) 11.25 Hraðfréttir e 11.45 Djöflaeyjan 888 e (6:27) 12.15 Studíó A 888 e (1:6) 13.00 Forkeppni EM landsliða í Badminton (Ísland-Tyrk- land) 15.00 Tolkien: Skapari undraheima e (JRR Tolkien: Designer of Worlds) 16.00 Malala - Skotin vegna skólagöngu e (Malala - shot for Going to School) 16.30 Best í Brooklyn e (1:22) (Brooklyn Nine-Nine) 16.50 Saga af strák e (1:13) (About a Boy) 17.10 Táknmálsfréttir (70) 17.20 Stella og Steinn (20:42) 17.32 Sebbi (5:40) 17.44 Ævintýri Berta og Árna 17.49 Hrúturinn Hreinn (4:10) 17.56 Skrípin (26:52) 18.00 Stundin okkar 888 (6:28) 18.25 Basl er búskapur (3:10) (Bonderøven) 19.00 Fréttir 19.20 Íþróttir 19.35 Veðurfréttir 19.40 Landinn 888 (9) 20.10 Óskalögin 1974 - 1983 (1:5) (Fjöllin hafa vakað) 20.15 Orðbragð (2:6) Skemmti- þáttur um tungumálið á reiprennandi íslensku. Við höldum áfram að uppgötva nýjar hliðar á íslenskunni, þessu sérviskulega og kröftuga máli. 20.50 Downton Abbey 8,8 (4:8) Breskur myndaflokkur sem gerist upp úr fyrri heimsstyrjöld og segir frá Crawley-fjölskyldunni og þjónustufólki hennar. 21.40 Bardaginn við Rauða- klett (Chi Bi - Red Cliff) Ævintýralegt meistarverk leikstjórans Johns Woo frá 2008. Sögusviðið er Kína á árunum 220-280 e.Kr. á stríðstímum. Margverðlaunuð mynd fyrir tæknivinnslu og besta erlenda mynd á mörgum kvikmyndahátíðum. Að- alhlutverk: Tony Chiu Wai Leung, Takeshi Kaneshiro og Fengyi Zhang. Atriði í myndinni eru ekki við hæfi ungra barna. 00.05 Afturgöngurnar e (6:8) (Les revenants) Dulmagn- aðir spennuþættir. Atriði í þáttunum eru ekki við hæfi barna. 01.00 Útvarpsfréttir 09:40 UEFA Champions League 11:20 UEFA Champions League 13:00 Moto GP (Moto GP - Valencia) 14:10 NBA 15:00 Þýsku mörkin 15:30 Formula 1 2014 18:30 Meistaradeildin 19:20 Meistaradeild Evrópu 19:50 Spænski boltinn 14/15 21:50 Moto GP 22:50 Spænski boltinn 14/15 00:30 Spænski boltinn 14/15 08:20 Premier League 10:00 Premier League 11:40 Premier League 13:20 Premier League (Sunderland - Everton) 15:50 Premier League (Swansea - Arsenal) 18:00 Premier League (Tottenham - Stoke) 19:40 Premier League (WBA - Newcastle) 21:20 Premier League (Sunderland - Everton) 23:00 Premier League (Swansea - Arsenal) 08:30 Happy Gilmore 10:00 James Dean 11:35 Bowfinger 13:10 Pay It Forward 15:10 Happy Gilmore 16:45 James Dean 18:20 Bowfinger 19:55 Pay It Forward 22:00 Tower Heist 23:45 Game of Death 01:20 Rampart 03:05 Tower Heist 16:00 The Carrie Diaries 16:45 World Strictest Parents (6:6) 17:45 Friends With Benefits (12:13) 18:10 Are You There, Chelsea? (1:12) 18:35 Last Man Standing (14:18) 19:00 Man vs. Wild (5:13) 19:45 Bob's Burgers (17:23) 20:10 American Dad (6:20) 20:35 The Cleveland Show (19:22) 21:00 Allen Gregory (2:7) 21:25 The League (11:13) 21:50 Almost Human (11:13) 22:35 Mind Games (3:13) 23:20 Graceland (10:13) 00:00 The Vampire Diaries (17:23) 00:40 Man vs. Wild (5:13) 01:25 Bob's Burgers (17:23) 01:50 American Dad (6:20) 02:15 The Cleveland Show (19:22) 02:40 Allen Gregory (2:7) 03:05 The League (11:13) 03:30 Almost Human (11:13) 17:20 Strákarnir 17:45 Friends (13:24) 18:10 Arrested Development 3 (8:13) 18:35 Modern Family (5:24) 19:00 Two and a Half Men (3:22) 19:25 Viltu vinna milljón? (7:19) 20:15 Suits (9:12) 21:00 The Mentalist (15:22) 21:40 The Tunnel (4:10) 22:30 Sisters (2:24) 23:15 Hunted 00:15 Viltu vinna milljón? (7:19) 00:40 Suits (9:12) 01:25 The Mentalist (15:22) 02:10 The Tunnel (4:10) 07:00 Barnatími Stöðvar 2 07:01 Strumparnir 07:25 Könnuðurinn Dóra 07:50 Latibær 08:00 Algjör Sveppi 08:05 Ævintýraferðin 08:15 Elías 08:25 Doddi litli og Eyrnastór 08:35 Ben 10 09:00 Grallararnir 09:20 Lukku láki 09:45 Villingarnir 