Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.2014, Qupperneq 16

Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.2014, Qupperneq 16
Helgarblað 7.–10. nóvember 201416 Fréttir A fsláttur frá vörugjöldum af bifreiðum sem keyptar eru af bílaleigum er nú þegar orðinn meiri en allt árið í fyrra. Þetta endurspeglar mikil innkaup bílaleiga í landinu á nýjum bílum þvert á það sem tals- menn bílaleiga og Samtaka ferða- þjónustunnar héldu fram árið 2012 þegar Alþingi áformaði að afnema ríkisstyrki í formi lægri vörugjalda fyrir bílaleigur með öllu. Þá var því haldið fram að innkaupsverð nýrra bíla myndi hækka um 17,4 prósent og geta þeirra til að kaupa nýja bíla myndi dragast saman um 49 prósent eða um helming. Jafnframt var talið að meðalútleiguverð á bifreið yrði að hækka að jafnaði um 27 prósent. Þveröfug niðurstaða Reyndin er allt önnur. Í minnisblaði efnahags- og fjármálaráðuneytis- ins til fjárlaganefndar Alþingis kem- ur fram að sala á nýjum bílum hafi aukist um 34 prósent á fyrri hluta þessa árs samkvæmt greiningu bíla- umboðsins Brimborgar. „Aukning í sölu til bílaleiga var hins vegar mun meiri, eða 49%, á meðan aukning í sölu fólksbíla án bílaleigubíla var einungis tæp 12%.“ Athygli er vakin á því að hlutfall lúxusbíla í innflutn- ingi og kaupum bílaleiga er mun hærra en meðal almennra bílakaup- enda. Átt er við bíla á borð við dýr- ari gerðir af BMW, Benz, Land Rover, Lexus, Volvo og Porsche. „Sé tekið mið að þessari þróun og hækkun há- marksafsláttarins milli ára er allt út- lit fyrir að heildarafsláttur eða hinn svokallaði „ríkisstyrkur“ til bílaleiga verði vel yfir 2 milljörðum króna á árinu 2014,“ segir í minnisblaðinu. Ríkisstyrkurinn hækkar Þetta er athyglisvert í ljósi meðfylgj- andi töflu um heildarafslátt bíla- leiga frá vörugjöldum á undanförn- um árum. Í dag er hámarksafsláttur á hverja bifreið ein milljón króna; gjöldin eru því hærri sem bílarnir menga meira. Þessi upphæð nam 1.250 þúsund kónum á hverja bifreið árin 2011 og 2012 en hafði í meðför- um Alþingis verið lækkuð niður í 750 þúsund krónur árið 2013. Lækk- unin á síðasta ári virðist ekki hafa dregið úr kaupmætti bílaleiganna. Þvert á móti, því nú áætlar skrifstofa skattamála í efnahags- og fjármála- ráðuneytinu að heildarafsláttur eða hreinn ríkisstyrkur greinarinn verði vel yfir tveimur milljörðum allt þetta ár. Bílaleigur fá felld niður vörugjöld af bílum að hluta til en að hámarki eina milljón króna eins og áður segir. Hægt er að selja bílana aftur eftir fimmtán mánuði og þá þarf að framvísa bílaleigusamningum við sölu til að komast hjá því að endur- greiða vörugjöldin. Á fjárlögum síð- ustu ríkisstjórnar fyrir árið 2013 var ráðgert að vörugjöld á ökutæki í eigu bílaleiga yrðu hækkuð (afsláttur felldur niður) í tveimur áföngum árin 2013 og 2014. Áætlað var að árið 2013 myndi þetta eitt skila ríkissjóði um hálfum milljarði króna aukalega. Almenningur greiði ekki niður bílaleigurekstur Í greinargerð fjárlagafrumvarpsins fyrir árið 2013 sagði að ekki þætti forsvaranlegt að viðhalda niðurfell- ingu vörugjalda á bílaleigubíla „… þegar litið væri til þess að eftirspurn eftir bílaleigubílum hefði aukist, kerfið er þungt í rekstri fyrir stjórn- sýsluna, hin almenna skattlagning á ökutæki gefur færi á að innkaupum sé hagað með þeim hætti að skatt- lagning sé takmörkuð, kerfið vinnur gegn markmiðum um minni losun koltvísýrings frá ökutækjum, hætta er á misnotkun sem erfitt hefur reynst að hafa eftirlit með auk þess sem al- mennt þykir ekki forsvaranlegt að almenningur niðurgreiði leiguverð á bílaleigubílum.