Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.2014, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.2014, Blaðsíða 24
Helgarblað 7.–10. nóvember 2014 Heimilisfang Tryggvagötu 11 Hafnarhvoli, 2. hæð 101 Reykjavík fréttaskot 512 70 70fr jál s t, ó Háð dag b l að DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. 512 7000 512 7010 512 7080 512 7050 aðalnúmer ritstjórn áskriftarsími auglýsingar sandkorn 24 Umræða Útgáfufélag: DV ehf. • Stjórnarformaður: Þorsteinn Guðnason • Ritstjóri: Hallgrímur Thorsteinsson Fréttastjóri: Jóhann Hauksson • Ritstjórnarfulltrúi: Ingi Freyr Vilhjálmsson • Umsjónarmaður innblaðs: Sólrún Lilja Ragnarsdóttir Framkvæmdastjóri : Steinn Kári Ragnarsson • Umbrot: DV ehf. • Prentun: Landsprent • Dreifing: Árvakur Byssurnar upp á borðið Aðalritarinn Guðlaugur Þór Þórðarson hefur níu pólitísk líf. Það sást best á flokksráðsfundi Sjálfstæðis­ flokksins á dögunum þegar hann lét kjósa sig ritara flokks­ ins í óþökk Illuga Gunnarsson- ar að ekki sé talað um Hönnu Birnu Kristjánsdóttur. Þau síð­ artöldu ku hafa leitað logandi ljósi að mótframbjóðanda gegn Guðlaugi Þór en án árangurs. Á nýju ári mun hann ferðast um landið og safna atkvæðum fyr­ ir landsfundinn þar sem hann mun bjóða sig fram til varafor­ mennsku og fella Hönnu Birnu sem má muna fífil sinn fegurri í pólitík. Ólafur í fjölmiðlaleit Hermt er að Ólafur Ólafsson, kenndur við Samskip, hafi nú áhuga á því að fjárfesta í fjöl­ miðli á Íslandi og leiti að slíku tækifæri. Hvort Ólafur mun sjálfur verða skráður fyrir fjár­ festingunni er svo annað mál. Rekstur Samskipa gengur ágætlega og hefur Ólafur getað greitt sér út arð upp á um millj­ arð út úr fyrirtækinu síðastliðin tvö ár. Ólafur er svo auðvitað sterkefnaður maður fyrir og get­ ur hlutafé í litlum eða meðal­ stórum fjölmiðli sennilega talist vera hálfgert klink fyrir hann. Enn hefur hins vegar ekki komið fram hvernig leit Ólafs gengur. Bróðirinn í sjóðnum Sparisjóðsstjórinn á Siglufirði, Ólafur Jónsson, er bróðir Birkis Jóns Jónssonar, fyrrverandi þingmanns Framsóknar­ flokksins, en DV greindi frá því á þriðju­ daginn að sjóðurinn hefði lánað Framsóknar­ flokknum tugi milljóna króna árið 2007. Birkir Jón var á þeim tíma þingmaður Framsóknarflokks­ ins og formaður fjárlaganefnd­ ar. Lánið frá sparisjóðnum er á tryggingabréfi sem er á öðrum veðrétti í höfuðstöðvum Fram­ sóknarflokksins við Hverfisgötu. Skömmu eftir að lánið var veitt sameinaðist sjóðurinn Sparisjóði Skagafjarðar og úr varð sameinaði sparisjóðurinn AFL. Hún lemur barnið sitt Hálfbróðir drengs sem er beittur ofbeldi hefur þungar áhyggjur. – DV Þ ví verður vart trúað að stjórn­ völd í landinu ætli ekki að gera hreint fyrir sínum dyrum í kjölfar afhjúpunar DV á stór­ felldum byssuinnflutningi frá Noregi á vegum Landhelgisgæslunnar og ríkislögreglustjóra og umræðna sem spunnist hafa í kjölfarið. Vandséð er hvernig yfirvöldum lögreglumála er stætt á því að skilja þetta mál eftir hangandi í lausu lofti, með almenning klórandi