10:10 Kalli kanína og félagar 10:20 Ozzy & Drix 10:40 Tommi og Jenni 11:00 Scooby-Doo! 11:20 iCarly (23:25) 11:45 Töfrahetjurnar (7:10) 12:00 Nágrannar 12:20 Nágrannar 12:40 Nágrannar 13:00 Nágrannar 13:20 Nágrannar 13:45 Stelpurnar (7:10) 14:10 The Big Bang Theory (3:24) 14:35 Heilsugengið (5:8) 15:05 Um land allt (3:12) 15:40 Louis Theroux: America's Medicated Kids 16:45 60 mínútur (6:53) 17:30 Eyjan (11:20) 18:23 Veður 18:30 Fréttir Stöðvar 2 18:55 Sportpakkinn (63:100) 19:10 Ástríður (1:10) 19:40 Sjálfstætt fólk (7:20) 20:15 Rizzoli & Isles (16:16) 21:00 Homeland 8,5 (6:12) Fjórða þáttaröð þessarra mögnuðu spennuþátta þar sem við höldum áfram að fylgjast Með Carrie Mathieson, starfsmanni bandarísku leyniþjón- ustunnar. Líf hennar er alltaf jafn stormasamt og flókið, föðurlandssvikarar halda áfram að ógna öryggi bandarískra þegna og hún og Sal takast á við erfiðasta verkefni þeirra til þessa. 21:50 Shameless 8,7 (3:12) Fjórða þáttaröðin af þessum bráðskemmtulegu þáttum um skrautlega fjölskyldu. Fjölskyldufaðir- inn er forfallinn alkóhólisti, mamman löngu flúin að heiman og uppátækjasamir krakkarnir sjá um sig sjálfir. 22:45 60 mínútur (7:53) 23:35 Eyjan (11:20) 00:25 Brestir (3:8) Öðruvísi fréttaskýringaþáttur sem rýnir í bresti samfélagsins. Forvitnir þáttastjórnendur gægjast undir yfirborðið og fylgjast með því sem fram fer fyrir luktum dyrum. Atriði í þættinum eru ekki við hæfi viðkvæmra. 01:00 Daily Show: Global Edition 01:25 Legends (8:10) 02:10 Outlander (4:16) 03:10 Dying Young 05:00 Rizzoli & Isles (16:16) 05:45 Sjálfstætt fólk (7:20) 06:00 Pepsi MAX tónlist 12:05 The Talk 12:50 The Talk 13:35 Dr.Phil 14:15 Dr.Phil 14:55 Dr.Phil 15:35 Survivor (5:15) 16:20 Kitchen Nightmares (7:10) 17:05 Growing Up Fisher (8:13) 17:30 The Royal Family (8:10) 17:55 Welcome to Sweden (8:10) 18:20 Parenthood (7:22) Banda- rískir þættir um Braverman fjölskylduna í frábærum þáttum um lífið, tilveruna og fjölskylduna. 19:05 Minute To Win It Ísland (8:10) 20:05 Gordon Ramsay Ultima- te Cookery Course (19:20) Frábærir þættir þar sem Gordon Ramsey snýr aftur í heimaeldhúsið og kennir áhorfendum einfaldar aðferðir við heiðarlega heimaeldamennsku. 20:30 Red Band Society (5:13) 21:15 Law & Order: SVU (13:24) 22:00 Fargo 9,1 (7:10) Fargo eru bandarískir sjónvarps- þættir sem eru skrifaðir af Noah Hawlay og eru undir áhrifum samnefndrar kvikmyndar Coen bræðra frá árinu 1996 en þeir eru jafnframt framleiðendur þáttanna. 22:50 Hannibal 8,6 (7:13) Önnur þáttaröðin um lífsnautna- segginn Hannibal Lecter. Rithöfundurinn Thomas Harris gerði hann ódauð- legan í bókum sínum og kvikmyndir sem gerðar hafa verið, hafa almennt fengið frábærar viðtökur. Þótt erfitt sé að feta í fótspor Anthony Hopkins eru áhorfendur og gagnrýnendu á einu máli um að stórleikarinn Mads Mikkelsen farist það einstaklega vel úr hendi. Heimili fjöldamorðingins, mannætunnar og geðlæknirisins Hannibals Lecter er á SkjáEinum. Miriam Lass finnst á lífi. Will er hreinsaður af ásökunum þegar ný sönnunargögn koma í ljós. 23:35 Reckless (10:13) Bandarísk þáttaröð um tvo lög- fræðinga sem laðast að hvort öðru um leið og þau þurfa að takast á sem and- stæðingar í réttarsalnum. 00:25 CSI (1:20) Vinsælasta spennuþáttaröð frá upp- hafi þar sem Ted Danson fer fyrir harðsvíruðum hópi rannsóknardeildar lögreglunnar í Las Vegas. 01:10 The Tonight Show 02:00 Fargo (7:10) 02:50 Hannibal (7:13) 03:35 Pepsi MAX tónlist Kolbeinn Þorsteinsson kolbeinn@dv.is Helgarpistill Rose McGowan Leikkonan var um tíma gift söngvaranum Marilyn Manson. Eins lék hún í þáttunum Charms og kvikmyndinni Scream.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.