“ Líklegt verður að telja að fjárlaganefnd Alþingis horfi til minnisblaðsins í viðleitni sinni til þess að afla nýrra tekna fyrir ríkissjóð með afnámi ríkisstyrkja fyrir bílaleig- ur landsins. Alþingi á enda erfitt með að útvega fé til þess að halda innvið- um þjófélagsins gangandi um þessar mundir sökum fjárskorts. Spá miðaðist við verstu niðurstöðu Bergþór Karlsson situr í stjórn SAF og bílaleigunefnd samtak- anna. Hann segir að þegar rætt hafi verið í tvígang á þriggja ára tímabil um breytingar á vörugjöldum hafi stjórnvöld ætlað að afnema afslátt- inn með öllu. „Niðurstaðan varð hins vegar að taka helminginn af afslættinum og hækka kostn- að sem því nemur. Ef kostnaður eykst verðum við að bregðast við með einhverjum hætti. Spá okk- ar byggðist á því að samdrátturinn yrði meiri en raunin varð. Einnig viljum við benda á að bílar eru okk- ar atvinnutæki og atvinnutæki bera almennt ekki vörugjöld. Þetta er eina atvinnutækið sem ber vöru- gjöld. Okkur finnst því samanburð- urinn við einkabílinn ekki sann- gjarn. Þannig mætti jafnvel snúa þessu við og segja að við séum þrátt fyrir allt að greiða vörugjöld af atvinnutækjum í rekstri sem aðr- ir gera ekki. Ísland er tiltölulega dýrt land og bílaleigubílar einnig. Þeir skipta afar miklu máli í ferða- þjónustunni.“ Bergþór neitar því að bílaleigur hagnist á endursölu tiltölulega nýrra bíla sem bílaleig- urnar hafa fengið afslátt af í gegn- um vörugjöldin. „Á flestum bíl- um er afsláttur frá vörugjaldi 200 til 300 þúsund krónur af hverjum bíl eða langt undir milljónar króna þakinu. En ég endurtek að spá okk- ar (2012) byggðist á forsendum sem ekki gengu eftir nema að hálfu og höggið sem við fengum var þar af leiðandi ekki eins stórt og við ætluðum.“ n Meira en 2 milljarðar 2014 Samkvæmt upplýsingum tollstjóra var afsláttur bílaleiga frá fullum vörugjöld- um eftirfarandi fyrir árin 2011–2013 og fram í júní 2014: 2011 1.116 m.kr. 2012 1.943 m.kr. 2013 1.073 m.kr 2014 jan.–jún. 1.088 m.kr. (áætl. meira en 2.000 m.kr.) Bílaleigur og rök þeirra fyrir ríkisstyrk Á fundi 19. október með Samtökum sveitarfélaga á Suðurlandi, SASS, héldu fulltrúar Samtaka ferðaþjónustunnar því fram að fyrirhuguð hækkun vörugjalda á bílaleigubíla hefðu afar neikvæð áhrif á greinina: n Innkaupsverð bílaleigubíla hækkar um 17,4% að meðaltali n Kaupgeta bílaleiga á nýjum bílum minnkar um 48,9% (fækkun nýrra bíla) n Stærsti rekstrarkostnaður bílaleiga „afföll“ hækkar á 15 mánuðum um 58% n Meðalútleiguverð verður að hækka að jafnaði um 27% allt árið n Engin breyting verður á endursöluverði bíla hjá bílaleigum n Öll hækkun á innkaupsverði þeirra verður því að koma fram í hærra leigugjaldi á bílaleigubílum n Ófyrirsjáanlegar afleiðingar fyrir bílgreinina á Íslandi n Bílaumboð sem verið hafa í mjög erfiðri stöðu vegna hruns í bílasölu á undanförnum árum sjá fram á annað hrun n Tekjur ríkissjóðs munu dragast saman þegar heildaráhrif af breytingunni eru metin Jóhann Hauksson johannh@dv.is Bílaleigur fá tveggja n Njóta afsláttar við innkaup nýrra bíla n Bílakaup þeirra blómstra þrátt fyrir minni afslátt milljarða ríkisstyrk Stóraukin innkaup Bergþór Karlsson hjá Samtökum ferðaþjónustunnar færði fram marg- vísleg rök gegn afnámi afsláttar á vörugjöldum. Þrátt fyrir lækkun eru bílainnkaup bílaleiga með miklum blóma þvert gegn því sem bílaleigurnar spáðu. Mynd ÞoRMAR VigniR gunnARSSon „Spá okkar byggðist á því að samdráttur- inn yrði meiri en raunin varð

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.