sér í höfð­ inu yfir stórfelldri viðbót og eðlis­ breytingu í byssueign almennu lögreglunnar í landinu og Land­ helgisgæslunnar. Enn hefur mörgum spurningum sem vaknað hafa í málinu annað­ hvort ekki verið svarað, eða þá svar­ að með undanbrögðum, yfirklóri, hálfsannleik, háði eða einfaldlega hreinum ósannindum. Það er til dæmis furðuleg staða að horfa upp á að yfirlýsingar embætta forsætisráðherra Íslands og norska hersins skuli algjörlega hafa stangast á í jafn alvarlegu máli og hér um ræð­ ir. Enn merkilegra er þó að forsætis­ ráðuneytið hafi að því er virðist ekki hingað til séð ástæðu til þess að graf­ ast fyrir um hið sanna í málinu. Það stendur þannig ennþá upp á forsætisráðuneytið að útskýra til fulls misræmið í því sem talsmaður norska hersins sagði fjölmiðlum, að herinn hafi selt hríðskotabyssurnar 250 hingað til lands fyrir jafnvirði tæpra 12 milljóna íslenskra króna og þess sem Jóhannes Þór Skúlason, aðstoðarmaður Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra, segist hafa haft eftir innanríkisráðu­ neytinu, sem sé að byssurnar hafi verið gjöf frá Norðmönnum og kostn­ aðurinn við þau „kaup“ því enginn. Hvort var það? Það er reyndar kapítuli út af fyrir sig að forsætis­ og dómsmálaráð­ herra ákveði að veita einu svör sín í þessu máli á Facebook­síðu sinni og á síðu aðstoðarmannsins. Það stendur líka enn upp á ráð­ herra lögreglumála og Landhelgis­ gæslunnar, þau Sigmund Davíð Gunnlaugsson og Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, að útskýra þetta sama misræmi. En opnu spurningarnar eru miklu fleiri. Ein þeirra lýtur að tollafgreiðslu byssusendingarinnar. Þó svo að byssusendingin hafi skoðast sem gjöf hefur í öllum tilfellum þurft að tollafgreiða vopnin, verðmeta þau og greiða af þeim aðflutningsgjöld. Það var ekki gert þegar byssurnar komu til lands­ ins í febrúar. Þegar málið komst upp núna í október var rokið upp til handa og fóta og byssurnar inn­ siglaðar, að sögn Georgs Lárusson­ ar, forstjóra Landhelgisgæslunnar, vegna vafans um hvort um gjöf eða sölu væri að ræða. Einnig var haft eft­ ir Georg að ekki hafi unnist tími til að tollafgreiða vopnin þótt tollurinn hafi vitað af innflutningnum. Þetta er ótrúverðug skýring. Ætlast er til að við trúum því að 200–300 lögreglu­ menn hafi um nokkurt skeið stund­ að skotæfingar með ótollafgreiddum hríðskota byssum með vitund tollyf­ irvalda. Og af hverju var rúmt hálft ár ekki nægilegur tími til að tollafgreiða sendinguna? Þetta stenst varla nokkra skoðun. Eins standast ekki þau undan­ brögð vegna spurninga um kostnað sem yfirvöld hafa haft uppi í málinu. Ef innkaupakostn­ aður vopnanna er undanskilinn stend­ ur eftir kostnaðurinn sem óumdeilanlega hef­ ur verið lagt í við þjálfun hundraða lögreglumanna. Væntanlega hefur þessi fjöldi þegið umtalaða helgar­ þjálfun á hríðskotabyssurnar utan venjulegra vakta, sem gefur til kynna margra milljóna króna kostnað bara í yfirvinnugreiðslur. Í þriðja lagi stenst sú skýring enga skoðun að um eðlilega endur­ nýjun vopnabirgða lögreglunnar sé að ræða. Um er að ræða nýja tegund vopna sem ráðagerðir eru um að taka í notkun innan almenna lögreglu­ liðsins í landinu. Þær 150 hríðskota­ byssur, sem lögreglan átti að fá úr sendingunni eru auk þess mun fleiri en byssurnar sem lögreglan átti fyr­ ir. Hvaða gögn liggja fyrir sem styðja þessar miklu breytingar? Það er sjálfsögð krafa að öll saga þessa máls, málatilbúnaður og skjöl í tengslum við það séu dregin fram í dagsljósið. Eins er það er löngu tímabært að þeir tveir embættis­ menn sem hæst hafa þagað um mál­ ið, þær Hanna Birna Kristjánsdóttir inanrikisráðherra og Sigríður Björk Guðjónsdóttir, nýskipaður lögreglu­ stjóri höfuðborgarsvæðisins, greini frá sinni sýn á þessi mál öll. n R íkisstjórn Framsóknar og Sjálfstæðisflokks hefur 60% sæta á þingi í krafti 51% at­ kvæða kjósenda í kosn­ ingunum 2013. Þær kosn­ ingar hefðu að réttu lagi átt að vera hinar síðustu, sem haldnar eru eft­ ir gildandi kosningalögum, þar eð 2/3 hlutar kjósenda höfnuðu þessum lögum með því að lýsa stuðningi við jafnt vægi atkvæða í þjóðaratkvæða­ greiðslu um nýja stjórnarskrá 2012. Næstu alþingiskosningar munu orka tvímælis, að ekki sé meira sagt, þar eð þær verða haldnar skv. lögum, sem kjósendur hafa hafnað. Gróft misvægi atkvæða felur í sér mismunun og mannréttindabrot, sem kjósendum gafst í fyrsta sinn færi á að andæfa milliliðalaust í þjóðaratkvæðagreiðsl­ unni 2012. Stjórnmálaflokkarnir virðast þó ætla að reyna að fara sínu fram og hafa þjóðaratkvæðagreiðsluna að engu. Þeir hegða sér eins og ríki í rík­ inu eins og Ólafur Jóhannesson, síð­ ar forsætisráðherra, lýsti í tímaritinu Helgafell þegar árið 1945. Þeir færa sig upp á skaftið, séu þeir ekki stöðv­ aðir. Alþingi leikur sér að eldi með því að lítilsvirða lýðræðið. Nýkjörið Al­ þingi nýtur trausts 13% kjósenda skv. nýrri könnun MMR. Þar er við stjórnmálaflokkana að sakast. Aðeins bankakerfið býr við minna traust. Bankarnir jusu lánsfé og styrkjum í nafngreinda stjórnmálamenn og flokka fyrir hrun svo sem fram kem­ ur í skýrslu RNA um hrunið (sjá 2. bindi, bls. 200–201, og 8. bindi, bls. 164–170). Ekkert hefur enn spurzt um uppgjör þeirra viðskipta. Engum þarf að koma á óvart, að 2/3 hlutar Íslendinga telja spillingu útbreidda í stjórnmálum og stjórnsýslu landsins skv. nýlegri rannsókn Gallup. Ill var þeirra fyrsta ganga Eitt fyrsta verk ríkisstjórnarinnar í fyrra var að aflétta áður ákveðnum veiðigjöldum af útgerðinni eins og til að auglýsa, að nóg væri til af opin beru fé. Seðlabankastjóri hafði áður stefnt bankanum fyrir rétt vegna launadeilu eins og til að auglýsa, að engin þörf væri fyrir aðhald í launamálum. Á hvorugum staðnum virtist vera til að dreifa djúpum skilningi á viðkvæmri stöðu efnahagsmálanna í hrundu landi. Ríkisstjórnin bjóst síðan til að draga umsókn um aðild að ESB til baka í eitt skipti fyrir öll í stað þess að láta sér duga að leggja hana til hlið­ ar til að binda ekki hendur kjósenda fram í tímann. Ríkisstjórnin hrökk frá þessari ráðagerð vegna mótmæla almennings á Austurvelli og undir­ skrifta 22% atkvæðisbærra manna undir áskorun til Alþingis um að falla frá málinu. Skoðanakönnun Frétta­ blaðsins sýndi, að 82% kjósenda vildu þjóðaratkvæðagreiðslu um málið eins og stjórnarflokkarnir höfðu lof­ að. Nú bíður framlagningar á Alþingi frumvarp til nýrra fiskveiðistjórnar­ laga þvert á ákvæðið um auðlindir í þjóðareigu, sem 83% kjósenda lýstu sig fylgjandi í þjóðaratkvæðagreiðsl­ unni 2012. Þegar ríkisstjórnin legg­ ur frumvarpið fram, verður fólkið í landinu að rísa upp og stöðva gern­ inginn. Þess myndi að sönnu ekki gerast þörf, væri nýja stjórnarskráin gengin í gildi, svo sem rétt og eðlilegt hefði verið, þar eð þá hefði undirskrift 10% atkvæðisbærra manna dugað til að vísa málinu í þjóðaratkvæði. En úr því að Alþingi hefur stungið nýju stjórnarskránni niður í neðstu skúffu hjá LÍÚ, neyðist fólkið til að fara mót­ mælaleiðina. Þúsundir manna sóttu mótmælafundinn á Austurvelli á mánudaginn var til að lýsa andúð sinni á ríkisstjórninni og ýmsum verkum hennar. „Allir dauðöfunda okkur“ „Góðar fréttir af efnahagsmálum þessa dagana … Við erum á réttri leið,“ segir fjármálaráðherra. „ Allir dauðöfunda okkur,“ segir seðla­ bankastjóri. Það er eins og þeim komi það ekki við, að læknar eru í verkfalli. Læknaverkföll tíðkast hvergi á byggðu bóli nema í Nígeríu og nokkrum slík­ um löndum. Tónlistarkennarar eru í verkfalli. Prófessorar stefna á verk­ fall. Margt bendir til víðtækra verk­ falla snemma á næsta ári, þegar samningar ASÍ við Samtök atvinnu­ lífsins losna. Margar helztu stofnanir landsins berjast í bökkum: Landspít­ alinn, Ríksútvarpið, Háskóli Íslands, sveitarfélögin, tónlistarskólarnir o.s.frv. Eyðilegging og upplausn blas­ ir við hvert sem litið er. Og bankarnir standa á brauðfót­ um eins og sést á því, að Landsbank­ inn virðist munu þurfa myndarlega meðgjöf frá ríkinu til að geta staðið í skilum, ákveði ríkisstjórnin að koma í veg fyrir samning bankans við kröf­ uhafa í þrotabú gamla Landsbank­ ans. Auk þess bíður ágreiningur­ inn um lögmæti verðtryggingar eins og hún var framkvæmd lausnar fyrir dómstólum. Eignastaða bankanna er því óljós enn sem komið er. Lands­ bankinn lætur það samt ekki aftra sér frá að ætla að reisa sér nýjar höfuð­ stöðvar við hliðina á Hörpu í hjarta Reykjavíkur. n Ríki í ríkinu Þorvaldur Gylfason skrifar Kjallari „Stjórnmálaflokk- arnir virðast þó ætla að reyna að fara sínu fram og hafa þjóðarat- kvæðagreiðsluna að engu. Mjög skrítin tilfinning Bergrún Íris skrifaði og myndskreytti bók um veðrið. – DV Ég hef aldrei haldið því fram Læknir sem á dögunum birti launaseðil sinn á Facebook birti einungis hluta hans. – Vísir Hallgrímur Thorsteinsson hallgrimur@dv.is Leiðari „Því verður vart trúað að stjórnvöld í landinu ætli ekki að gera hreint fyrir sínum dyrum í kjölfar afhjúpunar DV á stórfelldum byssuinn- flutningi frá Noregi á veg- um Landhelgisgæslunnar og ríkislögreglustjóra.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.